„Mikið talar lögmaður stefnanda fallega íslensku“

Dómari hrós­aði Vigdísi Häsler fyrir að tala „fal­lega íslensku“ eftir að hún flutti mál fyrir dómi. Hún var einn við­mæl­enda Pressu í gær þar sem umræðu­efnið var inn­flytj­enda­mál og færsla utan­rík­is­ráð­herra um tjald­búð­irnar á Aust­ur­velli.

Ummæli Sigurðar Inga „Ég lofaði sjálfri mér því að ræða aldrei þetta mál aftur“

„Ég var búin að flytja heilt mál í heilan dag, ein­hverja fjóra klukku­tíma. Ég var búin að tala þarna, flytja loka­ræðu og leggja málið fyrir dóm. Svo er þing­haldi slitið og dóm­ar­inn segir „mikið talar lög­maður stefn­anda fal­lega íslensku,“ sagði Vigdís Häsler, fram­kvæmda­stjóri Bænda­sam­tak­anna, áður lög­fræð­ingur. „Hún var að hrósa mér en ég var búin að vera þarna allan lið­langan dag­inn að flytja mál fyrir hags­munum ein­stak­lings sem skiptir veru­legu máli. Þetta var það eina sem sat í henni.“

Vigdís var einn við­mæl­enda Pressu í gær þar sem umræðu­efnið var inn­flytj­enda­mál og færsla utan­rík­is­ráð­herra um tjald­búð­irnar á Aust­ur­velli. Vigdís var ætt­leidd frá Indónesíu og hefur setið í stjórn Íslenskrar ætt­leið­ingar og í stjórn evr­ópsku og nor­rænu ætt­leið­ing­ar­sam­tak­anna. Hún var aðstoð­ar­maður Jóns Gunn­ars­sonar, þáver­andi sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra árið 2017 en fyrir það var hún lög­maður hjá Sambandi íslenskra sveit­ar­fé­laga. 

Ummælin hafa enn áhrif á hana í dag 

Kjósa
79
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Hvernig finnst mér þessi grein?
    Ruglingsleg og samhengislaus. Um hvað snýst hún eiginlega?
    Dómari vill hrósa lögmanni fyrir vandaða málnotkun. Væntanlega meinar hún það. Hún hefur sennilega heyrt mismunandi góðar/vondar útfærslur á Íslensku í sínu starfi.
    Og svo gamalt mál sem gömlum karli varð á í messunni því hann er ekki fær um að fylgjast með nútímanum. Mest honum sjálfum til skammar.
    Og hvað svo?
    -10
  • Kristjana Magnúsdóttir skrifaði
    ALLIR HAFA GETU TIL AÐLÆRA EF RETT SKILYRÐI ERU FYRIR HENDI Í UPELDINU
    -10
  • Þorkell Egilsson skrifaði
    Það hefur farið framhjá henni þá að Framsókn er flokkurinn sem styður við hrein kynbóta stefnur bæði til sveita sem og í íslensku samfélagi. Það er þeim einfalt og eðlilegt að það eigi við manneskjur líka. Það hvísla aðilar bænda stéttarinnar á barnum og í fjósinu. Hitler hafði náttúrulega rétt fyrir sér um þessi kynflokka mál hvisluðu hrossabændurnir í Skagafirði. Það má ekki blanda saman reiðhesti og dráttarklárum eðlilega sögðu þeir í eldhúsinu. Sjálfstæðismenn sömuleiðis. Kleppur er víða.
    -9
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Pressa

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár