Sennilega eini framleiðandinn í heiminum sem gerir geitaskyr

Í Skriðdal er fram­leiddur geita­ostur undir heit­inu Geita­gott. Um 90 pró­sent fram­leiðsl­unnar er seldur til ein­stak­linga og veit­inga­staða á Aust­ur­landi. Eftir að hafa kom­ist í kynni við ítalskan osta­gerð­ar­mann er osta­bónd­inn farin að fram­leiða ost sem lík­ist Mozarella.

Vörurnar
Vörurnar Fram­leiðslan á ost­inum, aðal­lega feta­osti, hófst fyrir alvöru í miðjum far­aldri. Mynd: Geitagott

Þorbjörg Ásbjörns­dóttir, betur þekkt sem Obba, er bóndi á Lynghóli í Skriðdal. Árið 2014 varð henni að ósk sinni að eign­ast geitur, eftir að hún og dóttir hennar höfðu suðað um það í langan tíma við eig­in­mann Obbu sem var í fyrstu ekki alveg á þeim bux­unum. Fyrst voru geit­urnar fjórar en eru nú orðnar 37 tals­ins og Obba orðin geita­osta­fram­leið­andi með meiru nú tæpum tíu árum síðar. 

Obba fram­leiðir geita­ost­inn undir heit­inu Geita­gott og hefur fengið afar góðar við­tökur. Hún segir að þau hjónin hafi nú ekk­ert vitað almenni­lega hvað ætti að gera við geita­mjólk­ina eftir að hafa byrjað að mjólka geit­urnar. En það voru þó hæg heima­tökin að fá góð ráð varð­andi það. „Skóla­bróðir minn, hann Þor­grímur á Erps­stöðum, er algjör frum­kvöð­ull er kemur að mjólk­ur­vinnslu heima á bæ. Hann setti upp nám­skeið fyrir mig og nokkra aðra þar sem við lærðum fyrstu skrefin í osta­gerð. Ég próf­aði svo að gera feta­ost sem hefur verið svona uppi­staðan í því sem við höfum fram­leitt. Í fyrstu fékk ég leyfi til að fram­leiða í eld­hús­inu í félags­heim­il­inu hér í sveit­inni, vildi sjá hvort ég myndi sinna þessu og fíla þetta, það fór svo. Þá fékk ég leyfi til að gera þetta hérna heima, svo hef ég bara verið að lesa mér til um þetta, horfa á mynd­bönd á Youtube og þetta vindur svona upp á sig,“ segir Obba.

Fengu leyfi í miðjum faraldri

Að sögn Obbu hófust þessar til­raunir með osta­gerð­ina í kringum árið 2018 og fengu þau hjónin svo fram­leiðslu­leyfi og mjólk­ur­sölu­leyfi árið 2020, í miðjum heims­far­aldri. Obba seg­ist selja 90 pró­sent af afurð­unum til ein­stak­linga og veit­inga­staða á Aust­ur­landi. Feta­ost­ur­inn spilar þar stórt hlut­verk, hún selur þrjár gerðir í krukkum til neyt­enda og svo kaupa veit­inga­staðir af henni í meira magni og nota ost­inn í ýmsa rétti.

„Ég hef gert skyr og jógúrt og ég veit ekki betur en að ég sé eini fram­leið­and­inn í heim­inum sem gerir geita­skyr, það er gaman að segja frá því! Það hefur verið vin­sæl vara og taka veit­inga­staðir það hjá mér og nota þetta í stað­inn fyrir gríska jógúrt, til dæmis í sósur. Kost­ur­inn við geita­mjólk­ina umfram kúa­mjólk­ina er að hún inni­heldur ekki laktósa, það eru glúkósar í geita­mjólk­inni og það er kostur,“ segir Obba.

Obba fékk styrk í fyrra til vöru­þró­unar og seg­ist hafa verið svo heppin að kom­ast í kynni við ítalskan osta­gerð­ar­mann sem búi á Egils­stöðum. Hún segir að hann hafi kennt sér ýmis­legt þannig að í dag sé hún með gerð af osti sem er meira þrosk­aður. Þann ost gerði Obba fyrst í vor og fór að selja hann síð­ast­liðið haust við góðar við­tökur. Það er greini­lega ýmis­legt í far­vatn­inu í osta­gerð­inni á Lyngdal því Obba hefur einnig hafið fram­leiðslu á öðrum osti í sam­ráði við Ítalann, ost sem hún líkir við Mozarella sem end­ist þó betur og lengur.

Líkur MozarellaEftir að hafa kom­ist í kynni við ítalskan osta­gerð­ar­mann hóf Obba fram­leiðslu á osti sem svipar til Mozarella.

„Fólk sendir mér bara skila­boð og pantar. Ég anna í raun og veru ekki eft­ir­spurn eftir meiru en ég er að gera fyrir fólk hérna fyrir austan, á bara mjólk í það sem ég geri núna. En ég fer nú að auka við þetta. Ég er með mjög góða þjón­ustu fyrir fólk, ég kippi bara ost­inum með mér og skil hann eftir á hurð­ar­húnum hjá þeim sem hafa pantað, þetta er svo frjáls­legt hérna í sveit­inni. Svo erum við dug­leg að fara á mark­aði og einnig kemur það fyrir að fólk bankar líka bara hér upp á og spyr hvort ég eigi ost,“ segir Obba.

Geitur sem gera mannamun

Obba segir að geitur séu skemmti­leg dýr, miklir karakt­erar sem geri mik­inn manna­mun.

Skemmti­leg dýrGeitunum hefur fjölgað mikið sam­hliða því að fram­leiðslan hefur auk­ist.

Að hennar sögn þarf þó að temja þær og seg­ist Obba setja þær alltaf inn á kvöldin og mæta þær sjálfar á milli klukkan 18 og 19 á blett­inn fyrir utan bæinn og bíði þar. „Ef ég er ekki til­búin að setja þær inn þá, t.d. ef ég er ekki heima eða upp­tekin, þá leggj­ast þær bara á blett­inn hérna fyrir utan, þær eru miklar tíma­kell­ingar, vilja hafa allt á réttum tíma. Svo fara  þær oft sínar eigin leiðir, þú þarft bæði að hafa húmor fyrir vit­leysu og hafa gaman af þeim, svo þær geri þig ekki alveg galna. Ef þú hugsar að þær séu eins og kindur, þá verð­urðu alveg vit­laus á þeim, þetta eru mjög ólík dýr,“ segir Obba og hlær. 

Það eru miklar annir núna í osta­gerð­inni, aðal­lega vegna fjölda mark­aða og jól­anna. „Fólk er farið að gefa mikið af mat­vöru í stað­inn fyrir að kaupa eitt­hvert drasl út í búð sem fer svo í geymslu. Það er gaman að sjá hvað er að verða mikil gróska í þess­ari hand­verks­mat­ar­gerð á Íslandi og það er eitt­hvað sem ég held að sé komið til þess að vera. Þetta er unnið hér heima, það er ekk­ert kolefn­is­spor og megnið af þessu er svo selt í næsta nágrenni,“ segir Obba að lokum.

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár