Fimm ný bætast við Heimildina

Ört hefur bæst við starfs­manna­hóp Heim­ild­ar­innar nýverið.

Fimm ný bætast við Heimildina
Nýtt starfs­fólk Kjartan Þor­björns­son/Golli, Georg Gylfason, Katrín Ásta Sig­ur­jóns­dóttir, Ragn­hildur Helga­dóttir og Jón Ferd­ín­and Esther­ar­son. Mynd: Golli

Heim­ildin hefur und­an­farið bætt við sig nýju starfs­fólki sem er ætlað að stór­auka þá þjón­ustu sem mið­ill­inn veitir les­endum sínum. Í byrjun des­em­ber­mán­aðar var sett á fót sér­stök vef­frétta­deild sem hefur það hlut­verk að auka dag­lega frétta­þjón­ustu Heim­ild­ar­innar á vef. Fjórir blaða­menn hafa þegar hafið störf á þeirri deild, þau Ragn­hildur Helga­dóttir, Georg Gylfason, Katrín Ásta Sig­ur­jóns­dóttir og Jón Ferd­ín­and Esther­ar­son. 

Ragn­hildur starf­aði áður hjá mbl.is og er með BA-gráðu í bók­mennta­fræði frá Háskóla Íslands. Georg var áður blaða­maður á Frétta­blað­inu. Hann er sagn­fræði­mennt­aður frá Háskóla Íslands og með meistara­gráðu í hag­fræði og stjórn­mála­fræði frá London School of Economics. Katrín Ásta er menntuð í fjöl­miðla­fræði frá Háskól­anum á Akureyri og starf­aði á Frétta­blað­inu fram að lokun þess. Jón Ferd­ín­and er meist­ari í sagn­fræði og með BA-gráðu í stjórn­mála­fræði, meðal ann­ars með sér­á­herslu á stjórn­mála­sál­fræði popúlísma og áhrif fjár­magns á kosn­ingar í róm­verska lýð­veld­inu.

Þá hóf ljós­mynd­ar­inn Kjartan Þor­björns­son, Golli, nýverið störf hjá Heim­ild­inni. Hann sinnir mynd­rit­stjórn jafnt á vef og í blaði, sam­hliða því að sjá um ljós­myndir fyrir mið­il­inn. Golli er með reynd­ustu starf­andi frétta­ljós­mynd­urum lands­ins og hefur hlotið fjöl­mörg verð­laun fyrir störf sín. Hann starf­aði áður hjá Iceland Review.

Nýr viku­legur sjón­varps­þáttur Heim­ild­ar­innar fór auk þess í loftið 1. des­em­ber síð­ast­lið­inn og hefur verið afar vel tekið. Hann heitir Pressa og er í umsjón Aðal­steins Kjart­ans­sonar, Helga Seljan og Mar­grétar Mart­eins­dóttur, blaða­manna á Heim­ild­inni. 

Þátt­ur­inn er sendur út í beinu streymi í gegnum vef Heim­ild­ar­innar í hádeg­inu á föstu­dögum og verður aðgengi­legur áskrif­endum. Um er að ræða þjóð­mála­þátt þar sem fjallað verður um mál­efni líð­andi stundar, en þátt­ur­inn er sendur út sama dag vik­unnar og prentú­gáfa Heim­ild­ar­innar berst áskrif­endum í hverri viku. 

Fleiri nýj­ungar verða kynntar áskrif­endum á næstu vikum og mán­uðum.

Lestur að Heim­ild­inni jókst mikið við aukna útgáfu­tíðni síð­asta vor. Í Reykja­vík mæld­ist Heim­ildin mest lesna blað borg­ar­innar ásamt Morg­un­blað­inu og var mun­ur­inn innan skekkju­marka. Á lands­vísu lesa nú að með­al­tali 14,2 pró­sent Heim­ild­ina í hverri viku, sam­kvæmt könn­unum Gallup. 

Hægt er að ger­ast áskrif­andi á vef­slóð­inni heim­ildin.is/askrift.

Kjósa
71
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Heimildin og Samstöðin er helsta aðhaldið á fjölmiðlamarkaði í dag. Vonandi að fólk sjái sér fært að tryggja starfsemi þeirra sem reyna að standa í lappirnar. Ég er altént með áskrift hjá báðum og ætla að gera áfram.
    10
  • Jóhannes Baldvinsson skrifaði
    Of miklar spillingarfréttir gera mann dofinn. En það verður að tryggja að allt sem hefur verið birt í Stundinni, Kjarnanum og nú Heimildinni verði alltaf aðgengilegt sama hvernig fer með útgáfu miðilsins. Takk fyrir ykkar störf.
    10
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár