Kallar boð lánastofnana til Grindvíkinga „samfélagslega siðfirrt“

Sigríður María Eyþórs­dóttir, íbúi í Grinda­vík, gagn­rýnir lána­stofn­anir harð­lega fyrir að bjóða Grind­vík­ingum upp á fryst­ingu lána, sem felur í sér að vextir og verð­bætur falla á höf­uð­stól. „Þetta eru ekki kaldar kveðjur til okkar sem horfum inn í óviss­una, þetta er sví­virða,“ skrifar Sigríður í blaða­grein um upp­lifun sína af við­brögðum banka við krísu Grind­vík­inga.

Kallar boð lánastofnana til Grindvíkinga „samfélagslega siðfirrt“
Hamfarir Þetta hús í Grinda­vík er auð­sjá­an­lega illa farið vegna jarð­sigs.

Grind­vík­ing­ur­inn Sigríður María Eyþórs­dóttir gagn­rýnir lána­stofn­anir harð­lega fyrir þau úrræði sem bankar og líf­eyr­is­sjóðir hafa boðið Grind­vík­ingum upp á varð­andi hús­næð­is­lán sín. Í aðsendri grein á Vísi segir hún að til­boð um fryst­ingu hús­næð­is­lána Grind­vík­inga séu „falsör­læt­istil­boð“ og „sam­fé­lags­lega sið­firrt“, þar sem vextir og verð­bætur safn­ist upp á meðan.

Kallar hún eftir því í grein­inni að Alþingi og sam­fé­lagið allt beiti sé fyrir því að lán Grind­vík­inga verði fryst taf­ar­laust, án vaxta og verð­bóta­söfn­unar. Í grein­inni segir hún frá því að hún sjálf borgi 420 þús­und á mán­uði af húsi sínu í vexti og ef frysta þyrfti lánið í eitt ár myndi eign hennar rýrna um allt að fimm millj­ónir, sem síðan þyrfti að greiða vexti af í fram­hald­inu.

„Ég skora á stjórn­ar­að­stöð­una, ég skora á alþing­is­menn alla, ég skora á kirkj­una, ég skora á verka­lýðs­hreyf­ing­una, ég skora á félaga­sam­tök, ég skora á almenn­ing, ég skora á alla sem telja sig hafa sóma sem mann­eskjur að stöðva þetta ferli með öllu móti, hvort sem heldur er með mót­mælum eða laga­setn­ingum,“ segir Sigríður María í grein sinni, sem birt­ist á Vísi í morgun.

Hún segir að það sé „sár stund að átta sig á því að það væri skárri kostur að sjá eftir heim­ili sínu undir hraun eða ofan í gjótu, en að sjá það standa heilt“ en segir að hvernig sem fari virð­ist vera að Grind­vík­ingar muni missa heim­ili sín og lífs­við­ur­væri, „annað hvort í gegnum for­garð hel­vítis“ eða þá að þau verði „gleypt af hinum skrímsl­unum í mynd banka­stofn­ana“.

„Hér erum við Grind­vík­ingar, heim­il­is­laus, í fram­tíðar­ótta. Sum hver, jafn­vel mörg okkar, sjá fram á atvinnu­missi, fjár­hags­legt hrun og þurfa á sama tíma að fram­fleyta fjöl­skyldum á óör­uggum og hagn­að­ar­drifnum húsa­leigu­mark­aði um ófyr­ir­sjá­an­lega fram­tíð. Þetta eru ekki kaldar kveðju til okkar sem horfum inn í óviss­una, þetta er sví­virða. Við hús­eig­endur sem höfum varla haft bol­magn til að greiða af lánum okkar í þeim aðstæðum og vaxta­hækk­unum sem við höfum staðið frammi fyrir und­an­farið, sjáum nú fram á það að í miðjum hörm­ungum verðum við end­an­lega slegin af,“ segir Sigríður María í grein­inni.

Þingmaður Flokks fólksins ræddi um samfélagsábyrgð bankanna

Heim­ildin sagði frá því í gær að fyrstu við­brögð banka og nokk­urra líf­eyr­is­sjóða við þeirri stöðu sem uppi er væri að bjóða Grind­vík­ingum upp á fryst­ingu lána, sem felur í sér að ekki er greitt af lánum, en vextir og verð­bætur bæt­ast við höf­uð­stól.

Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir þing­maður Flokks fólks­ins tók málið upp á þingi í gær og spurði þar meðal ann­ars hvort engir af stjórn­endum bank­anna byggju yfir nokk­urri sóma­kennd og hvort þeir fyndu aldrei fyrir sam­fé­lags­legri ábyrgð sinni.

Þing­maðurÁst­hildur Lóa Þórs­dóttir gagn­rýndi banka lands­ins fyrir við­brögð sín við vanda Grind­vík­inga á þingi í gær.

„Frysting sem felur í sér að ekki er greitt af lánum en vextir og verð­bætur bæt­ast við höf­uð­stól, er verra en ekki neitt. Fólk stendur mikið verr að vígi að þess­ari fryst­ingu lok­inni en það gerir nú þegar, með skuld sem hefur hækkað og, í atburðum eins og þessum, jafn­vel með óíbúð­ar­hæfa eign sem hefur safnað á sig skuldum í vikur eða mán­uði. Þetta var ein af „lausn­unum“ sem fólki í vanda var beint í eftir hrun og það fór alltaf illa. Ef þetta til­boð bank­anna sýnir fram á og stað­festir eitt­hvað, er það það að sam­kennd, sóma­kennd og sam­fé­lags­leg ábyrgð er ekki til hjá stjórn­endum þeirra. Við sem sam­fé­lag eigum meira inni hjá bönk­unum en þetta. Þeir verða ein­fald­lega að fella niður greiðslur á þessum lánum þar til mál taka að skýr­ast. Það væri smá bragur á því og í raun það minnsta sem þeir geta gert fyrir fólk í gríð­ar­lega erf­iðum aðstæðum,“ sagði þing­mað­ur­inn í ræðu sinni, í umræðum um almanna­varna­á­standið á Reykja­nesskaga.

Kjósa
30
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnúsdóttir skrifaði
    Hvílíkt og annað eins
    0
  • Ásta Jensen skrifaði
    Bankarnir eru alltaf að verja sig. Eru þið ekki búnir að græða nóg af íbúðareigendum. Þið hljótið að synda í peningum. Sleppið Grinvíkingum við afborganir í ár án frystingar. Þau þurfa að finna nýja vinnu. Hver getur borgað 450 þús krónur á mánuði á atvinnuleysisbótum
    1
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    ÞETTA ERU BANKARNIR Í SINNI LJÓSUSTU MYND !!!!
    1
  • BK
    Breki Karlsson skrifaði
    Var sérstaklega hrifinn af greiningunni á tjónamynd Grindvíkinga.
    ."„annað hvort í gegnum forgarð helvítis“ eða þá að þau verði „gleypt af hinum skrímslunum í mynd bankastofnana“.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár