Næstum 900 milljónir króna úr ríkissjóði til fyrrverandi ráðherra og þingmanna

Davíð Oddsson er sá fyrr­ver­andi ráð­herra sem hagn­ast hefur lang­mest á umdeildum eft­ir­launa­lögum sem sett voru árið 2003 og giltu í rúm fimm ár. Fyrr­ver­andi ráð­herrum og þing­mönnum sem geta fengið greiðslur úr rík­is­sjóði á grund­velli lag­anna fer fækk­andi.

Næstum 900 milljónir króna úr ríkissjóði til fyrrverandi ráðherra og þingmanna
Eft­ir­laun árum saman Davíð Oddsson, sem verið hefur rist­jóri Morg­un­blaðs­ins frá árinu 2009, hefur mátt þiggja eft­ir­laun á grund­velli lag­anna frá árinu 2005 óháð því hvort hann sinni öðrum störfum. Launa­tekjur hans – vegna eft­ir­launa og vinnu­launa – voru 5,9 millj­ónir króna að með­al­tali á árinu 2022. Mynd: Skjáskot

Kostn­aður rík­is­sjóðs vegna eft­ir­launa ráð­herra og þing­manna, eins og þau voru skömmtuð í umdeildum lögum sem voru við lýði í rúm­lega fimm ára, var 898 millj­ónir króna. Það er tíu millj­ónum krónum meira en ári áður.

Ráð­herr­unum sem þáðu hin sér­stöku eft­ir­laun fækk­aði um einn í fyrra þegar þeir voru 45 tals­ins. Alls námu líf­eyr­is­greiðslur til þeirra úr rík­is­sjóði vegna ráð­herra­starfa 178 millj­ónum króna. 

Þing­menn­irnir og vara­þing­menn­irnir sem þáðu eft­ir­laun á grund­velli lag­anna á árinu 2023 voru 259 og greiðslur til þeirra námu sam­tals 719,5 millj­ónum króna. Þeim fækk­aði um fjóra í fyrra eftir að hafa fjölgað um 70 á þriggja ára tíma­bili þar á undan. 

Þetta kemur fram í upp­­lýs­ingum sem Líf­eyr­is­­sjóður starfs­­manna rík­­is­ins (LSR) tók saman fyrir Heim­ild­ina. Í svari sjóðs­ins er lögð áhersla …

Kjósa
67
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Sem ég er búin að segja í mörg ár, stjórnmálamenn koma sér og sínum að og fá ríkulega greitt fyrir það.
    Vitið þið hverjir borga?
    4
  • OS
    Oddur Sigurðsson skrifaði
    Ég greiði reglulega styrk til útgáfunnar auk þess sem konan mín, Kolbrún Svala Hjaltadóttir er áskrifandi. samt kemur alltaf upp krafa um að ég fái mér áskrift að blaðinu. Er hægt að hagræða þessu?
    1
  • Stefán Agnar Finnsson skrifaði
    Það er blóðugt að mesti áhrifavaldur spillingar og sérhagsmunagæslu skuli verðlaunaður af skattgreiðendum allt fram í andlátið.
    16
    • Stefan Benediktsson skrifaði
      Það er sannarlega blóðugt nafni. Ekki kemur fram hvort hann þiggur eftirlaun eftir setu sína sem borgarfltr og borgarstjóri
      3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár