Myndband: Fyrsti bruni ársins þegar skúr brann í Hafnarfirði

Töluvert tjón varð á bíl­skúr í Hafn­ar­firði þegar terta valt á hlið­ina og flug­eldar skut­ust inn í skúr­inn. Hlífð­ar­gler­augu björg­uðu mörgum frá alvar­legum augná­verkum í nótt.

Fyrsti brun árs­ins varð í Hafn­ar­firði skömmu eftir mið­nætti í nótt. Samkvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar sem fengnar voru hjá nágrönnum á vett­vangi valt flug­elda­terta á hlið­ina og inni­hald hennar skaust inn í bíl­skúr.

Húsið var mann­laust en nágranni varð var við það sem gerst hafði og gerði slökkvi­lið­inu við­vart, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá nær­stöddum íbúum.

Á Facebook-síðu Slökkvi­liðs höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins kemur fram að tölu­vert tjón varð á bíl­skúrnum. Eldurinn barst þó ekki í íbúð­ar­húsið. 

Lítið var um önnur útköll hjá slökkvi­lið­inu í nótt. Þau voru raunar ein­ungis þrjú til við­bótar „þar sem til­kynnt var um eld í gám og þess háttar.“

Sjúkra­bílar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fóru hins vegar í 64 útköllum, en ekk­ert útkall­anna var vegna flug­elda. 

Af vett­vangiMyndir sem teknar voru fyrir Heim­ild­ina í nótt sýna að betur fór en á horfð­ist þegar það kveikn­aði í bíl­skúr í Hafn­ar­firði.

Á sjúkra­bíla var tölu­vert að gera en næt­ur­vaktin fór í 64 útköll eða jafn­mörg og dag­vaktin tók. Ekkert útkalla var vegna flug­elda og er það gott.

Í til­kynn­ingu frá Hjalta Má Björns­syni, yfir­læknis á bráða­mót­töku Land­spít­ala, segir að tals­vert hafi verið um það að ein­stak­lingar hafi þurft að leita á bráða­mót­töku Land­spít­ala um ára­mótin vegna flug­eldaslysa. Alls komu tólf á deild­ina frá morgni gaml­árs­dags og fram á fyrsta morgun nýja árs­ins vegna slíkra áverka sem í flestum til­vikum voru minni háttar.

Mikill reykurReykur barst inn í íbúð­ar­húsið sem stendur við hlið bíl­skúrs­ins.

Hjalti segir að áber­andi hafi verið hversu mik­il­vægt sé að nota hlífð­ar­gler­augu ef verið er að skjóta upp flug­eldum í nágrenni. „Nokkrir ein­stak­lingar hlutu bruna­sár í and­liti þar sem hlífð­ar­gler­augun höfðu aug­ljós­lega komið í veg fyrir alvar­legan augná­verka. Einnig voru til­vik þar sem fólk hafði talið sig standa fjarri flug­eldum og því ekki verið með hlífð­ar­gler­augu en samt orðið fyrir minni háttar augná­verka vegna flug­elda. Ættu því öll þau sem stödd eru utandyra þegar verið er að nota flug­elda að vera með hlífð­ar­gler­augu.“

Í til­kynn­ing­unni segir einnig að þrátt fyrir að loft­mengun hafi sam­kvæmt mæl­ingum virst hafa verið langt yfir við­mið­un­ar­mörkum hafi eng­inn þeirra sem leit­aði á bráða­mót­töku að loft­mengun vegna flug­elda væri bein ástæða kom­unnar.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár