Spáir gulleitri slikju yfir borginni um helgina

Veðurspá er góð og því líkur á svifriks­mengun með köfn­un­ar­efn­ist­ví­ildi sem myndar gula slikju yfir borg­inni, að sögn veð­ur­fræð­ings. Ein ástæðan er jóla­ösin.

Spáir gulleitri slikju yfir borginni um helgina
Bílarnir í borg­inni Ólíkt fyrri svifryks­bylgjum hausts­ins, sem stafað hafa af fokefnum á hálendi Íslands, verður mengun helg­ar­innar af rótum bíla­um­ferðar. Mynd: Getty images

Horfur eru á gul­leitri slikju og svifryks­mengun yfir höf­uð­borg­ar­svæð­inu um helg­ina vegna bíla­um­ferðar, að sögn Einars Svein­björns­sonar veð­ur­fræð­ings. Ástæðan er yfir­vof­andi hæg­viðri.

Nú þegar mælist vax­andi mengun á Grens­ás­vegi. Gulleiti lit­ur­inn teng­ist köfn­un­ar­efn­ist­ví­ildi, sem kemur með útblæstri jarð­efna­elds­neyt­is­bif­reiða.

Aðstæður fyrir loft­mengun eru full­komnar nú þegar loft er þurrt, raka­stig aðeins um 50% til 60% og vind hreyfir lítið.

„Nú eru hins vegar allar líkur á því að vindur verði hægur, austan and­vari eða allt að því logn. Nú síð­degis á fimmtu­degi er hann reyndar þegar orð­inn hægur,“ segir Einar á Facebook-síðu sinni og bendir á að loft­mengun mælist nú þegar vax­andi. 

„Um leið og dregur úr loft­blöndun kemur auk­inn styrkur fram á mæli fyrir svifyk á mæli­stöð­inni við Grens­ás­veg. Að auki kólnar heldur og frystir. Þá mynd­ast hita­hvarf við jörðu - það er annar þáttur sem dregur úr loft­blöndun.“

Jólaösin verður einn drif­kraftur meng­un­ar­innar. „Í umferð­inni sem lík­lega verður umtals­verð frá morgni til kvölds næstu daga og einnig í ösinni um helg­ina, má alveg reikna með að svifryks­mengun verði í hærri kant­inum. Ekki síður kofn­un­ar­efn­ist­ví­ildi, en sú loft­teg­und myndar gul­leitu slikj­una saman með svifryk­inu.“

Í aðstæðum sem þessum er gjarnan gefin út við­vörun til leik­skóla­barna og fólks með við­kvæm önd­un­ar­færi, sem og almenn­ings alls um að forð­ast heilsu­rækt utandyra, sér­stak­lega nærri umferð­ar­æðum.

Einar býst við því að ástandið vari fram á mánu­dag eða þriðju­dag, þegar fer að blása að nýju og raki berst úr suð­vestri.

Í haust hefur mátt rekja svifryks­mengun til fokefna af hálend­inu. Svifryks­meng­unin hefur því verið af nátt­úru­legum orsökum. Annað er uppi á ten­ingnum núna. „Svifrykið nú um helg­ina verður hins vegar alfarið frá umferð­inni og vit­an­lega einnig NO2 loft­teg­undin sem verður til við bruna elds­neytis. Ekki síður er vert að fylgj­ast með mæl­ingum á henni.“

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Gísli Gíslason skrifaði
    slykja => slikja
    0
  • Reynir Vilhjálmsson skrifaði
    Þessi grein vekur athyggli á hættu sem steðjar að borgarbúum. Ergilegt finnst mér þetta leiðinlega orð köfnunarefnistvíildi. Í kennslubókum um efnafræði er þetta efni kallað köfnunarefnisoxíð enda vonlaust að kenna ungmennum að segja ildi í stað súefnis. Ég nota orðið köfnunarefnisoxið en það er samheiti yfir nokkur efni. Reynt hefur verið að nota orðið nitur í staðinn fyrir köfnunarefni og ber það nokkurn árangur enda er það all gott orð. Í greininni ætti að geta þess að köfnunarefnisdíoxíð er eitrað og mjög skaðlegt heilsu.
    2
    • Geir Gudmundsson skrifaði
      Maður hefur líka heyrt bara "NOx", en köfnunarefnisoxíð nær oft yfir bæði NO2 og NO.
      (e. nitrogen oxides)
      https://malid.is/leit/K%C3%B6fnunarefnisox%C3%AD%C3%B0
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár