Lögreglumaðurinn sem þóttist vera blaðamaður laus allra mála

Lög­reglu­mað­ur­inn Gísli Jökull Gíslason villti á sér heim­ildir þegar hann reyndi að kom­ast að því hver stóð að baki list­gjörn­ingi þar sem namibíska þjóðin var beðin afsök­unar á fram­göngu Samherja þar í landi. Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vís­aði máli Gísla Jökuls til rann­sóknar hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara þar sem hún var siðan felld niður.

Sendi tölvupóst
Sendi tölvu­póst Gísli Jökull vissi ekki hver var við­tak­and­inn þegar hann sendi tölvu­póst og þótt­ist vera fríl­ans blaða­maður. Mynd: mbl/Júlíus Sigurjónsson

Embætti hér­aðs­sak­sókn­ara hefur fellt niður rann­sókn á máli lög­reglu­manns­ins Gísla Jökuls Gísla­sonar sem þótt­ist vera sjálf­stætt starf­andi blaða­maður þegar hann reyndi að kom­ast að því hver stóð að baki gjörn­ingnum „We´re Sorry“ í vor. Hann villti þannig á sér heim­ildir þegar hann sendi tölvu­pósta á Odd Eystein Frið­riks­son, sem þekktur er undir lista­manns­nafn­inu Odee. Verkið var útskrift­ar­verk­efni hans frá Lista­há­skóla Íslands.

Gísli Jökull stað­festi í sam­tali við Heim­ild­ina í júlí að hann hefði hvorki aflað heim­ildar yfir­manna sinna áður en hann sendi umrædda tölvu­pósta, né hefði hann skráð sam­skiptin í mála­skrá lög­reglu, LÖKE

Þegar blaða­maður Heim­ild­ar­innar hafði sam­band við Gísla Jökul til að ræða við hann um nið­ur­fell­ingu emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara á rann­sókn­inni sagði hann: „Ég hef ekki lyst á að tala við Heim­ild­ina“ áður en hann lagði á.

Dulbúinn gjörningur

…

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár