„Þetta verður högg“

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að nýj­ustu atburðir í Grinda­vík muni verða högg, bæði fyrir rík­is­sjóð og íbúa Grinda­víkur. Kostn­aður liggur þó ekki fyrir. „Það er hægt að segja að það séu mis­mun­andi sviðs­myndir en það fer bara algjör­lega eftir því hvaða ákvarð­anir eru teknar.“

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra segir að aðgerð­irnar sem ráða þarf í í Grinda­vík eftir nýj­ustu atburði muni vera högg – fyrir rík­is­fjár­málin, hag­kerfið en fyrst og síð­ast fólkið sem þar býr. „Vonandi verður þetta ekki svo mikið högg á hag­kerfið, en þetta mun kosta.“

Heim­ildin náði tali af fjár­mála­ráð­herra að loknum rík­is­stjórn­ar­fundi í morgun.

Þórdís Kolbrún segir að það þurfi að skoða hvaða áhrif aðgerðir muni hafa á rík­is­fjár­málin. „Og hvort það kallar á ein­hverja breytta for­gangs­röðun eða hliðrun í öðrum fjár­fest­ingum, aðgerðum og öðru slíku. Við gerum þetta með sem ábyrgustum hætti. Það er það sem verður að gera.“

Þórdís Kolbrún vildi ekki tjá sig um hvort að til stæði að kaupa upp allt hús­næði í Grinda­vík. Næstu aðgerðir væru enn í vinnslu. Hún gerði þó ráð fyrir því að geta tekið ein­hver skref fljót­lega.

Í ljósi aðgerða eru rík­ari kröfur um að taka ákvarð­anir til lengri tíma. „Núna þarf fólk svör til að minnsta kosti all­margra mán­aða,“ segir Þórdís Kolbrún. 

Hún segir ekki hægt að áætla hver mögu­legur kostn­aður aðgerða gæti orðið. „Það er hægt að segja að það séu mis­mun­andi sviðs­myndir en það fer bara algjör­lega eftir því hvaða ákvarð­anir eru teknar.“

Er búið að skoða það hvaðan fjár­magn verður  sótt til að milda höggið á rík­is­sjóð?

„Þetta er allt bara í skoðun og vinnslu og það eru mis­mun­andi ákvarð­anir sem hægt er að taka í því. Rík­is­sjóður er rek­inn af fjár­magni skatt­greið­enda og svo höfum við svig­rúm til þess að taka lán og slíkt. En við þurfum auð­vitað þar að huga að svona heildar mark­miðum og gera það með ábyrgum hætti. En við gerum það sem gera þarf.“ 

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÁJ
    Ástþór Jóhannsson skrifaði
    Nú verður vart undan því skorist lengur hjá stjórnvöldum að koma á hvalrekasköttum, frekari gjaldheimtu af nýtingu sameiginlegra náttúruauðlinda, sækja aflandssjóði, breyta fjármagnstekjuskattprósentu og útsvarsgreiðslum á fjármagnstekjur, nálgast okurleigufélögin, airbnb, svo fátt eitt sé nefnt.
    Með því móti verður hægt að bregðast hratt og örugglega við vanda Grindvíkinga, auk margvíslegra annarra mála tengdum sameiginlegum innviðum og stjórnvöld landsins hafa látið drabbast.
    Landslagið er að breytast - bókstaflega. Kannski er þetta rétt að byrja. Jarðvísindafólk býst við því að nýtt skeið eldsumbrota sé hafið í sögu lands og þjóðar sem getur varað í áratugi, jafnvel aldir og það krefst nýrra og djarfri lausnarmiðaðra hugmynda við öflunar fjármuna í aðsteðjandi vanda.
    Það gengur ekki lengur að koma upp með þá andlausu og ónægu lausn að skatta sífellt tekjur venjulegs launafólks og lífeyrisþega til að leysa vandann. Nú verða idol fjármálaráðherra - efstu 10% - að leggjast á árar og sýna fram að það sé ekki hrært úr græðginni einni saman.
    Það ætti að vera hæg heimatökin hjá ráðherranum að sansa þá kjósendur sína sem kunna bregðast illa við aukinni greiðslubyrði sinni, Grindvíkingum og samfélagi þeirra til hagsbóta. Áfram Grindavík!
    2
  • Axel Axelsson skrifaði
    nú kæmu 10+ milljarðarnir sér vel innanlands . . .
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár