Neytendur gætu greitt með nýjum hætti innan árs

Árum saman hefur Seðla­bank­inn talað fyrir því að óháð inn­lend smá­greiðslu­lausn verði tekin í notkun. Bankinn vill að almenn­ingur geti greitt fyrir vörur og þjón­ustu með öðrum hætti en með greiðslu­kortum eða reiðufé. Af hverju? Hvernig stendur sú vinna og hvernig kemur þessi nýja lausn til með að hafa áhrif á neyt­endur? Gunnar Jak­obs­son vara­seðla­banka­stjóri gerði sitt besta til að útskýra þetta á manna­máli fyrir les­endum Heim­ild­ar­innar.

Neytendur gætu greitt með nýjum hætti innan árs
Seðla­bank­inn Gunnar Jak­obs­son er vara­seðla­banka­stjóri fjár­mála­stöð­ug­leika. Hann segir mik­il­vægt að ný greiðslu­lausn verði notuð af ein­hverjum hluta almenn­ings, ekki sé ásætt­an­legt til fram­tíðar að nær allar greiðslur á Íslandi fari fram með greiðslu­kortum sem noti erlenda inn­viði. Mynd: Golli

Ný smá­greiðslu­leið gæti verið inn­leidd á Íslandi, jafn­vel seint næsta haust eða í upp­hafi næsta vetrar. Samstaða hefur nú náðst um það hjá inn­láns­stofn­unum og Seðla­bank­anum að þróa svo­kall­aða reikn­ing í reikn­ing-lausn til að auð­velda neyt­endum að kaupa vörur eða þjón­ustu í stað­greiðslu, án þess að nota þurfi greiðslu­korta­inn­viði VISA eða Mastercard.

Fyrir neyt­and­ann myndi lausn af þessu tagi lík­lega vera í formi apps í síma, sem hægt væri að nota til að greiða versl­unum fyrir vörur eða þjón­ustu með beinni milli­færslu inn á reikn­ing. Þetta yrði þá sam­bæri­leg þjón­usta og MobilPay í Danmörku, Swish í Svíþjóð og Blik í Póllandi, svo dæmi séu nefnd. 

Fyrir Seðla­bank­ann og stjórn­völd, sem nú leggja fram frum­varp sem veitir Seðla­bank­anum heim­ild til þess að skylda aðila á fjár­mála­mark­aði til að taka þátt í þessu, snýst málið um öryggi og við­náms­þrótt greiðslu­miðl­unar á Íslandi. 

Hlið­ar­á­hrifin gætu svo orðið þau að ódýr­ari val­mögu­leiki við …

Kjósa
30
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár