Verðbætur hækkuðu námslán um 33 milljarða á tveimur árum

Námslán hækk­uðu að með­al­tali um hálfa milljón króna vegna verð­bólgu á árunum 2021 og 2022.

Verðbætur hækkuðu námslán um 33 milljarða á tveimur árum
Áhyggju­laus Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir telur enga ástæðu til að grípa til aðgerða vegna þess að höf­uð­stóll náms­lána hafi hækkað mikið, enda hald­ist greiðslu­byrði þorra þeirra eins. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Með­al­skuld þess sem skuld­aði náms­lán hækk­aði um 150 þús­und krónur árið 2021 og um 350 þús­und krónur í fyrra vegna auk­innar verð­bólgu. Alls hækk­uðu náms­lánin um 11,3 millj­arða króna vegna verð­bóta sem lögð­ust á höf­uð­stól þeirra á árinu 2021 og um 21,9 millj­arða króna á árinu 2022, eða sam­tals um 33,2 millj­arða króna. Þetta kom fram í svari Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra við fyr­ir­spurn Gísla Rafns Ólafs­sonar, þing­manns Pírata, um málið. 

Í árs­reikn­ingi Mennta­sjóðs náms­manna vegna árs­ins 2022 kemur fram að heild­ar­um­fang útlána hans fyrir var­úð­ar­færslu á afskrift­ar­reikn­ing var um 268 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót. Því nema verð­bæt­urnar sem bætt­ust við á höf­uð­stól­inn á tveimur árum um 12,4 pró­sent af heild­ar­skuldum lán­tak­enda við sjóð­inn. Búast má við því að umtals­verðar við­bót­ar­verð­bætur hafi bæst við á árinu 2023, enda verð­bólga hald­ist há og stendur enn í átta pró­sentum. 

268
millj­arðar króna
…
Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Þótt námslán og önnur lán hafi hækkað í krónum talið, er raunveruleikinn sá, að það er krónan sem hefur rýrnað, en lánin haldið verðgildi sínu.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár