Sóknargjöld hækkuð milli umræðna og verða 3,4 milljarðar

Þjóð­kirkjan gerði athuga­semd við það að lækka ætti sókn­ar­gjöld, sem renna að stærstum hluta til hennar, og stjórn­ar­þing­menn í efna­hags- og við­skipta­nefnd hafa brugð­ist við.

Sóknargjöld hækkuð milli umræðna og verða 3,4 milljarðar
Biskup Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir hefur verið biskup Íslands frá árinu 2012. Hún mun láta af emb­ætti á kom­andi ári. Mynd: Heiða Helgadóttir

Meiri­hluti efna­hags- og við­skipta­nefndar, sem er skip­aður nefnd­ar­mönnum Sjálf­stæð­is­flokks, Vinstri grænna og Fram­sókn­ar­flokks, leggur til að sókn­ar­gjöld verði hækkuð um 240 millj­ónir króna frá því sem lagt var til í fjár­laga­frum­varp­inu þegar það var kynnt í sept­em­ber. Verði breyt­ingin sam­þykkt, sem er afar senni­legt, munu sókn­ar­gjöld sem ríkið greiðir á hvern ein­stak­ling verða 1.192 krónur líkt og þau voru á þessu ári. Sú ákvörðun, að hækka sókn­ar­gjöldin upp í áður­nefnda krónu­tölu úr 1.055 krónum, var ákveðin af stjórn­ar­flokk­unum í fjár­laga­nefnd í fyrra milli umræðna um fjár­lög og átti að vera tíma­bundin. Nú, ári síðar, hefur hækk­unin verið end­ur­nýjuð.

Ákvörðun nefnd­ar­innar mun gera það að verkum að sókn­ar­gjöld næsta árs verða tæp­lega 3,4 millj­arðar króna í stað þess að verða rúm­lega 3,1 millj­arður króna. 

Fer að mestu leyti til þjóðkirkjunnar

Trú- og lífs­­­­skoð­un­­­­ar­­­­fé­lög hér á landi fá sókn­­­­ar­­­­gjöld greidd fyrir hvern skráðan ein­stak­l­ing, 16 ára og eldri. Sá …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • VSE
    Virgil Scheving Einarsson skrifaði
    Rikisrekið Trufelag er timaskekkja, þetta er ekki i takkt við timann. Rikið leggur Þjoðkirkju til 10.000 Miljonir af Almanna fe. Þvi fe væri betur varið i aðra brina hluti
    Þaug Trufelög sem Mest kveður að i aðstoð við illa statt Folk eru Hjalpræðisherinn við Suðurlandsbraut Þeir eru með Matsal sem rumar 500 mans i Hadegis verð.
    Sama er hja Samhjalp þeir eru a svipuðum Notum með Hadegisverð. Rikið a að Veita þessum aðilum eitkvað af Þeirri Fulju sem Fer i Þjoðkirjgu. Þessi Hjalpar samtök eiga HEIÐUR skilin fyrir sin Goðu VERK.
    0
  • Kristbjörn Árnason skrifaði
    Ég vissi ekki betur en að ég greiddi mín sóknargjöld sjálfur og hef gert frá 16 ára aldri. Þessi gjöld mín koma ekki úr ríkissjóði, bara svo því haldið til haga.

    En stjórnvöld hafa alveg frá því eftir hrun klipið af þessum gjöldum sem ég greitt sem mín félagsgjöld til þjóðkirkjunnar.

    E.t.v. hefur notað það sem þau hafa hirt ófrjálsri hendi af mínum sóknargjöldum til að styrkja ýmis fyrirtæki í landinu sem þau hafa dálæti á. Alveg nýlega ákváðu stjórnvöld að styrkja útgerð og fiskvinnslu enn frekar í samvinnu við ESB
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár