Séra Friðrik áreitti dreng sem bjó við hliðina á KFUM-húsinu á Akranesi

KFUM og KFUK láta nú safna saman sögum þolenda séra Friðriks Frið­riks­sonar, stofn­anda sam­tak­anna. Tvö dæmi eru um hegðun hans gagn­vart drengjum á Akranesi. Einn þol­and­inn var seinna dæmdur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tveimur stúlkum á barns­aldri.

Séra Friðrik áreitti dreng sem bjó við hliðina á KFUM-húsinu á Akranesi
Enn eitt dæmið Dæmin um áreitni séra Friðriks Frið­riks­sonar á drengjum eru nú orðin nokkur. Hér sést styttan af séra Friðriki við Amt­manns­stig í Reykja­vík sem ákveðið hefur verið að fjar­lægja í ljósi upp­lýs­inga um áreitni hans gagn­vart drengjum. Mynd: Shutterstock

„Ég get ekki borið á móti því,“ segir eft­ir­lif­andi eig­in­kona manns, sem á barns­aldri lenti í séra Friðriki Frið­riks­syni, stofn­anda KFUM og KFUK á Íslandi. Heim­ildin hefur upp­lýs­ingar um að séra Friðrik hafi áreitt mann­inn þegar hann var barn á Akranesi og spurði kon­una að þessu. Maðurinn, sem fæddur var á fjórða ára­tug síð­ustu aldar, lést árið 2018. Hann verður ekki nafn­greindur að beiðni fjöl­skyldu hans. 

Þetta til­felli á Akranesi bæt­ist við ört stækk­andi hóp drengja sem heim­ildir eru fyrir að séra Friðrik hafi áreitt þegar þeir voru börn. Sú umræða kvikn­aði í kjöl­farið á umfjöllun í ævi­sögu séra Friðriks eftir Guðmund Magn­ús­son sem nýlega kom út. Þar segir Guð­mundur meðal ann­ars frá máli manns, sem nú er á gam­als aldri, sem séra Friðrik áreitti þegar hann var barn. Fjöl­miðlaum­fjöllun um bók …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sr. Friðrik og drengirnir

Davíð kallar borgarstjórn bjálfa fyrir að taka niður styttuna af Séra Friðriki
FréttirSr. Friðrik og drengirnir

Davíð kallar borg­ar­stjórn bjálfa fyrir að taka niður stytt­una af Séra Friðriki

Rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins segir upp­lýs­ingar um að Séra Friðrik Frið­riks­son, stofn­andi KFUM, hafi beitt fjöl­marga drengi kyn­ferð­is­legu áreiti og ofbeldi vera „get­gátur eins manns“ eftir að „ímynd­un­ar­afl hans fór loks í gang eftir tæp 75 ár.“ Það að stytta af honum hafi verið fjar­lægð sé merki um ofstæki þeirra sem noti hvert tæki­færi til að þykj­ast betra og pen­inga­laus­ara en annað fólk.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár