Lögreglan keypti byssur fyrir 165 milljónir fyrir leiðtogafundinn

Dóms­mála­ráð­herra neitar að upp­lýsa um fjölda skot­vopna sem eru í eigu íslenska rík­is­ins. Hún segir að birt­ing slíkra upp­lýs­inga opin­ber­lega geti „stofnað öryggi rík­is­ins í hættu og haft áhrif á öryggi lög­reglu­manna.“

Lögreglan keypti byssur fyrir 165 milljónir fyrir leiðtogafundinn
Dóms­mála­ráð­herrar Jón Gunn­ars­son var dóms­mála­ráð­herra þegar leið­toga­fund­ur­inn fór fram í maí. Síðan þá hefur Guðrún Haf­steins­dóttir tekið við því ráðu­neyti. Mynd: Heiða Helgadóttir

Það er mat dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins og rík­is­lög­reglu­stjóra að nákvæmar upp­lýs­ingar um fjölda skot­vopna í eigu lög­regl­unnar falli undir lykil­upp­lýs­ingar varð­andi við­bragðs­getu lög­reglu. Ekki sé því rétt að birta slíkar upp­lýs­ingar opin­ber­lega „þar sem það geti haft afdrifa­ríkar afleið­ingar, stofnað öryggi rík­is­ins í hættu og haft áhrif á öryggi lög­reglu­manna.“ 

Þetta er meðal þess sem fram kemur í svari Guðrúnar Haf­steins­dóttur dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Arndísar Önnu Krist­ín­ar­dóttur Gunn­ars­dóttur um kaup á vopnum og varn­ar­bún­aði í aðdrag­anda leið­toga­fundar Evr­ópu­ráðs­ins sem haldin var í Reykja­vík í maí síð­ast­liðnum. Guðrún var ekki dóms­mála­ráð­herra þegar fund­ur­inn fór fram. Þá sat Jón Gunn­ars­son, flokks­bróðir hennar, í því emb­ætti.

Þar er þó upp­lýst um að alls hafi verið keypt vopn fyrir 165 millj­ónir króna fyrir leið­toga­fund­inn. „Þau vopn sem keypt voru voru einkum Glock G-17 9x19GEN5 NS 9 mm skamm­byssur og hálf­sjálf­virkar 9 mm MP5A5 og MP5KSF einskots­byssur. [...] Þá voru tvær aðrar teg­undir vopna keyptar til að styrkja sér­sveit rík­is­lög­reglu­stjóra.“

Lögregla keypti líka ýmsan annan búnað vegna örygg­is­ráð­staf­ana sem tengd­ust fund­inum. „Hjálmar voru keyptir fyrir um 47 millj­ónir króna frá TST Protection LTD. Lög­reglu­vesti voru keypt frá fyr­ir­tækj­unum Lindner­hof og Hiss fyrir tæpar 56 millj­ónir króna. Keypt var gas fyrir u.þ.b. 5,5 millj­ónir króna.“

Unnið er að loka­upp­gjöri á kostn­aði vegna örygg­is­gæslu á fund­inum. Gert er ráð fyrir að end­an­legt kostn­að­ar­mat liggi fyrir á næstu vikum.

Heildarkostnaður um tveir milljarðar

Það mat ráðu­neyt­is­ins og rík­is­lög­reglu­stjóra að það sé ekki rétt að birta nákvæm­lega upp­lýs­ingar um  byggir, sam­kvæmt svar­inu, á breyttum for­sendum hvað varðar þjóðar­ör­yggi. „Staðan í öryggis- og varn­ar­málum Evrópu hefur tekið miklum breyt­ingum frá því í febr­úar 2022 og það er mat emb­ættis rík­is­lög­reglu­stjóra að verði slíkar upp­lýs­ingar gerðar opin­berar geti það haft nei­kvæð áhrif á öryggi rík­is­ins. Þá má minn­ast á það að und­an­farin miss­eri hefur orðið umtals­verð fjölgun brota á Íslandi þar sem hnífum er beitt og vopna­til­kynn­ingum til lög­reglu hefur fjölgað veru­lega. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra hefur alvar­legum ofbeld­is­brotum og vopn­uðum útköllum lög­reglu og sér­sveitar lög­reglu fjölgað veru­lega síð­ustu ár. Má sem dæmi nefna að fjöldi útkalla þar sem sér­sveit vopn­ast vegna egg­vopna hefur nærri fjór­fald­ast frá árinu 2016.“ 

Þá sé einnig rétt að benda á að umhverfið á Íslandi hefur breyst hvað vopna­burð og skot­vopn varðar, en mikil fjölgun hafi „orðið í inn­flutn­ingi hálf­sjálf­virkra og sjálf­virkra skot­vopna sem flutt hafa verið inn á grund­velli safn­ara­leyfis.“

Í júní var birt svar þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn Bergþórs Ólasonar, þing­manns Mið­flokks­ins, um kostnað við leið­toga­fund­inn. Þá sagði að end­an­legur raun­kostn­aður myndi liggja fyrir á „næstu vikum“ en að áætl­aður heild­ar­kostn­aður við fund­inn væri um tveir millj­arðar króna. 

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Sjallarnir eru tilbúnir fyrir næstu búsáhaldabyltingu. Altént breyta 9mm skotvopn ekki vörnum á alþjóðavísu þannig að sá partur rökfærslunnar er kjaftæði.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár