Pósturinn neitar að útskýra ákvörðun fyrir þingnefnd

Þing­manni Fram­sóknar þykir „afar sér­stakt“ að opin­bera hluta­fé­lagið Íslands­póstur hafi ekki viljað gera þing­nefnd grein fyrir væntum áhrifum þeirrar ákvörð­unar að hætta með öllu að dreifa fjöl­pósti á lands­byggð­inni.

Pósturinn neitar að útskýra ákvörðun fyrir þingnefnd
Póstur Frá 1. jan­úar 2024 er Póst­ur­inn hættur allri dreif­ingu fjöl­pósts á lands­byggð­inni. Þingmenn Fram­sóknar vildu svör um for­sendur og áhrif þessa en Póst­ur­inn seg­ist ekki þurfa að veita þau. Mynd: Af Facebook-síðu fyrirtækisins

Íslands­póstur ohf. neit­aði að láta umhverfis- og sam­göngu­nefnd Alþingis hafa upp­lýs­ingar um for­sendur og væntan sparnað vegna þeirrar ákvörð­unar að hætta alfarið dreif­ingu fjöl­pósts frá 1. jan­úar 2024. Full­trúar Fram­sókn­ar­flokks­ins í nefnd­inni höfðu m.a. óskað eftir því að Póst­ur­inn útskýrði hvað þessi ákvörðun kæmi til með að spara félag­inu.

Þing­menn­irnir Halla Signý Krist­jáns­dóttir og Líneik Anna Sæv­ars­dóttir sögðu frá þessu í aðsendri grein á Vísi í vik­unni, en þar kom fram að fyr­ir­tækið hefði vísað til þess „að um sé að ræða upp­lýs­ingar sem Alþingi eigi ekki rétt á þar sem fyr­ir­tækið væri nú opin­bert hluta­fé­lag“. Um væri að ræða rekstr­ar­lega ákvörðun pósts­ins, sem sætti ekki sér­stakri ytri skoðun, og gilti þá engu hvort um væri að ræða Byggða­stofnun eða Alþingi.

Líneik Anna segir í sam­tali við Heim­ild­ina að henni þyki þetta svar Póstsins „afar sér­stakt“. „Póst­ur­inn þarf auð­vitað að gera fjár­laga­nefnd grein fyrir rekstr­inum, vegna mögu­legs rík­is­fram­lags …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár