Stakur miði í Strætó upp í 630 krónur

Strætó til­kynnir í dag um verð­hækkun, sem nemur um 11 pró­sentum á allri gjald­skrá fyr­ir­tæk­is­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Verðið er hækkað til að draga úr þörf á því að skerða þjón­ustu Strætó á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Strætó
Strætó Verð á einum stökum strætómiða fer upp í 630 kr. eftir ára­mót. Mynd: Heiða Helgadóttir

Frá og með 8. jan­úar hækkar gjald­skrá Strætó. Einn stakur miði með gulu vögn­unum um höf­uð­borg­ar­svæðið mun þá fara úr 570 kr. upp í 630 kr., en að með­al­tali nemur hækk­unin á gjald­skránni um 11 pró­sentum.

Árskort í Strætó hækkar upp í 104 þús­und krónur, en árskort ung­menna, aldr­aðra og nema munu kosta 52 þús­und krónur. 

Þetta er önnur verð­hækk­unin sem Strætó til­kynnir um á árinu, en í sumar hækk­aði verð að með­al­tali um 3,6 pró­sent og einn miði fór sem dæmi úr 550 krónum upp í 570 krónur. 

Til­kynn­ing um hækk­un­ina barst í dag, en áform um að hækka verð eftir ára­mót hafó þá legið fyrir frá því að stjórn Strætó tók ákvörðun um hana í haust, en hún var sam­þykkt um miðjan októ­ber þegar eig­enda­fundur Strætó fór fram á vett­vangi Samtaka sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Áhrifa faraldurs gæti enn

Í til­kynn­ing­unni frá Strætó kemur fram að litið hafi verið til rekstr­ar­stöðu Strætó við ákvörð­un­ina og að upp­safn­að­ara áhrifa vegna heims­far­ald­urs­ins gæti enn í rekstr­inum. 

„Verð­hækk­unum er einnig ætlað að mæta almennum kostn­að­ar­verðs­hækk­unum hjá Strætó sem og hærri launa­kostn­aði og draga úr þörf á frek­ari hag­ræð­ingu í leið­ar­kerfi Strætó á höf­uð­borg­ar­svæð­inu,“ segir í til­kynn­ingu Strætó.

Tekjur undir því sem eigendur stefna að

Eig­enda­stefna Strætó mælir fyrir um að far­gjalda­tekjur standi undir 40 pró­sentum af kostn­aði við rekst­ur­inn. Tekj­urnar hafa þó verið nokkuð fjarri því að standa undir því und­an­farin ár.

Jóhannes Svavar Rún­ars­son fram­kvæmda­stjóri Strætó sagði við Heim­ild­ina fyrr á árinu að hlut­fall far­gjalda af kostn­aði hefði hæst farið í 35 pró­sent á und­an­förnum árum, og að þrátt fyrir met­fjölda inn­stiga í vagna hefðu far­gjalda­tekjur Strætó ein­ungis staðið undir tæpum 30 pró­sentum af rekstr­ar­kostn­aði félags­ins á fyrstu mán­uðum árs­ins.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár