Skjálftavirknin á Reykjanesskaganum er að mati Veðurstofu Íslands nánast óbreytt frá því í gær. Hún hefur verið stöðug síðan á föstudag. 900 skjálftar hafa mælst frá miðnætti í dag.
Skjálftavirknin á Reykjanesskaganum er dreifð um suðurhluta gangsins á milli Sundhnúks og Grindavíkur á um tveggja til fimm kílómetra dýpi.
„Enn mælist hæg minnkandi aflögun við Grindavík. Gliðnun er mest við miðju gangsins við Sundhnúk þar sem megin uppstreymissvæði kviku er talið vera,“ segir í uppfærðu mati á vef Veðurstofu Íslands.
Þar kemur fram að starfsfólk hennar muni áfram fylgjast gaumgæfilega með mælakerfinum í rauntíma, sér í lagi við Grindavík.
„Vakt Veðurstofunnar einbeitir sér sérstaklega að svæðinu í og við Grindavík og sinnir sérstakri vöktun viðbragðsaðila á staðnum sem sinna aðgerðum á staðnum.“
Athugasemdir