Seinni mynd:
Þetta er kort af landi einu í heimi hér. Og landið er ...?
Almennar spurningar:
- Í bíómynd frá 2015 leikur Matt Damon mann sem verður strandaglópur ... hvar?
- Hvað heitir þjálfari karlalandsliðsins í handbolta?
- Hvaða ár fæddist söngkonan Björk Guðmundsdóttir? Var það 1955 – 1965 – 1975 – eða 1985?
- Hvaða fréttaskýringaþátt annast Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson á laugardögum á Rás 1 RÚV?
- Hvað er yfirleitt alltaf ódýrasta grænmeti, miðað við kílóverð hvar sem er í heimi?
- Greta Gerwig leikstýrði vinsælli kvikmynd á síðasta ári. Hver er myndin?
- Hvaða ríki lenti geimfari sínu á tunglinu í síðustu viku, þó ekki færi allt að óskum?
- Í hvaða landi eru rústir borgarinnar Tróju?
- Nafn höfuðborgar einnar þýðir „Gott loft“. Hvaða borg er það?
- Þátttaka Ísraels í Eurovision er mjög umdeild, svo ekki sé meira sagt. En hve oft hefur Ísrael unnið Eurovision?
- Í hvaða firði á Íslandi er Grenivík?
- Hver var manneskja ársins hjá tímaritinu TIME á síðasta ári?
- Hver er núverandi formaður Samfylkingarinnar?
- Núverandi formaður tók við af Loga Einarssyni. En hver var formaður á undan honum?
- Hver var formaður Sjálfstæðisflokksins á undan Bjarna Benediktssyni?
Svör við myndaspurningum:
Konan er að spila á túbu. Kortið sýnir Þýskaland.
Svör við almennum spurningum:
1. Mars. — 2. Snorri Steinn. — 3. 1965. — 4. Heimskviður. — 5. Kartöflur. — 6. Barbie. — 7. Japan. — 8. Tyrklandi. — 9. Buenos Aires. — 10. Fjórum sinnum. — 11. Eyjafirði. — 12. Taylor Swift. – 13. Kristrún Frostadóttir. — 14. Oddný Harðardóttir. — 15. Geir Haarde.
Athugasemdir (1)