Birta Björnsdóttir hættir sem varafréttastjóri RÚV

Birta Björns­dóttir mun hætta sem annar vara­f­rétta­stjóri RÚV um ára­mótin. Ragn­hildur Thorlacius verður eft­ir­maður hennar í starfi.

Birta Björnsdóttir hættir sem varafréttastjóri RÚV
Frétta­maður Birta seg­ist vilja ein­blína á deild erlendra frétta.

Birta Björns­dóttir mun hætta sem vara­f­rétta­stjóri á frétta­stofu RÚV um ára­mótin. Þetta stað­festir Heiðar Örn Sig­finns­son í sam­tali við Heim­ild­ina. Hann vildi þó ekki tjá sig um hvaða ástæður lægju þar að baki.

Birta segir í sam­tali við Heim­ild­ina að þetta sé skipu­lags­breyt­ing að hennar eigin frum­kvæði. Hún verði áfram á frétta­stofu RÚV sem yfir­maður erlendra frétta. En því starfi sinnti hún áður sam­hliða vara­f­rétta­stjórn­inni. „Erlendar fréttir eru það sem ég hef mestan áhuga á og ég vil fá meiri tíma til að sinna þeim. Í ljósi þess hvernig heim­ur­inn er núna er mik­il­vægi erlendra frétta gríð­ar­legt,“ segir Birta. Hún segir enn fremur að deild erlendra frétta eigi það skilið að vera sinnt almenni­lega. 

Birta tók við starfi vara­f­rétta­stjóra snemma árs í fyrra ásamt Valgeiri Erni Ragn­ars­syni. Það gerð­ist í kjöl­far þess að Heiðar Örn, sem áður var vara­f­rétta­stjóri frá árinu 2017, var ráð­inn frétta­stjóri RÚV. Valgeir Örn …

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár