Skatturinn byrjaður að taka skilagjaldsskussa „í nefið“

Minni aðilar á drykkj­ar­vöru­mark­aði söfn­uðu upp tug­millj­óna skuldum við rík­is­sjóð vegna ógreidds skila­gjalds. Skatt­ur­inn er nýlega búinn að stór­bæta inn­heimtu sína í þessum málum. „Eins og staðan er núna er verið að taka þá alla í nefið,“ segir fram­kvæmda­stjóri End­ur­vinnsl­unnar. Hann vill ekki segja frá því hvaða fyr­ir­tæki er um að ræða.

Endurvinnsla
End­ur­vinnsla Helgi Lárusson er fram­kvæmda­stjóri End­ur­vinnsl­unnar hf. Mynd: mbl / Eggert Jóhannesson

Nokkrir aðilar á drykkj­ar­vöru­mark­aði hafa safnað skuldum við rík­is­sjóð út af ógreiddu skila­gjaldi á síð­ustu árum. Sam­an­lagt höfðu tug­millj­óna króna skuldir safn­ast upp áður en Skatt­ur­inn byrj­aði herða sig við inn­heimt­una, segir Helgi Lárusson, fram­kvæmda­stjóri End­ur­vinnsl­unnar, í sam­tali við Heim­ild­ina.

Samkvæmt reglu­gerðum þurfa þeir sem flytja inn drykki í skila­gjalds­skyldum umbúðum, eða fram­leiða slíka drykki hér á landi, að standa skil á skila­gjaldi til rík­is­sjóðs.

Skila­gjaldið að við­bættum umsýslu­kostn­aði og virð­is­auka­skatti rennur svo frá rík­is­sjóði til End­ur­vinnsl­unnar til þess að hægt sé að end­ur­greiða skila­gjaldið til neyt­enda sem safna dósum og skila þeim á end­ur­vinnslu­stöðvar. Skila­gjaldið er komið upp í 20 krónur á hverja flösku eða dós.

Heim­ildin heyrði af því að ein­hverjir fram­leið­endur hér­lendis væru búnir að hlaða upp skuldum við ríkið vegna skila­gjalds­ins og það stendur heima. Helgi segir hins vegar að nú sé lík­lega búið að taka á flestum þessum málum. 

„Það …

Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár