„Ég veit ekki hvort húsið okkar er byrjað að brenna“

Alda Margrét Hauks­dóttir líf­einda­fræð­ingur býr á Efrahópi 3 í Grinda­vík, ásamt eig­in­manni sínum Gretti Sig­ur­jóns­syni. Þau eiga fjögur hús á svæð­inu sem kvikan ógnar, þar búa einnig börn þeirra ásamt fjöl­skyldum sínum. Nú horfa þau á ævi­starf sitt brenna.

„Ég veit ekki hvort húsið okkar er byrjað að brenna“
Sárt að sjá Alda Margrét horfir nú á ævi­starf þeirra hjóna brenna. Mynd: RÚV

Alda Margrét Hauks­dóttir líf­einda­fræð­ingur býr á Efrahópi 3 í Grinda­vík, ásamt eig­in­manni sínum, Gretti Sig­ur­jóns­syni. Húsi sem hraunið fær­ist óðum nær.

Hún var til­búin að tala við blaða­mann og sagði stöð­una auð­vitað ekki góða.

„Það verður að segj­ast eins og er. Nú er kviknað í hús­inu fyrir aftan okkar hús. Eins og aðrir íbúar erum við að horfa á ævi­starfið okkar brenna. Við byggðum þarna sex hús en seldum tvö; þarna eru börnin okkar, barna­börn og tengda­börn.“

Fólk hugsaði að timburhús væru betri í jarðskjálftum

Fjöl­skyldan er búsett í fjórum hús­anna, öllum í Efri­a­hopi. „Þar sem sprungan opn­að­ist og eng­inn átti von á þessu,“ segir Alda Margrét.

„Fyrsta húsið sem fór er Efri­hópur 19,“ segir hún og útskýrir að það hús sé í bygg­ingu, svo­kallað CLT-tré­hús, sem er lím­trésein­ing­ar­hús og því sé lengur að kvikna í því.

…

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Talandi um gjörsamlega VANHÆFA ríkisÓSTJÓRN!
    Milljörðum spreðað í að verja einkafyrirtæki.
    En EKKERT gert til að verja eigur einstaklingana!
    Því var ekki búið að staðsetja öflugar dælur við jaðar Grindavíkur ?
    Stutt í ískaldann sjóinn og reyna að stýra hraunfæðinu frá bænum, eins og gert var í Vestmannaeyjum á sínum tíma.
    Svo maður tali nú ekki um að rusla upp varnargörðum, eins og gert var fyrir einka fyrirtækin þeim að kostnaðarlausu.
    Og þjóðin látin borga brúsann fyrir auðrónana!
    3
    • Sigurður Úlfarsson skrifaði
      Varnargarðurinn við Svartsengi er ekki fyrir fyrirtækið. Varnargarðurinn er til þess að tryggja heitt vatn og rafmagn á öllum Suðurnesjum í Reykjanesbæ, Sandgerði og á öllu því svæði. Ef það fer, verður nær óbyggilegt á Suðurnesjum og þá þurfum við að redda húsnæði fyrir 30 þúsund manns en ekki 4 þúsund manns eins og núna! Það var því rétt forgangsröðun að mínu mati.
      0
    • Steinþór Grímsson skrifaði
      Sósíalismi í tapi og kapítalismi í gróða. Vandamálið er að einkafyrirtæki á bara sjálft að gera þetta eða amk. vera rukkað fyrir svona! Þessi fyrirtæki eru ekki hluti af því sem við köllum innviði vegna þess að innviðir eru fyrir okkur öll, sami pottur sama skál. En þessir fara með allan pening sem kemur inn, fer með hann í skattaskjól og stinga honum undan í stað þess að vera að byggja upp. Á sama tíma eru hin fyrirtækin sem eru raunverulega innviðir látnir borga fyrir tossana. Þessir einkavæddu „innviðir“ ættu því að sækja peninginn fyrir svona varnargörðum til Tortóla ekki ríkisins!
      1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár