Lögregla vísar rauðu glitregni yfir Bjarna til héraðssaksóknara

Mót­mæl­andi sem kastaði rauðu glimmeri yfir Bjarna Bene­dikts­son utan­rík­is­ráð­herra er til rann­sóknar vegna brota gegn ákvæðum laga sem við liggur allt að tveggja til sex ára fang­els­is­vist.

Lögregla vísar rauðu glitregni yfir Bjarna til héraðssaksóknara
Rautt regn Mót­mæl­andi sést hér kasta rauðu glimmeri yfir utan­rík­is­ráð­herra á meðan að aðrir úr hópi mót­mæl­enda stigu fram og stilltu sér upp við sviðið með stóran borða sem á stóð „Stjórn­mála­slit & við­skipta­bann á Ísrael“. Mynd: Skjáskot/RUV

Rík­is­lög­reglu­stjóri hefur sent rann­sókn og með­ferð á atviki þar sem mót­mæl­andi kastaði rauðu glimmeri yfir Bjarna Bene­dikts­son utan­rík­is­ráð­herra til emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag. 

Þar er haft eftir Kari Steinari Valssyni, yf­ir­lög­reglu­þjóni alþjóða­sviðs rík­is­lög­reglu­stjóra, að málið varði 106. og 122. grein hegn­ing­ar­laga sem snúa ým­ist að brot­um gegn vald­stjórn­inni eða að brot­um á al­manna­friði og alls­herj­ar­reglu. Við brotum gegn þeim ákvæðum liggur allt að tveggja til sex ára fang­elsi.

Atvikið átti sér stað á hátíð­ar­fundi í Háskóla Íslands fyrir sex dögum síðan, þar sem ætl­unin var að minn­ast þess að 75 ár væru liðin frá því að mann­rétt­inda­sátt­máli Sam­ein­uðu þjóð­anna var sam­þykktur. Fundinum var aflýst eftir að mót­mæl­andi, sem var hluti af hóp sem fór fram á að við­skipta­bann yrði sett á Ísrael og stjórn­mála­sam­bandi við landið yrði slitið, gekk að Bjarna, sem átti að flytja opn­un­ar­er­indi, og kastaði rauðu glimmeri yfir hann. Samtímis gengu aðrir mót­mæl­endur fram og strengdu mót­mæla­borða þar sem skila­boð þeirra komu fram. 

Við­burð­ur­inn var skipu­lagður af for­sæt­is­ráðu­neyt­inu og utan­rík­is­ráðu­neyt­inu í sam­vinnu við Alþjóða­mála­stofnun og Mann­rétt­inda­stofnun Háskóla Íslands. Myndbönd af atvik­inu birt­ust fljót­lega í fjöl­miðlum. Hér að neðan má sjá eitt slíkt sem birt­ist á Instagram-reikn­ingi No Borders með skila­boð­unum: „Stjórn­mála­sam­bands­slit og við­skipta­bann á fasíska aðskiln­að­ar­ríkið Ísrael sem nú fremur hrotta­legt þjóð­ar­morð á Palest­ínu­fólki! Á meðan Ísland á í stjórn­mála­sam­bandi og stundar við­skipti við Ísrael þá veitir það fjár­hags­legan stuðn­ing og sam­þykkir þjóð­ar­morð!“

Gagnrýndi RÚV harðlega

Bjarni skrif­aði færslu á Facebook um atvikið síð­ast­lið­inn laug­ar­dag þar sem hann sagði að hann hafi ekki ætlað að ræða atvikið sér­stak­lega, þar sem hann hefði ekki orðið fyrir neinum skaða. Auk þess hall­ist hann að því að þegar fólk fremji skemmd­ar­verk, sem hann telji atvikið vera enda hafi ráð­stefnan verið slegin af, sé best að gera því ekki hærra undir höfði en efni standa til. Annað gæti verkað sem hvatn­ing fyrir við­kom­andi til að halda áfram eða ganga lengra. 

Hann hafi þó gert und­an­tekn­ingu í þetta skiptið þar sem tólf ára dóttir hans hafi séð umfjöllun RÚV á sam­fé­lags­miðl­inum TikTok um málið og spurt hann út í það. 

Í færsl­unni gagn­rýndi hann RÚV harð­lega og sagði að ekki væri hægt að halda því fram að opin­bera fjöl­miðla­fyr­ir­tækið hefði brugð­ist mót­mæl­endum. „Margrét K. Blöndal, sú sem tók yfir ráð­stefn­una ásamt öðrum, og hróp­aði yfir alla við­stadda ávarp sem hún hafði und­ir­búið, tryggði sér við­tal í fyrstu frétt. Þar gat hún af yfir­vegun og í róleg­heitum rætt um gjörn­ing­inn sem eðli­leg­asta hlut og haldið áfram með boð­skap sinn á besta frétta­tíma. Upptaka þeirra sem stóðu að gjörn­ingnum var birt sem aðsent efni og end­ur­tekið spilað atvik þar sem skvett var yfir mig rauðu efni, sem lands­menn takast nú á um hvort kalla á glimmer eða glans­duft.“

Hann gagn­rýndi einnig það að RÚV hefði útbúið efni til birt­ingar á TikTok, það sem dóttir hans síðan sá. „Þar er hin dramat­íska skvetta sem tekin var upp af mót­mæl­endum send út af Rík­is­út­varp­inu á sam­fé­lags­miðl­inum. Við TikTok-frétt­ina eru athuga­semdir skrif­aðar af fjöl­mörgum. Ein þeirra er þessi: ,,...henda sýru en ekki glimmeri á BB næst takk...". Það mátti gera ráð fyrir að barnið spyrði hvað átt sé við en maður fer að velta fyrir sér, þegar maður les svona lagað á vef sem Rík­is­út­varpið heldur úti, hvenær ástæða er til að staldra við.“

Þegar Ísland sat hjá

Gagnrýni á Bjarna á rætur sínar að rekja til 27. októ­ber en þá studdu 120 ríki til­lögu á alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna um vopna­hlé á Gaza og 14 greiddu atkvæði gegn henni. Alls 45 ríki sátu hjá, þar á meðal Ísland. Sú ákvörðun var tekin af Bjarna.

Ákvörðun Íslands að sitja hjá var harð­lega gagn­rýnd víða á sam­fé­lags­miðlum og ann­ars­staðar í sam­fé­lag­inu. Bjarni tjáði sig um málið í færslu á Facebook þar sem hann ítrek­aði að sendi­nefnd Íslands á alls­herj­ar­þing­inu hafi kallað skýrt eftir mann­úð­ar­hléi til að tryggja taf­ar­lausa mann­úð­ar­að­stoð til óbreyttra borg­ara á Gaza. Á fund­inum hefði Jórdanía lagt fram ályktun um ástandið á svæð­inu fyrir hönd ríkja Araba­hóps­ins, en álykt­unin hafi ekki verið bind­andi. „Ísland studdi álykt­un­ina að því gefnu að breyt­ing­ar­til­laga Kanada yrði sam­þykkt, þar sem hryðju­verk Hamas yrðu jafn­framt for­dæmd. Samstaða náð­ist ekki um það á þing­inu og sat Ísland því hjá ásamt á fimmta tug ríkja, þar á meðal Bret­landi, Þýska­landi, Hollandi, Danmörku, Svíþjóð, Finn­landi og Eystra­salts­ríkj­unum. Það er miður að ekki hafi náðst sam­staða á þing­inu um að for­dæma hryðju­verk.“

Þessi afstaða leiddi til mik­illa deilna innan rík­is­stjórnar Íslands þar sem Vinstri græn voru mjög óánægð með ákvörðun Bjarna. Ein birt­ing­ar­mynd þess var að tveir þing­menn Vinstri grænna til­kynntu að þær myndu vera á með­al flutn­ings­manna á þings­álykt­un­ar­til­lögu um að Ís­land styðji vopna­hlé á Gaza, að rík­is­stjórn­in for­dæmi árás­ir Ísra­els­hers á óbreytta borg­ara og á borg­ara­lega inn­viði Palest­ínu. Til­lag­an gekk þvert á af­stöðu ut­an­rík­is­ráð­herra gagn­vart mál­inu. Sú til­laga var á end­anum ekki tekin til atkvæða­greiðslu.

Þess í stað sam­þykkti Alþingi þings­á­lykt­un­ar­til­lögu utan­rík­is­mála­nefndar þann 9. nóv­em­ber um „afstöðu Íslands vegna átaka fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs“ um að án tafar „skuli komið á vopna­hléi af mann­úð­ar­á­stæðum á Gaza-svæð­inu“ svo tryggja megi öryggi almennra borg­ara, „jafnt palest­ínskra sem ísra­el­skra“. 

Ísland studdi vopnahlé í vikunni

Á þriðju­dag voru svo greidd atkvæði á ný um ályktun á alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna um taf­ar­laust vopna­hlé á Gaza. Sú ályktun var sam­þykkt með 153 atkvæðum, þar með talið atkvæði Íslands. 

Ísland var með­flutn­ings­að­ili til­lög­unnar um vopna­hléið sem greitt var atkvæði um og þótt álykt­unin sé ekki bind­andi þá sýndi hún, að mati Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra, vilja meiri­hluta aðild­ar­ríkj­anna 193. Alls sátu 23 ríki hjá og tíu greiddu atkvæði gegn til­lög­unni.

Katrín sagði í færslu á Facebook að það væri nauð­syn­legt að vopna­hléið raun­gerð­ist taf­ar­laust.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Það er sárt að við fáum ekki raunsanna mynd af því sem ísraelar hafa aðhafast áður en þessi viðbjóður hófst. Stærstu fréttaveiturnar eru jú ''þróuðuríkja,, megin og þar af leiðandi sannleikurinn kæfður.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár