Fyrstu skref bankanna að bjóða Grindvíkingum upp á frystingu

Stóru við­skipta­bank­arnir þrír bjóða Grind­vík­ingum nú allir upp á fryst­ingu fast­eigna­lána, sem felur í sér að ekki er greitt af lánum, en vextir og verð­bætur bæt­ast við höf­uð­stól.

Fyrstu skref bankanna að bjóða Grindvíkingum upp á frystingu
Grinda­vík Fast­eigna­eig­endur í Grinda­vík geta nú þegar fryst hús­næð­is­lán sín hjá öllum stóru við­skipta­bönk­unum. Mikið og auð­sjá­an­legt tjón blasir við á sumum fast­eignum í Grinda­vík. Hjúkr­un­ar­heim­ilið Víðihlíð hefur gliðnað í sundur, eins og sjá má á þess­ari mynd.

Grind­vík­ingar sem þess óska geta fengið fryst­ingu fast­eigna­lána hjá öllum stóru við­skipta­bönk­unum þremur, sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem bank­arnir hafa veitt Heim­ild­inni. Frysting íbúða­lána felur í sér að vextir og verð­bætur hvers gjald­daga setj­ast ofan á höf­uð­stól lán­anna, en ekki þarf að greiða neitt af lán­unum á meðan fryst­ingu varir.

Ljóst er að afkoma margra Grind­vík­inga hangir í lausu lofti og það er með öllu óljóst hvenær íbúar bæj­ar­ins geta snúið aftur til síns heima. Margar fast­eignir í bænum eru stór­skemmdar og mögu­lega ónýtar, vegna áhrifa jarð­sigs, en land í vest­ur­hluta bæj­ar­ins hefur sigið um allt að einn meter. 

Bankarnir allir á sömu línu

„Margir við­skipta­vinir okkar í Grinda­vík eru með íbúða­lán. Það er ein­falt og fljót­legt að fresta afborg­unum (frysta) en hafa þarf sam­band við okkur og óska eftir því. Frestun á afborg­unum er ein­föld og fljót­leg í fram­kvæmd,“ sagði Lands­bank­inn í til­kynn­ingu á vef sínum í gær …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár