Verð í Bónus í flestum tilfellum einni krónu lægra en hjá samkeppninni

Sam­an­burður á mat­ar­körfum sýnir að hægt er að spara 350 krónur í rúm­lega 45 þús­und króna inn­kaupum með því að versla frekar í Bónus en Krónunni og 412 krónur með því að versla frekar þar en í Nettó.

Verð í Bónus í flestum tilfellum einni krónu lægra en hjá samkeppninni
Dýrtíð Mat­ar­k­arfan hefur hækkað mikið í verði síð­ustu miss­eri. Matur og drykkur er sá und­ir­liður verð­bólgu sem hækkað hefur mest síð­ast­liðið ár. Mynd: Samsett / Heimildin

Ódýrasta mat­ar­k­arfan á Íslandi kostar 45.430 krónur og hana er hægt að kaupa hjá Bónus. Hún er 0,8 pró­sent lægri en mat­ar­k­arfan í Krónunni og 0,9 pró­sent lægri en mat­ar­k­arfan í Nettó. Ef þessi hlut­föll eru þýdd yfir í krónur og aura þá þýðir það að neyt­andi sem kaupir mat­ar­körfu sem sam­anstendur af þeim 76 vörum sem bornar eru saman á heima­síðu Verð­gátt­ar­innar sparar sér 350 krónur á slíkri mat­ar­körfu með því að versla í Bónus frekar en Krónunni og 412 krónur með því að velja Bónus frekar en Nettó. 

Úttekt Heim­ild­ar­innar, sem fram­kvæmd var mið­viku­dag­inn 15. nóv­em­ber, á því verði sem aðgengi­legt er í Verð­gátt­inni, sýnir að í lang­flestum til­vikum er verð­mun­ur­inn á vörum lít­ill sem eng­inn. Af þeim 76 vörum sem til­greindar eru var Bónus með lægsta verðið í næstum öllum vöru­flokkum. Í 61 til­viki mun­aði hins vegar ein­ungis einni krónu á verð­inu hjá Bónus og því …

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Heitir þetta samkeppni ?
    0
  • JA
    Jón Arnarson skrifaði
    Þessi góða grein segir að samtrygging kaupmanna sé svo góð að einungið þurfi að hafa í huga hvert sé ódýrast að aka!
    1
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Það er þegjandi samkomulag um að Bónus stjórni gerfisamkeppninni. Eina lausnin er að ganga í ESB, taka upp evru og fá hingað erlendar verslanir og banka. Í leiðinni yrði kvótinn tekinn af LÍÚ.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár