Töldu hættu á að Edda myndi sleppa

Héraðs­dómur í Vestfold í Noregi taldi ástæðu til þess að óttast að ef Edda Björk Arnar­dóttir yrði ekki færð í gæslu­varðhald myndi hún komast undan. Barns­faðir hennar segist hneykslaður á umræðunni sem beinist, að hans mati, frekar að réttindum Eddu en réttindum drengjanna. Edda sagði fyrir dóm á föstudag að þeir hefðu ekki viljað fara frá Íslandi með pabba sínum.

Edda og börn
Edda og börn Edda telur að það væri skað­legt fyrir syni hennar að vera sendir aftur til Noregs en faðir þeirra telur hið and­stæða.

Í vitnis­burði Eddu Bjarkar Arnar­dóttur fyrir héraðs­dómi í Vestfold í Noregi á laugardag sagðist hún ekki vita hvar drengir hennar þrír væru en að þeir væru öruggir og að þeir hefðu ekki viljað fara frá Íslandi með pabba sínum. 

Edda var á laugardag úrskurðuð í fjögurra vikna gæslu­varðhald í fangelsi í Þelamörk í Noregi vegna meints ólögmæts brottnáms á sonum sínum frá Noregi til Íslands. Hún gæti átt yfir höfði sér allt að sex ára fangelsi. 

Í yfir­lýsingu segir faðirinn að hann sé „hneykslaður yfir því hversu margir láta sig réttindi sakborningsins [Eddu] varða og hversu lítil samfélags­umræða er um réttindi barnanna.“ 

Föðurnum, sem vill ekki koma fram undir nafni, var dæmt forræði yfir þremur sonum þeirra Eddu, sem nú eru 10 og 12 ára gamlir, fyrir norskum dómstólum árið 2018. Faðirinn er íslenskur en hefur búið í Noregi um árabil. 

Neituðu að fara, segir móðirin

Edda var árið 2019 dæmd fyrir að halda drengjunum á Íslandi í óþökk föðurins. Hún afplánaði þann dóm í samfélags­þjónustu á Íslandi, segir Edda. Lands­réttur úrskurðaði jafnframt árið 2019 að Edda ætti að skila börnunum til Noregs í samræmi við Haag sátt­málann sem ætlað er að tryggja hagsmuni barns sem flutt hefur verið með ólögmætum hætti úr einu samnings­ríki til annars. 

Þegar dren­girnir voru fluttir frá Íslandi til Noregs í það skiptið þurfti að beita valdi þar sem dren­girnir vildu ekki fara, sagði Edda, þegar gæslu­varðhalds­úrskurðurinn var tekinn fyrir á laugardag.

Edda flutti drengina síðan frá Noregi með einka­flugvél í mars á síðasta ári. Þegar íslensk yfirvöld reyndu fyrr á þessu ári að flytja drengina aftur til Noregs neituðu dren­girnir aftur að fara, sagði Edda. 

„Kvartað hefur verið yfir aðkomu íslenskra stjórn­valda að málinu til Alþingis og er málið til meðferðar þar,“ segir í gæslu­varðhalds­úrskurðinum. 

Telur ekki að háttsemin hafi verið refsiverð

Þar kemur jafnframt fram að Edda telji að hún hafi ekki sýnt af sér refsiverða háttsemi þegar hún flutti drengina frá Noregi til Íslands þar sem hún telur að dren­girnir, sem eru tólf og tíu ára gamlir, eigi sjálfir að fá að velja hjá hvoru foreldrinu þeir búi. Hún sagðist telja að dren­girnir muni þjást ef þeim verður skilað til Noregs.

Þegar hún var spurð hvort hún myndi leggja sitt af mörkum til að yfirvöld gætu hitt og talað við börnin sagði hún að það færi eftir því hvort yfirvöld vildu bara tala við þau eða taka þau með sér.

Vildi bera ökklaband en ekki gæsluvarðhald

Edda var handtekin á Íslandi 28. nóvember síðastliðinn að beiðni norska ríkis­saksókn­arans og framseld til Noregs 1. desember. Hún var flutt í gæslu­varðhald í kjölfarið en Edda mótmælti beiðni norska ríkis­saksókn­arans um gæslu­varðhald yfir henni og sagðist viljug til þess að bera ökklaband fram að fyrirtöku málsins. 

Það féllst dómarinn ekki á og samþykkti beiðni norska ríkis­saksókn­arans um gæslu­varðhald yfir Eddu til 30. desember að hámarki. Dómarinn taldi ástæðu til þess að óttast að Edda myndi komast undan ef henni yrði sleppt. Máli sínu til stuðnings sagði hann að Edda hafi reynt að komast hjá handtöku á Íslandi í nóvember­mánuði og að sú aðferð sem hún notaði til þess að koma drengjunum frá Noregi í fyrra gæfi til kynna að hún hefði aðgang að úrræðum til þess að komast undan. Þá sagði hann útlit fyrir að hún vildi ekkert gefa uppi um stað­setningu barnanna. 

Faðirinn hneykslaður

Sjak R. Haaheim, lögmaður barns­föður Eddu, segir að réttar­höldin séu fyrir­huguð 19. og 20. desember næst­komandi. Í yfir­lýsingu frá föðurnum, sem er Íslend­ingur en hefur búið lengi í Noregi, sem Haaheim sendi Heimildinni, kemur fram að faðirinn hafi fylgst með umræðunni á Íslandi og sé „hneykslaður yfir því hversu margir láta sig réttindi sakborninganna varða og hversu lítil samfélags­umræða er um réttindi barnanna.“ 

Þá bendir Haaheim á að Barna­sáttmáli Sameinuðu Þjóðanna, Haag samkomu­lagið frá 1980 og íslensk og norsk refsilög eigi að „vernda börn gegn því að vera rænt til annars lands af foreldrum sínum eða öðrum.“ 

Faðirinn segir að dren­girnir séu norskir ríkis­borgarar og að þeir eigi dýpstar rætur í Noregi. Hann hvetur  þá sem „láta sig réttindi barnanna varða“ að láta lögreglu vita um dvalar­stað barnanna, sem séu stödd í miðju átaka full­orðinna.   

„Það er áhyggju­efni að stjórn­málamenn og lögfræðingar á Íslandi gleymi útgangs­punktinum: Að það eru börnin – ekki fullorðna fólkið – sem þarfnast verndar.“

Erfitt að heyra rödd drengjanna þegar staðsetning þeirra er á huldu

Faðirinn hefur farið þess á leit við norskan dómstól að hann skipi lögmann sem getur komið fram fyrir hönd barnanna, óháð foreldrunum. „Þar sem börnin eru falin á Íslandi verður erfitt að heyra rödd barnanna í saka­málinu sem brátt verður tekið fyrir frammi fyrir norskum dómstólum,“ segir í yfir­lýsingunni.  

Sjak, sem hefur áður tekið að sér mál sem varða börn sem hafa verið numin á brott frá Noregi, segir að venjulega taki það ekki nema nokkra mánuði áður en börn sem eru ólöglega flutt þaðan þangað til þau eru flutt aftur til Noregs. Í yfir­lýsingunni segir að það sé algengt að börnum sem sé rænt segist „vilja vera með ræningjanum.“ 

„Ísland getur orðið að griða­stað barna­ræn­ingja“
Sjak R. Haaheim
Lögmaður barns­föður Eddu Bjarkar Arn­ar­dóttur

„Að [Edda] haldi því fram að börnin „vilji“ búa hjá henni er því ekki óvænt og verður að skiljast í samhengi við þá vitneskju sem við höfum um börn sem hefur verið rænt.“ 

Sjak furðar sig á þeirri stefnu sem málið hefur tekið í umræðunni á Íslandi og segir að fara verði að lögum í málinu.

„Ísland getur orðið að griðastað barna­ræningja eins og lönd eins og Tsjetsjnía, Tyrkland og Marokkó. Það eru Íslendingar sjálfir sem velja hverjum þeir líkjast,“ segir Sjaak.  

Aðstandendum Eddu blöskrar

Aðstand­endur Eddu hafa í samtölum við Heimildina undan­farið furðað sig á þeirri meðferð sem hún hefur fengið. Ragn­heiður Arnar­dóttir, systir Eddu, sagði til að mynda í samtali við Heimildina fyrir helgi að Edda hefði ekki hlotið mannúð­lega meðferð í ferlinu. Karl Udo, eigin­maður Eddu, sagði að honum blöskruðu aðgerðir yfirvalda.

„Hún þráir ekkert heitara en að vera með fjöl­skyldunni sinni. Hún vill bara vera með börnunum sínum. Þetta er móðir að vernda börnin sín,“ sagði Karl fyrir helgi.

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Auður Helg skrifaði
    Stundum lætur fólk reiði og vondar tilfinningar stjórna sér. Ég vona að foreldrarnir segi upp þessu lögfræðingastóði og ráði frekar sálfræðinga til þess að sættast. Það er engin hemja að telja að móðir barnanna eigi að sitja í fangelsi. Það getur ekki verið vilji barnanna eða þeim fyrir bestu.
    0
  • Axel Axelsson skrifaði
    aðgát skal höfð í nærveru móður . . .
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Mál Eddu Bjarkar

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár