Flugumferðarstjórar nýta verkfallsréttinn í sjötta sinn á níu árum

Arn­ar Hjálms­son, for­maður Fé­lags íslenskra flug­um­ferðar­stjóra segir að það sé aldrei auð­velt að boða til verk­falla. Hann mætir þó bjart­sýnn á næsta fund með Samtökum atvinnu­lífs­ins sem haldin er klukka þrjú í dag.

Flugumferðarstjórar nýta verkfallsréttinn í sjötta sinn á níu árum
Formaður Verkfall flug­um­ferð­ar­stjóra hófst í nótt með með verk­stöðvun sem varði frá fjögur í nótt til tíu í fyrra­málið og fresta þurfti fjöl­mörgum flug­ferðum. Arnar Hjálms­son er for­maður stétt­ar­fé­lags þeirra. Mynd: RÚV

Arn­ar Hjálms­son, for­maður Fé­lags íslenskra flug­um­ferðar­stjóra segir að það sé aldrei auð­velt að boða til verk­falla, „hvað þá síður að horfa upp á það verða að veru­leika.“ 

Verkfall flug­um­ferð­ar­stjóra hófst á klukkan fjögur í gærnótt eftir að fundi samn­inga­nefnda Félags íslenskra flug­um­ferð­ar­stjóra og Samtaka atvinnu­lífs­ins lauk án samn­ings í gær­kvöldi. Vinnu­stöðv­unin hafði umtals­verð áhrif á flug þús­unda ferða­langa. Viðræður milli Félags flug­um­ferð­ar­stjóra og Samtaka Atvinnu­lífs­ins munu fara fram í dag klukkan þrjú í dag. 

Spurður um það hvort hann sé von­góður fyrir næsta fund seg­ist Arnar öllu jafna mæta bjart­sýnn á fund­ina, „en von­góður svona á miðað við hvernig þessu lauk í gær? Já já eigum við ekki bara leyfa okkur að vera það? Við sjáum hvernig þetta þró­ast,“ segir Arnar. 

Flóknar viðræður framundan

Viðræður milli Félags flug­um­ferð­ar­stjóra og Samtaka Atvinnu­lífs­ins hafa gengið erf­ið­lega fyrir sig. Fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins hefur gagn­rýnt fram­göngu flug­um­ferð­ar­stjóra og sagt að aðgerð­irnar gætu skemmt fyrir vinnu við að koma á nýrri þjóð­ar­sátt á meðal allra aðila á vinnu­mark­aði, sem sé vanda­samt verk á þessum tímum vegna hárrar verð­bólgu og stýri­vaxta.

Spurður út í þessa gagn­rýni seg­ist for­mað­ur­inn vera mót­tæki­legur fyrir því að hlusta á og ræða þá gagn­rýni, bætir við að það sem fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins virð­ist ekki hafa áttað „sig á í byrjun er að við erum enn þá í síð­ustu samn­ingslotu. Við erum að senda út þessa skamm­tíma­samn­inga núna fyrir okkar félags­menn. Það var upp­leggið, sem að aðrir sömdu um fyrir tæpu ári síðan. Við erum í raun síð­astir í þeirri lotu. Hvort að okkar útspil skemmi fyrir því, það verður bara að koma í ljós,“ segir Arnar.

Heild­ar­launFlug­um­ferð­ar­stjórar eru með um 1,5 millj­ónir króna á mán­uði að með­al­tali í heild­ar­laun. Inni í þeirri tölu er þó tölu­verð yfir­vinna.

Þá tekur Arnar fram að Félag flug­um­ferð­ar­stjóra hafi opnað á þann mögu­leika að gera samn­ing til lengri tíma en þær við­ræður hafi ekki náð langt. Meðal ann­ars, vegna þess að Samtök atvinnu­lífs­ins gátu ekki sam­þykkt þau skil­yrði sem flug­um­ferð­ar­stjórar settu fyrir lengri samn­ing. 

Flugumferðarstjórar  hafa boðað til verkfalls sex sinnum á níu árum

Sigríður Margrét Odds­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, hefur bent á að á síð­ast­liðnum fimm árum hafi flug­um­ferð­ar­stjórar boðað til þriggja verk­falla. Árið 2021 sam­þykktu þeir að beita verk­falls­að­gerðum, sem var aflýst nokkrum dögum áður en til vinnu­stöðv­unar kom. Árið 2019 boð­aði FÍF til vinnu­stöðv­unar í formi þjálf­un­ar­banns sem gilti um alla félags­menn sem starfa hjá Isavia.

Þá beittu flug­um­ferð­ar­stjórar verk­falls­að­gerðum þrjú sumur í röð milli áranna 2014 og 2016,  með því að boða til yfir­vinnu­banns. Árið 2016 sam­þykkti Alþingi að setja lög á verk­fall flug­um­ferð­ar­stjóra þar sem áfram­hald­andi verk­falls­að­gerðir voru bann­aðar og gerð­ar­dómur skip­aður til þess að skera úr um kjara­deil­una.  

Laun og kjör flugumferðarstjóra þykja góð

Sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá Hag­stofu Íslands eru grunn­laun þeirra sem starfa við flug­um­sjón 915.000 krónur á mán­uði. Meðaltal reglu­leg heild­ar­laun, eru reglu­leg laun að við­bættum launum fyrir mælda yfir­vinnu, tæp­lega ein og hálf milljón krónu á mán­uði. 

Spurður út í umræðu sem farið hefur stað um laun flug­um­ferða­stjóra segir Arnar að hafa verði í huga þá miklu yfir­vinnu sem flug­um­ferða­stjórar sinna og segir ráða­menn hjá Isavia geta vottað til um það.

Til sam­an­burðar voru föst laun nýráð­inna flug­þjóna, árið 2020, í kringum 290 þús­und krónur á mán­uði með vakta­á­lagi. Flug­þjónar með tíu ára starfs­reynslu voru með rétt yfir 400 hund­ruð þús­und krónur á mán­uði.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár