Lengi voru fjármunir, völd og réttur í höndum karlmanna, oft þeirra eldri, einkum ef þeir komu af ættum, sem höfðu í gegnum ár og aldir tryggt sína stöðu og forréttindi í þjóðfélaginu með því að sölsa undir sig lönd, góss og aðrar eignir, oftar en ekki með vopnavaldi.
Framsókn kvenna
Á seinni hluta nítjándu aldar fóru kvenskörungar í vaxandi mæli af stað með kröfugerð, fyrst, um rétt til að greiða atkvæði um hverjir skyldu fara með völdin og stjórna, og svo, eða jafnhliða, um það, að geta boðið sig fram til setu á þingi.
Á Norðurlöndum riðu Finnar á vaðið með fullan kosningarétt kvenna 1906, Norðmenn 1913, Danir 1915 og við Íslendingar komum svo með óvenjulegan kosningarétt kvenna, líka 1915. Bara fyrir 40 ára og eldri. Svisslendingar fóru varlega í sakirnar, veittu konum fyrst fullan kosningarétt 1971.
Aðrir baráttuhópar fyrir auknum réttindum
Í millitíðinni hafa alls kyns hópar háð baráttu fyrir stöðu sinni og réttindum í þjóðfélaginu, og bar þar framan af hæst barátta hinsegin fólks fyrir sínum réttindum.
Margvísleg önnur réttindabarátta hefur verið í gangi: Baráttan fyrir rétti til menntunar, launa og lífskjara, velferðar og öryggis, sjúkraþjónustu og nú, síðast, fyrir rétti kvenna til að fá frið fyrir áreiti karla, nema ef/þegar þær vilji og þeim þóknast. METOO.
Lögmál frumskógarins
Í harðri samkeppni um velferð og völd í þjóðfélaginu gildir oft einfalt lögmál: Þeir sterku verða ofan á og þeir veiku, þeir sem minna mega sín, verða undir.
Ellin laskað skeið
Þegar menn eldast og standa andspænis ellinni, með öllu því, sem henni fylgir, færast yfir sjálfa sig, ættingja, vini og aðra samferðarmenn, opnast augun fyrir því, betur en áður, að ellin er laskað lífsskeið fyrir mörgum.
Á margan hátt verður staðan auðvitað verst, ef andleg heilsa og geta bila. Hvernig eiga menn þá að bjarga sér í gegnum þann brimgarð kvaða og skyldna, sem þjóðfélagið leggur þeim á herðar?
Réttur hins sterka
Á síðustu árum hefur undirritaður horft upp á það, hvernig eldri borgarar hafa, hvað eftir annað, setið eftir, þegar þeim fjármunum, sem þjóðfélagið hefur til skiptanna, hefur verið útdeilt.
Hér kemur auðvitað að því, sem áður var nefnt; lögmál frumskógarins. Yngri kynslóðir virðast jafnan hafa tilhneigingu til að skammta sér fyrst. Fatlaðir, sjúkir og aldnir koma svo aftar á merinni.
Framlag eldri borgara grundvöllur velferðar
Ef menn fara um stræti og torg þorpa og bæja, eða um sveitir landsins vítt og breitt, blasa við innviðir - margvísleg verk manna og mannvirki; vegir, brýr, hafnir, flugvellir, virkjanir, gróðursvæði og skógar, skólar, sjúkrahús og byggingar hvers konar - sem yngri kynslóðirnar, ráðandi kynslóðir, nota sér og nýta til síns lífs og allra athafna; til sinnar velferðar.
Að verulegu leyti eru það eldri borgararnir, sem lögðu alla þessa innviði af mörkum, gerðu yngri kynslóðunum fært að njóta lífsins í þeim mæli, sem þeir gera, með löngu og miklu vinnuframlagi, útsjónarsemi og úrræðum, svo og sínum skattagreiðslum.
Eftir 50 ár skyldum fullnægt og skuld greidd
Að mati undirritaðs, hafa borgarar landsins jafnað skyldur sínar og skuld við samfélagið, við/eftir 50 ára vinnu- og skattaframlag, og, þá sé tími til kominn, þegar menn verða 75 ára, að þeir fái frið fyrir fjárhagslegri kröfugerð og framlagi til samfélagsins.
Á þessum grundvelli, vil ég leggja fyrir þá hugmynd og tillögu, að, þegar 75 ára aldri er náð, verði skattaskyldur við þjóðfélagið felldar niður. Fyrir alla. Menn greiði þó áfram fjármagnstekjuskatt, en á bak við hann stendur jafnan nokkur eða verulegur auður.
Betra líf, lækkun heilbrigðiskostnaðar og örvun hagkerfisins
Ólafur Ólafsson, fyrrverandi landlæknir, og margir aðrir sérfræðingar í aldurs- og heilsumálum, hafa sett fram þá skoðun, að, ef betri afkoma eldri borgara og réttur til áframhaldandi starfs þeirra, sem áfram vilja og geta starfað, væri tryggður, myndi það stórbæta almennt heilsufar þessa hóps, sem nú telur alls um 50.000 manns, og draga úr álagi og kostnaði við heilbrigðisþjónustuna, í verulegum mæli. Gæti sá fjárhagslegi ávinningur numið milljörðum á ári.
Ætla má líka, að allir eldri borgarar, sem vettlingi geta valdið, myndu nýta aukin fjárráð til eyðslu og neyzlu - flestir vita, að þeir fara ekki með neitt með sér - og myndi niðurfelling beinna skatta, á 75 ára og eldri, skila sér í aukinni neyzlu, sem um leið þýddi ákveðna viðbótar grósku fyrir efnahagslífið og auknar skatta- og virðisaukaskatttekjur frá verzlun, þjónustu og atvinnulífinu öllu.
Jöfnun tekjumissis hins opinbera
Skattlagning er viðkvæmt en nauðsynlegt mál. Þar verður jafnan að stíga varlega og yfirvegað til jarðar. Ein tegund skattlagningar er þó fyrir mér ekki jafn viðkvæmt mál og aðrar; erfðafjárskatturinn.
Þar er sá, sem verðmætin átti, farinn í annan heim. Hans hagsmunir á þessari blessuðu jörð að engu orðnir. Erfingjar, stundum vandalitlir eða vandalausir, eiga fyrir mér lítinn siðferðislegan rétt til erfðafjárins. Ekki hafa þeir búið fjármunina til, eða lagt mikið til við myndun þeirra. Oftast alla vega ekki.
Hagfræðideild Háskóla Íslands hefur reiknað út fyrir undirritaðan, hvað þetta skattleysi 75 ára og eldri myndi kosta opinbera aðila. Með hóflegri hækkun á erðfafjárskatti mætti dekka þessa tekjuskerðingu opinberra aðila.
Skattleysi 75 ára og eldri gegn erfðafjárskatti; hvað gæti passað betur saman!? Eins og flís við rass!
Höfundur á í viðræðum við Viðreisn um að þau taki upp málið; skattleysi fyrir 75 ára og eldri
Skattleysi 75 ára+ gegn hátekjuskatti!
Það eru ekki alltaf miklar eignir á bakvið erfðaskattinn.