Ósátt við að landspítali.is vísi á umdeilt einkarekið heilbrigðisfyrirtæki

„Við stöndum alls ekki fyrir þessu,“ segir fram­kvæmda­stjóri Intuens, einka­rek­ins heil­brigð­is­fyr­ir­tækis sem selt hefur umdeildar heil­skimanir, en vef­slóðin land­spít­ali.is vísar fólki ekki inn á vef­síðu Land­spít­al­ans, heldur Intuens, við mikla óánægju for­svars­fólks spít­al­ans.

Vefslóð
Vefslóð Fram­kvæmda­stjóri Intuens segir að teng­ingin sé ekki á vegum fyr­ir­tæk­is­ins. „Við höfum enga hug­mynd um hvernig þetta gerð­ist og við viljum gjarnan losna við þetta.“

Þegar vef­slóðin land­spít­ali.is (með í en ekki i) er slegin inn í vafra lendir fólk ekki inni á heima­síðu Land­spít­al­ans heldur er því beint inn á heima­síðu einka­rekna seg­u­l­ómun­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Intuens. For­svars­menn Land­spít­al­ans og Intuens segj­ast vilja losna við teng­ing­una.

Andri Ólafsson, upp­lýs­inga­full­trúi Land­spít­al­ans, segir spít­al­ann vera afar óánægðan með þetta. Hann seg­ist hafa kom­ist á snoðir um málið nýlega og það sé nú komið inn á borð hjá net­ör­ygg­is­sveit­inni CERT-IS. Mun sveit­inni vera gert að slíta teng­ing­unni og kanna hvaða aðilar standa að baki því að síðan vísi fólki á annað heil­brigð­is­fyr­ir­tæki en Land­spít­al­ann. Andri segir að brýnt þyki að brugð­ist verði við eins fljótt og hægt er. Spít­al­anum þyki þetta óboð­legt.

Steinunn Erla Thorlacius, fram­kvæmda­stjóri Intuens, segir í sam­tali við Heim­ild­ina að fyr­ir­tækið hafi fyrst frétt af teng­ing­unni í gær. Hún þver­tekur fyrir að hún sé á þeirra vegum. „Við stöndum alls ekki fyrir þessu. Við höfum …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár