Með skýra sýn úr hinum stóra heimi

Magnús Hall­dórs­son skrifar um ævi­sögu eina stjórn­ar­manns­ins í skráðu félagi á Íslandi, Magnúsar Gúst­afs­sonar, sem skrifuð er heil bók um fyrir kom­andi jól.

Með skýra sýn úr hinum stóra heimi
Guð­mundur Magn­ús­son sagn­fræð­ingur skrif­aði bók­ina sem ber heitið „Með skýra sýn“. Mynd: Samsett

Ísland er hluti af hinum stóra heimi og á allt undir því að hafa greiðan aðgang að honum með vörur og þjón­ustu. Þetta þekkja fáir betur í íslensku atvinnu­lífi en Magnús Gúst­afs­son. Hann er eini stjórn­ar­mað­ur­inn í skráðu félagi hér­lendis sem skrifað er um heil bók fyrir þessi jól - Með skýra sýn - sem Guð­mundur Magn­ús­son, blaða­maður og sagn­fræð­ingur, skrif­aði. 

Bókin er skemmti­leg og mik­il­vægt inn­legg í unga sögu atvinnu­lífs­ins - ekki síst fyrir okkur sem þekkjum ekki nægi­lega vel til þeirrar mik­il­vægu vinnu sem fór fram þegar und­ir­stöð­urnar í hag­kerfi lands­ins voru byggðar, til dæmis á árunum frá 1950 til 1980.

Bókin rekur ævin­týra­legt og merki­legt lífs­hlaup Magnúsar, sem hófst í Hlíð­ar­dal við Kringlu­mýr­ar­veg í útjaðri Reykja­víkur, árin eftir 1940. Nú, rúm­lega 80 árum síðar, er Magnús ríkur af reynslu og gefur af sér, t.d. sem hluti af ann­ars reynslu­mik­illi stjórn sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­is­ins Brims. Með honum þar situr fólk með fjöl­breytta reynslu - Anna K. Sverr­is­dóttir, Kristján Dav­íðs­son, Hjálmar Þór Krist­jáns­son og Kristrún Heim­is­dóttir. Öll eru þau með reynslu úr mörgum áttum, en hin alþjóð­lega og djúpa reynsla sem Magnús hefur er án vafa mik­il­væg í stjórn­ar­her­bergi Brims.

Sviðsljós á sjómannadaginn

Magnús fékk umtals­verða athygli í íslenskum fjöl­miðlum, á sjó­manna­dag­inn 1962, þegar hann var verð­laun­aður fyrir góðan náms­ár­angur í Vél­skól­anum. Þarna má segja að fer­ill Magnúsar taki á flug. Hann var þó kom­inn í sum­ar­vinnu til Fáskrúðs­fjarðar og tímdi ekki að fara til að vera við­staddur við­burð­inn - ferðin að Austan kost­aði sitt. Að lokum fékkst hann til þess, fyrir til­stilli mömmu sinnar

Guð­mundur sýnir lip­urð í þessum fyrstu köflum bók­ar­innar, þar sem heim­il­is­líf, mennta­vegur og mót­andi atburðir í lífi Magnúsar, eru þræddir saman. Þungbær reynsla fær þar einnig sinn part, eins og átak­an­legan barns­missi eftir að Sigfús, eins og hálfs árs gam­all sonur Magnúsar og Mar­grétar konu hans, lætur lífið í örmum mömmu sinnar vegna lækna­mistaka á Slysa­varð­stof­unni. Þetta var ungum for­eldrum erfið reynsla og lögðu þau áherslu á að það væri hægt að læra af því sem aflaga fór.

Lífið hélt áfram og það er eitt af því sem bókin rekur vel - og virð­ist sterkt karakt­er­ein­kenni á Magnúsi fyrir okkur sem ekki þekkjum hann per­sónu­lega - að Magnús heldur alltaf áfram og vill gera gagn hvar sem hann er. Annar sonur, Einar, kom í heim­inn síðla árs 1970, tæpu ári eftir hinn þung­bæra atburð, og dóttirin, Jórunn, tveimur árum síðar. 

(Einar er nú for­stjóri eins stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækis Banda­ríkj­anna, American Seafoods, og rit­aði athygl­is­verða grein í The Economist á dög­unum, um áskor­anir í sjáv­ar­út­vegi og stóru spurn­ing­una um það, hvenær hann telst sjálf­bær).

Hagræðingarráðunauturinn

Greini­legt er að reynsla sem Magnús fékk frá Vinnu­veit­enda­sam­band­inu (VSÍ) sem hag­ræð­ing­ar­ráðu­nautur hefur mikil áhrif á hann sem fag­mann. Áhugi hans á smá­at­riðum og að velta við hverjum steini til að skapa sem mest virði í rekstri reyn­ist mörgum fyr­ir­tækjum á Íslandi afar mik­il­væg á þessum tíma. Sút­un­ar­verk­smiðjan og Slát­ur­fé­lag Suð­ur­lands nutu góðs af ráð­legg­ingum Magnúsar til að bæta rekstur og vinnu­lag og inn­legg hans kallað “himna­send­ing” - enda sam­keppnin við Sam­bandið á Akureyri hörð á þessum árum. Önnur atriði eru athygl­is­verð - og fróð­legt um þau að hugsa í ljósi þró­unar atvinnu­lífs­ins - eins og mikil áhersla á end­ur­menntun stjórn­enda, nýsköpun í stjórnun og eft­ir­fylgni í rekstri. Að þessu vann Magnús ötul­lega, meðal ann­ars með Árna Vil­hjálms­syni pró­fessor.

Með þessa reynslu, um þrí­tugt 1973, tekur Magnús við sínu fyrsta for­stjóra­starfi, hjá Hamp­iðj­unni. Það var þá efni­legt fyr­ir­tæki með 160 starfs­menn en sam­keppnin við inn­flytj­endur veið­ar­færa var hörð og mik­il­vægt að halda rekstr­inum rétt stilltum. Áður en Magnús tekur form­lega við stjórn­ar­taumunum hefur Jóhannes Nordal, seðla­banka­stjóri og for­ystu­maður í íslensku þjóð­lífi ára­tugum saman, frum­kvæði að því tengja Magnús við stjórn­endur í Banda­ríkj­unum þangað sem hann fór til að afla sér reynslu á náms­styrk og var fjöl­skyldan öll með.

Mér finnst bókin sýna ágæt­lega, að þarna kviknar ein­hver neisti hjá Magnúsi - hinn stóri heimur opn­ast. Tækifæri alþjóða­væð­ing­ar­innar gera Íslandi mögu­legt að byggja upp sterkara atvinnu­líf og betri lífs­kjör. Þetta sá Magnús - og mark­aði sér feril við upp­bygg­ingu inn­viða og sölu­starfs fyrir íslenskan sjáv­ar­út­veg.

Innviðauppbygging

Til að gera langa sögu stutta - og rekja ekki öll atriði bók­ar­innar - þá er Magnús innsti koppur í búri, svo að segja, þegar Inn­við­irnir fyrir söl­una á íslenskum sjáv­ar­af­urðum voru smíð­aðir af mik­illi harð­fylgni og útsjón­ar­semi, inn á alþjóða­mark­aði. Til þess að gera þetta þurfti fólk sem var til­búið að flytja til útlanda, búa þar og starfa, ára­tugum saman. Magnús er lík­lega þekkt­astur á sínum ferli sem for­stjóri Coldwater Seafoods, Atl­antika INC og Alræð­is­maður Íslands í New York í Banda­ríkj­unum. 

En greini­legt er á frá­sögnum í bók­inni, að það sem eftir situr eftir langan feril í krefj­andi verk­efnum, eru sterk vin­áttu­bönd við fólk sem hann hefur hitt og unnið með. Til dæmis segir Guðbjörg Matth­í­as­dóttir hjá Ísfé­lag­inu í bók­inni, að jólin telj­ist varla komin fyrr en Magnús hringir á aðfanga­dag, en hann og Sigurður Ein­ars­son, fyrrum eig­in­maður Guð­bjargar sem lést langt fyrir aldur fram úr krabba­meini árið 2000, voru nánir vinir.

Hin skýra sýn - sem tit­ill bók­ar­innar um Magnús vísar til - er í hans til­viki alþjóð­leg og til vitnis um fjöl­breyti­lega reynslu úr lífi og starfi í hinum stóra heimi. Guð­mundur rekur sögu hans listi­lega vel, enda reynslu­mik­ill sagna­rit­ari og fag­maður fram í fing­ur­góma, í orðs­ins fyllstu merk­ingu.

Rödd skyn­sem­innar og reynsl­unnar í stjórn­ar­her­berg­inu hjá Brimi, heyr­ist frá Magnúsi. En mér finnst samt lík­legt að hann kom­ist á flug þegar hag­ræð­ing­ar­ráðu­naut­ur­inn í honum tekur yfir. Það er verð­mætt fyrir íslenskan sjáv­ar­út­veg að hafa hann enn í lið­inu, og saga hans á mikið erindi.

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
2
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár