Konur úr íslenska fylliefnabransanum ósáttar við Willum: „Verið að grafa undan greininni“

Konur sem vinna í íslenska fylli­efna­brans­anum gagn­rýna harð­lega frum­varps­drög heil­brigð­is­ráð­herra og telja að frum­varpið ógni atvinnu þeirra. Nái frum­varpið fram að ganga þarf menntun í heil­brigð­is­vís­indum, helst húð­lækn­ingum eða lýta­lækn­ingum, til þess að sprauta slíkum efnum í fólk.

<span>Konur úr íslenska fylliefnabransanum ósáttar við Willum:</span> „Verið að grafa undan greininni“
Hags­muna­að­ilar „Með því að skerða atvinnu­frelsi þeirra sem hafa jafn­vel margra ára reynslu í fag­inu, sótt öll þau nám­skeið sem í boði eru tengd með­ferð efn­anna og sankað að sér yfir­grips­mik­illi þekk­ingu í sam­starfi við lækna og annað fag­fólk er verið að grafa undan grein­inni,“ segir í umsögn sem Berglind Þyrí Guð­munds­dóttir og Ýr Björns­dóttir hjá Húð­klínik­inni skrifa undir. Mynd: Facebook

Ef frum­varp Willums Þórs Þórs­sonar heil­brigð­is­ráð­herra um tak­mark­anir á með­ferðum til útlits­breyt­inga án lækn­is­fræði­legs til­gangs er sam­þykkt munu snyrti­fræð­ingar ekki lengur hafa heim­ild til þess að sprauta fylli­efnum í við­skipta­vini sína. Það verður ein­ungis læknum með sér­fræði­leyfi í húð­lækn­ingum eða lýta­lækn­ingum heim­ilt og svo öðrum heil­brigð­is­starfs­mönnum – t.a.m. öðrum læknum, hjúkr­un­ar­fræð­ingum og sjúkra­liðum – að ákveðnum skil­yrðum upp­fylltum. Þessi skil­yrði eru ekki nægi­lega skýr, að mati þeirra sem skrifa umsagnir við frum­varps­drögin. 

Þau eru við­bragð heil­brigð­is­ráð­herra við auk­inni umræðu um fylli­efni og þeim slæmu afleið­ingum sem röng með­ferð þeirra getur haft. Sem stendur eru engar reglur í gildi hér á landi um notkun slíkra efna. Frétta­skýr­inga­þátt­ur­inn Kompás fjall­aði ítar­lega um málið í lok sept­em­ber.

Ráð­herr­annFrumvarp Willums er skrifað í kjöl­far frétta af reglu­leysi í fylli­efna­brans­anum á Íslandi og þeim slæmu afleið­ingum sem það hefur í sumum til­vikum haft.

Snyrtifræðingar hafi betri þekkingu en sjúkraliðar

Frum­varps­drögin sæta tölu­verðri gagn­rýni inni á sam­ráðs­gátt stjórn­valda, ekki síst frá fólki sem mun ekki lengur vera heim­ilt að sprauta í við­skipta­vini sína fylli­efnum ef frum­varpið nær fram að ganga. Hjúkr­un­ar­fræð­ingar, snyrti­fræð­ingar og aðrir segja að ýmis ákvæði frum­varps­ins séu óskýr og að það ógni atvinnu fólks sem hefur sprautað fylli­efnum í við­skipta­vini sína í áraraðir. 

Hafrún María Zsoldos snyrtifræði­meist­ari er á meðal þeirra sem gagn­rýnir frum­varpið. 

„Vissir veit­endur þess­arar þjón­ustu hafa sótt nám­skeið hjá Land­lækn­is­emb­ætt­inu til að halda úti þjón­ustu sinni, þó þeir séu ekki heil­brigð­is­mennt­aðir í þeim skiln­ingi er reglu­gerðin gerir ráð fyrir,“ skrifar Hafrún sem telur að snyrti­fræð­ingar ættu áfram að hafa heim­ild til þess að sprauta fylli­efnum.

„Snyrti­fræð­ingar til dæmis hafa stað­góða þekk­ingu á líf­færa- og líf­eðl­is­fræði og hafa margir góða þekk­ingu og reynslu á þessu sviði, jafn­vel haldið nám­skeið fyrir lækna og hjúkr­un­ar­fræð­inga hvað varðar notkun ífar­andi fegr­un­ar­með­ferða. Þessi menntun og reynsla er yfir­leitt mjög svo hald­betri en t.d. sjúkra­liðar hafa með sinni menntun og þjálfun í almennum umönn­un­ar­störfum.“

Fylli­efniIngi­björg Hulda Jóns­dóttir og Inga Heinesen hjá Dermaklíník­inni. Ingi­björg Hulda seg­ist fagna því að koma eigi á reglu­verki en að skýra þurfi ýmis­legt í frum­varp­inu.

Telja mikilvægt að hjúkrunarfræðingar geti sótt um leyfi

Inga Heinesen og Ingi­björg Hulda Jóns­dóttir, hjúkr­un­ar­fræð­ingar og eig­endur Dermaklíník­ur­innar á Akureyri sem m.a. veitir með­ferðir með fylli­efnum, gagn­rýna einnig frum­varpið. Þær segja mik­il­vægt að skil­greina frekar hvað telj­ist full­nægj­andi menntun í líf­færa­fræði og lík­ams­bygg­ingu og hvað telj­ist full­nægj­andi við­bót­ar­menntun. 

„Auk þess þarf að liggja fyrir að hjúkr­un­ar­fræð­ingar geti sótt um leyfi hjá land­lækni fyrir starfs­stofu áður en reglu­gerðin er sam­þykkt. Sé það ekki gert eru hjúkr­un­ar­fræð­ingar sem starfa við þessa sér­grein án atvinnu,“ skrifar Inga. 

15 konur skila sömu umsögn

Athygli vekur að 15 konur skila nákvæm­lega sömu umsögn­inni um frum­varpið – þeirra á meðal Berglind Þyrí Guð­munds­dóttir og Ýr Björns­dóttir sem reka Húð­klínik­ina sem býður upp á með­ferðir með fylli­efnum. Konurnar 15 gagn­rýna frétta­flutn­ing um fylli­efni að und­an­förnu – frétta­flutn­ing um skort á reglu­verki þar sem fylli­efna­brans­inn hefur m.a. verið kall­aður „villta vestrið“ og dæmi um veru­lega slæmar nið­ur­stöður hafa verið dregin fram í dags­ljósið. 

„Ljóst er að þessi starfs­grein hefur lifað góðu lífi í ára­tugi þrátt fyrir þær hasar­fréttir sem nýlega hafa birst í fjöl­miðlum af „Villta vestri fylli­efna­heims­ins“ og full­yrð­ingar um að ísprautun fylli­efna sé „ífar­andi inn­grip“,“ skrifa kon­urnar sem telja að „grafið sé undan grein­inni“ með því að „skerða atvinnu­frelsi“ þeirra sem þegar vinna í henni og hafa sótt sér þekk­ingu um fylli­efni og með­ferð þeirra. 

Opið er fyrir umsagnir um frum­varpið til 22. nóv­em­bers næst­kom­andi. 

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Fram kemur í drögum að reglugerð að markmið þess sé að tryggja hagsmuni sjúklinga og gæði heilbrigðisþjónustu. Reglugerðin er titluð „reglugerð takmarkanir á meðferðum til útlitsbreytinga án læknisfræðilegs tilgangs“ en það liggur í augum uppi að hópurinn sem um ræðir er ekki að sækja þessa þjónustu vegna veikinda eða áverka og flokkast þar með ekki sem „sjúklingar“. Ef raunverulegt markmið þessarar reglugerðar er að, á einhvern hátt, halda hlífðarskildi yfir heilbrigðisþjónustu er æskilegt að leyfa heilbrigðismenntuðum að halda áfram að sinna störfum sínum í fjársveltum heilbrigðisstofnunum landsins – án þess að skapa umfram eftirspurn í öðrum starfsgreinum. Það er nokkuð ljóst að með því að skapa enn meiri eftirspurn eftir læknum, hjúkrunarfræðingum og sjúkraliðum í störf þeirra sem vinna við að sprauta fylliefnum í fagurfræðilegum tilgangi, hættum við á að missa enn fleiri hjúkrunarfræðinga út úr heilbrigðisstofnunum, þar sem gríðarleg vöntun er nú þegar.

    Hvernig fylliefni eru skilgreind í þessum drögum að reglugerð er ábótavant. Hvorki hugtakið „lyf“ né „lækningartæki“ nær utan um það hvað fylliefni eru og hugtakið „fylliefni“ uppfyllir ekki þau skilyrði sem tilgreind eru í skilgreiningum Lyfjastofnunnar á lyfjum eða lækningatækjum. Ef skilgreining á þeim efnivið sem unnið er með er ekki á hreinu og þekking og skilningur á honum takmarkaður, má ætla að illmögulegt sé að sníða sértakt regluverk um meðferð hans.

    Æskilegt er að þeir sem starfa við ísprauta fylliefni séu í samstarfi með lækni og/eða hjúkrunarfræðingi og að samráð milli þeirra sé reglulegt. Í 5. gr. kemur fram: „Læknum, tannlæknum, hjúkrunarfræðingum og sjúkraliðum sem búa yfir haldbærri þekkingu og reynslu er heimilt að veita meðferðir samkvæmt reglugerð þessari, undir eftirliti og á ábyrgð þeirra sem hafa heimild skv. 1. og 2. mgr.“. Illgerlegt er að átta sig á því hvað það nákvæmlega þýðir að upptaldir aðilar geti veitt meðferðir „undir eftirliti“ og enn fremur hvað flokka má sem „haldbæra þekkingu“.

    Ljóst er að þessi starfsgrein hefur lifað góðu lífi í áratugi þrátt fyrir þær hasarfréttir sem nýlega hafa birst í fjölmiðlum af „Villta vestri fylliefnaheimsins“ og fullyrðingar um að ísprautun fylliefna sé „ífarandi inngrip“. Fylliefni hafa verið notuð í yfir 40 ár, þó vinsældir þeirra hafi vissulega aukist á síðustu árum en tölfræðilegar upplýsingar um tilkynningar á alvarlegum atvikum þeim tengdum virðast ekki aðgengilegar almenningi. Í bandaríska (ritrýnda) tímaritinu Journal of Drugs in Dermatology, sem birtist í janúar 2020, má finna fræðilega samantekt þar er sérstaklega fjallað um fylliefni, notendur þeirra og áhrif en í þeirri grein er ítrekað talað um að notkun þeirra sé takmarkað inngrip (e. minimally invasive).

    Húðflúrarar og þeir sem framkvæma húðgötun, nálarstungur, fegrunarflúr og hvers konar húðrof starfa eftir reglugerð um hollustuhætti nr. 941/2002 og er markmið þess að stuðla að framkvæmd hollustuverndar og samræma heilbrigðiseftirlit. Mikilvægt er að skilgreina hvernig sú starfsemi er ólík meðferð fylliefna og hvað er því til fyrirstöðu að starfsemin sé flokkuð á sama hátt en hvorugt má telja sem mikið eða alvarlegt inngrip.

    Enn fremur mætti telja það ámælisvert að ekki sé fjallað sértaklega um afleiðingar þess að færa starfsemina algjörlega undir hatt heilbrigðiskerfisins. Samkvæmt lögum um virðisaukaskatt (nr. 50/1998) kemur fram að öll eiginleg heilbrigðisþjónusta sé undanskilin virðisaukaskatt en í dag greiða meðferðaraðilar virðisaukaskatt, lögum samkvæmt. Í ljósi umfangs aukningar starfseminnar má ætla að talsverð skerðing verði þar á tekjum ríkissjóðs.

    Æskilegt er að regluverk sé sniðið þannig að það verndi bæði neytendur og meðferðaraðila en með því að skerða atvinnufrelsi þeirra sem hafa jafnvel margra ára reynslu í faginu, sótt öll þau námskeið sem í boði eru tengd meðferð efnanna og sankað að sér yfirgripsmikilli þekkingu í samstarfi við lækna og annað fagfólk er verið að grafa undan greininni.

    Með regluverki eins og því sem hér er kynnt eykst hættan á því að starfsemin færist undan regluverki stjórnvalda yfir í svarta hagkerfið með tilheyrandi afleiðingum. Regluverkið er vissulega nauðsynlegt og eru bæði neytendur og meðferðaraðilar sammála um það en ljóst er, af þessum drögum að dæma, að nægileg þekking er ekki til staðar. Áríðandi er að stofna til samtals og samráðs við þá aðila sem í greininni starfa, óháð því hvert stig menntunar þeirra er í heilbrigðisvísindum. Menntun er menntun – óháð því hvort útskriftarskjalið sé stúdentspróf, bakkalár gráða eða diplóma – og er mikilvægt að horfa á fleiri áhrifaþætti en þá sem eru skilgreindir í opinberri námsskrá.
    0
  • Flosi Guðmundsson skrifaði
    Það er auðvitað heftandi fyrir bransann að mega ekki fúska með heilsu fólks. Það má ekkert lengur.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár