Þyngri mál og fleiri sem hringja í Hjálparsíma Rauða krossins

Aukin aðsókn hefur verið í þjón­ustu Hjálp­ar­síma Rauða kross­ins 1717 það sem af er ári miðað við árið í fyrra. Starfs­fólk segir aukn­ing­ar­innar einkum hafa verið vart upp á síðkastið. Samtölum tengdum barna­vernd­ar­málum hefur fjölgað um 41%.

Vanlíðan
Vanlíðan Verk­efna­stjóri hjá Hjálp­ar­síma Rauða kross­ins segir þennan tíma árs vera mörgum erf­iður. Mynd: Shutterstock

Hjálp­ar­sími Rauða kross­ins 1717, hefur tekið á móti rúm­lega 22 þús­und sím­tölum það sem af er ári. Er það um 18% aukn­ing frá í fyrra þegar um 19 þús­und sím­töl bár­ust. Talsmenn þjón­ust­unnar segja að mark­tæk aukn­ing hafi orðið á eft­ir­spurn í þjón­ustu þeirra síð­ast­liðna tvo mán­uði. Enn fremur sé meira um þyngri mál en vana­lega og van­líðan virð­ist hafa auk­ist.

Sandra Björk Birg­is­dóttir, verk­efna­stjóri hjá Hjálp­ar­síma Rauða kross­ins, segir að starfs­fólk hafi tekið eftir aukn­ingu á barna­vernd­ar­málum, heim­il­is­of­beldi og alvar­legum sjálfs­vígs­hugs­unum. 

Miðað við árið í fyrra hefur sam­tölum tengdum barna­vernd­ar­málum það sem af er ári fjölgað um 41% en sjálfs­vígs­sam­tölum um 23%. Aðeins minni aukn­ing varð á sím­tölum vegna félags­legrar ein­angr­unar en þeim fjölg­aði um 18%.

Langur biðtími og erfiður árstími

Sandra segir enga eina aug­ljósa ástæðu fyrir þessum aukna þunga sím­tala fyrir hendi. Senni­lega sé um marga sam­verk­andi þætti að ræða. Hún nefnir þó …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár