Enginn verður ákærður í Skeljungsmálinu

Árið 2015 kærði Íslands­banki nokkra fyrr­ver­andi starfs­menn sína, og þekkta fjár­festa, til hér­aðs­sak­sókn­ara vegna gruns um umboðs­svik, skila­svik, mút­ur­brot og pen­inga­þvætti vegna við­skipta með Skeljung og tengd félög. Nú, átta árum síðar, hefur verið ákveðið að ákæra ekki í mál­inu.

Enginn verður ákærður í Skeljungsmálinu
Laus Svan­hildur Nanna Vig­fús­dóttir fjár­festir var ein af þeim sem lá undir grun í mál­inu og fékk stöðu sak­born­ings við rann­sókn þess. Hún segir í yfir­lýs­ingu, sem hún sendi frá sér ásamt Guðmundi Erni Þórð­ar­syni, að opin­ber rann­sókn á við­skipt­unum „muni hér með eyða öllum vafa um rétt­mæti þeirra.“ Mynd: Nasdaq Iceland

Embætti hér­aðs­sak­sókn­ara hefur ákveðið að fella niður hið svo­kall­aða Skelj­ungs­mál, sem verið hefur til með­ferðar hjá emb­ætt­inu árum saman. Því verður eng­inn þeirra sem lágu undir grun í mál­inu, og sættu hús­leitum og hand­tökum vegna gruns um að hafa framið alvar­leg brot og hagn­ast veru­lega á þeim, ákærður. 

Málið, sem var kært af Íslands­banka árið 2016 og hafði verið til rann­sóknar frá árinu 2016, sner­ist um meint umboðs­svik, meint skila­svik, mög­u­­leg mút­u­brot og mög­u­­legt brot á lögum um pen­inga­þvætti þegar olíu­­­fé­lagið Skelj­ungur og tengd félög voru keypt og seld á árunum 2008 til 2013. Við brot­unum getur legið allt að sex ára fang­els­is­vist. 

Í maí 2018 réðst emb­ætti hér­­aðs­sak­­sókn­­ara í umfangs­­miklar aðgerðir vegna máls­ins sem vöktu mikla athygli. Alls fimm ein­stak­l­ingar fengu stöðu sak­­born­ings við rann­­sókn máls­ins á þeim tíma. Tvö þeirra, Svan­hildur Nanna Vig­­fús­dóttir og Guð­­mundur Þórð­­ar­­son, voru hand­­tek­in í kringum aðgerð­irn­­ar. 

Þrjú önnur, Einar Örn Ólafs­­son, Halla Sig­rún Hjart­­ar­dóttir og Kári Guð­jóns­­son, unnu saman í fyr­ir­tækja­ráð­­gjöf Glitnis fyrir um ára­tug, voru boðuð til skýrslu­­töku á sama tíma. Fólkið var grunað um að hafa mis­­notað aðstöðu sína til að koma eignum út úr banka á und­ir­verði, að hafa nýtt sam­eig­in­­legar eignir Skelj­ungs og bank­ans til að greiða fyrir kaup í félag­inu, að hafa vilj­andi rýrt eignir Íslands­­­banka og að hafa gert með sér sam­komu­lag þar sem Svan­hildur Nanna og Guð­­mundur afhentu hinum þremur sem seldu þeim Skelj­ung yfir 800 millj­­ónir króna hverju fyrir sig fyrir þeirra aðkomu að mál­inu.

Á sama tíma og hand­tök­­urnar áttu sér stað fóru fram hús­­leitir víða um höf­uð­­borg­­ar­­svæðið í tengslum við rann­­sókn máls­ins. Engar eignir voru þó kyrr­­settar á því  stigi máls­ins, en fólkið efn­­aðist allt mjög hratt á nokk­urra ára tíma­bili og eru flest afar fyr­ir­ferða­mikil í íslensku við­skipta­lífi í dag. Einar Örn er til að mynda stjórn­ar­for­maður og einn stærsti hlut­hafi flug­fé­lags­ins Play og stór hlut­hafi í fjár­fest­inga­fé­lag­inu Stoð­um, sem á meðal ann­ars stóra hluti í Sím­an­um, Arion banka, Kviku banka og Bláa lón­inu.

Svan­hildur Nanna er meðal ann­ars stór hlut­hafi í Kviku banka.  Guð­mundur Örn, sem er fyrr­ver­andi eig­in­maður Svan­hildar Nönnu, situr í stjórn Kviku banka.

Rann­sókn máls­ins lauk síðla árs 2021, eða fyrir um tveimur árum. Þá var öllum rann­sókn­ar­gögnum skilað inn til sak­sókn­ara sem þurfti að taka ákvörðun um hvort gefin verði út ákæra í mál­inu eða að felld það nið­ur. Nú liggur fyrir að málið hefur verið fellt niður.

Í til­kynn­ingu frá Svan­hildi Nönnu og Guðmundi segir að þessi nið­ur­staða sýni að „kaup okkar á hlutum í umræddum félögum bar að með eðli­legum hætti og við teljum ein­sýnt, að opin­ber rann­sókn á við­skipt­unum muni hér með eyða öllum vafa um rétt­mæti þeirra.“

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár