Fékk mest greitt: „Algjörlega kristaltært og samkvæmt öllum reglum“

Lækn­ir­inn sem fékk hæstu upp­hæð­ina frá danska lyfja­fyr­ir­tæk­inu Novo Nordisk á tveimur árum – Erla Gerður Sveins­dóttir – fékk greitt fyrir fræðslu um offitu. Novo Nordisk fram­leiðir lyf sem notuð hafa verið til þyngd­ar­stjórn­unar, meðal ann­ars Ozempic, Saxenda og Wegovy.

Fékk mest greitt: „Algjörlega kristaltært og samkvæmt öllum reglum“
Læknir „Ég ætla að halda því fram að það hafi ekki áhrif á ákvarð­anir mínar um það hvaða með­ferð ég veiti hverjum sjúk­ling hver fram­leiðir lyfin,“ segir Erla Gerður. Mynd: Heiða Helgadóttir

Árið 2021 fékk Erla Gerður 555.623 krónur frá Novo Nordisk og árið 2022 var greiðslan um þrefalt hærri – tæp­lega 1,8 millj­ónir, sam­kvæmt gögnum á vef Frumtaka, sam­taka frum­lyfja­fram­leið­enda á Íslandi. Samtals fékk Erla Gerður því ríf­lega 2,3 millj­ónir króna frá Novo Nordisk á tveggja ára tíma­bili. 

Ítarleg grein­ing á greiðslum Novo Nordisk frá árinu 2020 til árs­ins 2022 til íslensks heil­brigð­is­starfs­fólks, -stofn­ana og félaga birt­ist í Heim­ild­inni á föstu­dag. Heild­ar­upp­hæðin frá fyr­ir­tæk­inu, sem er verð­mætasta fyr­ir­tæki Evrópu, var rúm 21 milljón króna. Greiðsl­urn­ar frá Novo Nordisk átt­föld­uð­ust á sama tíma og notk­un lyfj­anna rauk upp hér á landi. 

Eins og áður segir var Erla sú sem fékk mest greitt á tíma­bil­inu. Hún segir ekki óeðli­legt að hún sé efst á lista þegar kemur að greiðslum frá Novo Nordisk. Hún …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár