Dómur Eddu Bjarkar birtur: Sögð hafa vísvítandi sagt rangt frá

Edda Björk Arn­ar­dóttir á yfir höfði sér 20 mán­aða fang­els­is­vist í Noregi. Edda nam drengi sína þrjá á brott og hindr­aði að faðir drengj­anna fengi að hitta þá. Faðirinn fór einn með for­sjá þeirra.

Dómur Eddu Bjarkar birtur: Sögð hafa vísvítandi sagt rangt frá

Dómur féll í máli Eddu Bjarkar Arn­ar­dóttur í hádeg­inu í dag. Edda var dæmd í tutt­ugu mán­aða óskil­orðs­bundið fang­elsi í þings­rétt­inum í Þelmörk í Noregi. Nútíminn greindi fyrst frá dómnum og hefur birt þýð­ingu á honum í heild sinni. 

Edda var fram­seld til Noregs í nóv­em­ber þegar hún var hand­tekin. Hún var flutt nauðug til Noregs í byrjun des­em­ber. Hefur hún setið í fang­elsi síðan. Þrír dóm­arar dæmdu í mál­inu. 

Í dómnum kemur fram að „ásak­anir ákærða um alvar­lega galla í umsjár­stöðu brota­þola eru aug­ljós­lega rangar og eru bornar fram gegn betri vit­und.“

Refsirammi hækkaður

Edda Björk er sak­felld fyrir sama dóm í Nedre Telemark dóm­stólnum 22. októ­ber 2020. Þá skil­aði hún ekki drengj­unum til föður þeirra eftir vetr­ar­frí á Íslandi. Samkvæmt refsi­lögum í Noregi þýðir það að refsiramm­inn megi hækka allt að tvö­falt. Í þýð­ingu Nútímans af dómnum kemur fram að „þetta mál ein­kenn­ist af því að ákærða hefur í annað sinn á stuttum tíma brottnumið þrjá syni sína til Íslands þrátt fyrir að það hafi verið laga­lega ákveðið að hún hafi ekki hlut­deild í for­sjá þeirra og að þeir eigi að hafa fasta búsetu hjá brota­þola í Noregi. Ákærða fram­kvæmdi brott­námið á hátt sem krefst tals­verðrar skipu­lagn­ingar og fjár­magns. Aðgerðin, þar með talið útvegun fals­aðra eða rangra ferða­skjala fyrir börnin, ber vott um fag­mennsku.“

Hagur barnanna að búa hjá föður sínum

Í dómnum segir að for­sjá, búseta og umgengni barn­anna hafi verið athuguð fyrir brott­námið af sér­fræð­ingum. Telur dóm­stóll­inn að það sé hagur barn­anna að búa hjá föður drengj­anna. Eru ásak­an­irnar á hendur föður drengj­anna sagðar rangar í dómnum. „Við rýn­ingu hefur dóm­stóll­inn lagt mikla áherslu á að þetta er í annað sinn á fáum árum að ákærða brott­nám börn sín til Íslands.“

„Við lok aðal­með­ferðar hafði brott­námið staðið í næstum eitt ár og níu mán­uði,“ Kemur fram að Edda hafi sýnt fram á vilja til að fara ekki eftir laga­lega ákvörð­uðum dómum frá  Noregi og Íslandi. Segir í dómnum að Edda hafi sagst ætla að gera allt sem í hennar valdi stendur til að börnin yrðu áfram á Íslandi hjá henni. „Þrátt fyrir að íslenskir dóm­stólar hafi laga­lega ákveðið að drengirnir skuli snúa aftur til Noregs með úrskurði frá 31. jan­úar 2023.“ 

Sökuð um að segja ranglega frá málinu

Edda sögð hafa tryggt að mann­fjöldi myndi hindra lög­regl­una í því að flytja dreng­ina burt. Þar að auki er hún sökuð um að hafa vís­vit­andi sagt rang­lega frá mál­inu í íslenskum fjöl­miðlum og á sam­fé­lags­miðlum. 

Í dómnum kemur fram að faðir drengj­anna hafi „í langan tíma barist með frið­sam­legum og lög­legum hætti til að fá börnin aftur. Hann hefur verið mjög áhyggju­fullur yfir stöðu drengj­anna í langan tíma með litlar eða engar sannar upp­lýs­ingar um það hvernig þeim líður. Hann hefur sjálfur glímt við þung­lyndi og sjálfs­vígs­hugs­anir.“ Dóm­stóll­inn telur að ekki sé hægt að meta hvernig áhrif brott­námið mun hafa á dreng­ina að svo stöddu. 

Dóm­stóll­inn telur að eins árs og átta mán­aða fang­elsi vera of vægan dóm telja það ekki end­ur­spegla alvar­leika brots­ins. Bera þeir undir sig að um end­ur­tekið rán sé að ræða. „Þó að drengirnir séu staddir í þró­uðu landi eins og Íslandi, þá eru þeir útsettir fyrir stöð­ugu álagi og nei­kvæðum áhrifum af hálfu ákærða. Skólinn hefur einnig upp­lýst að drengirnir eiga við veru­legar áskor­anir að stríða og að ákærða fylgist ekki með þeim á full­nægj­andi hátt. Með hlið­sjón af alvar­leika máls­ins og þeim almennu- og ein­stak­lings­bundnu for­vörnum sem gilda, telur dóm­stóll­inn að við­eig­andi upp­haf­s­punktur fyrir refs­ing­una sé óskil­orðs­bundið fang­elsi í tvö ár,“ kemur fram í þýð­ingu Nútímans af dómnum. 

Eddu barst ekki stefnan í málinu

Í dómnum kemur fram að Eddu barst ekki stefnan þar sem heim­ils­fang hennar var rang­lega skráð á boð­un­ar­bréfið. Var ekki öðrum leiðum beitt við að koma stefn­unni til hennar og íslenskum yfir­völdum ekki frekar gert að kynna stefn­una fyrir Eddu. Því var aðal­með­ferð máls­ins frestað.

Edda er því ekki talin bera ábyrgð á því að mál­inu var frestað en málið átti upp­haf­lega að fara fyrir dómi í ágúst 2023. „Dóm­stóll­inn telur rétt að gefa afslátt af refs­ing­unni um það bil 15% vegna þess að máls­með­ferðin hefur tekið óþarf­lega langan tíma.“

Var nið­ur­staða dóms­ins að dæma Eddu í 20 mán­aða fang­elsi.

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Mál Eddu Bjarkar

Forræðisdeila Eddu Bjarkar og barnsföður hennar: Hvað gerðist eiginlega?
GreiningMál Eddu Bjarkar

For­ræð­is­deila Eddu Bjarkar og barns­föður hennar: Hvað gerð­ist eig­in­lega?

Deilur íslenskra for­eldra, sem hafa staðið yfir í fimm ár, hafa verið dregnar fram í ærandi skært kast­ljós fjöl­miðla á síð­ast­liðnum mán­uði. For­eldr­arnir, Edda Björk Arn­ar­dóttir og barns­faðir hennar, eiga saman fimm börn og hafa deilur þeirra farið fram svo oft frammi fyrir dóm­stólum að tvær hendur þarf til þess að telja skiptin.
Töldu hættu á að Edda myndi sleppa
FréttirMál Eddu Bjarkar

Töldu hættu á að Edda myndi sleppa

Hér­aðs­dómur í Vestfold í Noregi taldi ástæðu til þess að ótt­ast að ef Edda Björk Arn­ar­dóttir yrði ekki færð í gæslu­varð­hald myndi hún kom­ast undan. Barns­faðir hennar seg­ist hneyksl­aður á umræð­unni sem bein­ist, að hans mati, frekar að rétt­indum Eddu en rétt­indum drengj­anna. Edda sagði fyrir dóm á föstu­dag að þeir hefðu ekki viljað fara frá Íslandi með pabba sínum.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár