Eldri borgarar skíða einungis frítt á Austurlandi

Í vetur þurfa eldri borg­arar að greiða fyrir aðgang að skíða­svæð­inu í Blá­fjöllum, öfugt við það sem verið hefur. Gjaldið þykir sumum fremur hátt fyrir líf­eyr­is­þega, en þeir þurfa þó að borga enn meira bæði á Akureyri og á Siglu­firði. Einu skíða­svæðin á land­inu sem leyfa öldruðum að renna sér frítt eru skíða­svæðin tvö á Aust­ur­landi, Odds­skarð og Staf­dalur.

Eldri borgarar skíða einungis frítt á Austurlandi
Skíði Frá Blá­fjöllum. Þar hafa allir 67 ára og eldri fengið að renna sér frítt á skíðum, þar til nú. Mynd: Golli

Skíða­vet­ur­inn er að hefj­ast og upp­færðar gjald­skrár í fjöllin hafa verið birtar af sveit­ar­fé­lögum. Það sem hefur vakið einna mesta athygli, og jafn­vel smá úlfúð, er að eldri borg­arar þurfa á þessum vetri að greiða fyrir að fara á skíði í Blá­fjöllum, sem sveit­ar­fé­lögin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu reka í sam­ein­ingu.

Áður kost­aði ekki krónu fyrir 67 ára og eldri að renna sér þar á skíðum. Gjald fyrir vetr­ar­kort eldri borg­ara í Bláfjöll fer því úr 0 krónum og upp í 36.120 krónur í einu vet­fangi, en vetr­ar­kort full­orð­inna kostar 51.600 krónur fullu verði. 

Þess eru dæmi að eldri borg­arar fái að skíða frítt í brekkum hér­lendis, en það er alls ekki algilt. Aust­firskir eldri borg­arar eru raunar þeir einu sem fá frítt á skíði, sam­kvæmt athugun Heim­ild­ar­innar, en ekk­ert gjald er tekið af þeim sem hafa náð 67 ára aldri á skíða­svæð­inu í Odds­skarði í Fjarða­byggð. Á skíða­svæð­inu í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár