Kristjana býr í Úkraínu: Litlu börnin hafa lært að bregðast við loftárásum

Krist­jana Aðal­geirs­dóttir er búsett í Kænu­garði þessa dag­ana. Hún segir að þar geisi stríðið enn af fullum krafti og mik­il­vægt sé að gleyma Úkraínu ekki að þrátt fyrir önnur átök í heim­inum. Hún segir Úkra­ínu­menn búa yfir miklum styrk og menn­ing­ar­lífið sé mikið í Kænu­garði.

Stríðsátök
Stríðs­á­tök Yfir­gefin barna­kerra við ónýta brú sem lá á milli Kænu­garðs og bæj­ar­ins Irpin. Brúin var sprengd upp í upp­hafi stríðs­ins til að koma í veg fyrir fram­gang rúss­neska hers­ins. Síðar var ný brú byggð. Hana má sjá á hægri hlið. Mynd: Kristjana Aðalgeirsdóttir

Krist­jana Aðal­geirs­dóttir er stödd í Úkraínu á vegum Alþjóða­hreyf­ingar Rauða kross­ins um þessar mundir. Þar vinnur hún að hús­næð­is­málum fyrir flótta­menn og þá sem hafa misst heim­ili sín í stríð­inu. „Það á bæði við um end­ur­upp­bygg­ingu og tíma­bundið hús­næði,“ útskýrir hún í sam­tali við Heim­ild­ina. Er þetta í annað skiptið sem Krist­jana starfar í land­inu, en hún var þar um tíma á síð­asta ári. 

Enn geisar stríð í Evrópu miðri

Krist­jana segir mik­il­vægt að muna að stríðið geisi og að átökin séu enn í fullum gangi. „Þótt það sé annað stríð í heim­inum þá breytir það ekki þeirri stað­reynd að Úkra­ínu­menn hafa þurft að þola mikil stríðs­á­tök,“ segir hún. Að hennar sögn hefur þjóðin staðið sig ótrú­lega vel í þessum erf­iðu kring­um­stæðum. 

Sprengju­brotÍ Irpin, bæ stað­settan 21 km frá Kænu­garði, blasa við ummerki eftir sprengjur.

…

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár