Félag Helga Magnússonar tapaði 2,5 milljörðum króna í fyrra

Eftir að hafa selt hlut sinn í Bláa lón­inu á árinu 2021, og hagn­ast um 3,2 millj­arða króna, þá varð mik­ill við­snún­ingur á rekstri Hofgarða í fyrra. Tapið skýrist að mestu vegna þess að hluta­bréf félags­ins lækk­uðu í virði.

Félag Helga Magnússonar tapaði 2,5 milljörðum króna í fyrra
Fjöl­miðlar Helgi Magn­ús­son hefur verið stór­tækur í fjár­fest­ingum í fjöl­miðlum á síð­ustu árum. Mesta athygli vöktu kaup hans á Frétta­blað­inu, sem hætti að koma út í lok mars á þessu ári eftir að útgáfu­fé­lag þess fór í þrot. Mynd: Torg

Hof­garðar ehf., félag í eigu Helga Magn­ús­son­ar, tap­aði rúm­lega 2,5 millj­örðum króna á árinu 2022 eftir að búið var að reikna inn 146 millj­óna króna reikn­aðan tekju­skatt vegna tap­rekst­urs, sem reikn­ast sem tekjur. Alls var rekstr­ar­tapið því nálægt 2,7 millj­örðum króna. Þetta kemur fram í nýbirtum árs­reikn­ingi Hofgarða.

Tapið skýrist að uppi­stöðu af því að virði hluta­bréfa sem Hof­garðar eiga lækk­uðu veru­lega í virði, eða um 1,6 millj­arða króna á síð­asta ári. Þá var bók­fært 409 milljón króna sölu­tap af hluta­bréfum auk þess sem Helgi færði niður kröfur um 707 millj­ónir króna. 

Sú nið­ur­færsla var vegna lána sem Hof­garðar höfðu veitt Torgi, útgáfu­fé­lagi Frétta­blaðs­ins og tengdra miðla, sem Helgi hefur átt að mestu und­an­farin ár. Torg var tekið til gjald­þrota­skipta í vor og Frétta­blaðið hætti að koma út í lok mars síð­ast­lið­ins. Alls var kröfum upp á 1,5 millj­arð króna lýst í búið. 

Lang­hæsta krafan, upp á 988 millj­ónir króna, kom frá Hof­görðum.

Til skoðunar að rifta sölu

Heim­ildin greindi frá því í byrjun júlí að ein­ungis um 100 milljón króna eignir væru á þeim tíma í þrota­búi Torgs. Síðan þá hefur Lands­prent, syst­ur­fé­lag útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins, keypt prent­vél sem notuð var til að prenta Frétta­blaðið fyrir ótil­greinda upp­hæð úr búinu auk þess sem búið reyndi að sækja um rekstr­ar­styrk í rík­is­sjóð sem ætl­aðir eru fjöl­miðlum í rekstri, en var hafnað. 

Til skoð­unar hefur verið hjá skipta­stjóra Torgs hvort ástæða sé til þess að rifta samn­ingi sem það gerði við Hofgarða í mars 2021. Þá keyptu Hof­garðar vöru­merki fjöl­miðla út úr Torgi og fyrir það seg­ist Helgi, sem var eig­andi beggja félaga, hafa greitt 480 millj­ónir króna. Auk þess keypti dótt­ur­fé­lag Hofgarða dv.is, hring­braut.is og Iceland Magazine á 420 millj­ónir króna úr þrota­búi Torgs í lok mars­mán­aðar 2023, á sama tíma og þeir til­kynntu starfs­fólki Torgs að félagið væri að fara í þrot og að útgáfu Frétta­blaðs­ins yrði hætt. Fyrir liggur að sú upp­hæð var ekki greidd í reiðufé ef miðað er við að eignir þrota­bús Torgs duga ekki fyrir for­gangs­kröfum.

Mikill hagnaður 2021 eftir sölu á hlut í Bláa lóninu

Þrátt fyrir mikið tap í fyrra eru Hof­garðar ekki á flæðiskeri statt. Félagið hagn­að­ist um 3,2 millj­arða króna á árinu 2021, þar sem meg­in­skýr­ingin var sala á sex pró­senta hlut félags­ins í Bláa lón­inu til fjár­fest­inga­fé­lags­ins Stoða á því ári. Eigið fé Hofgarða fór úr 2,9 millj­örðum króna í 5,2 millj­arða króna milli áranna 2020 og 2021 vegna þessa.

Í fyrra dróst eigið féð saman vegna ofan­greinds taps og þess að félagið borg­aði upp 500 milljón króna lang­tíma­lán. Alls var eigið fé Hofgarða 3,6 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót.

Helstu eignir félags­ins eru hluta­bréf í óskráðum félögum sem metin eru á rúm­lega einn millj­arð króna og skráð hluta­bréf og hlut­deild­ar­skír­teini í hluta­bréfa­sjóðum sem metin voru á rúm­lega 1,6 millj­arða króna í lok árs 2022. Þá átti félagið óefn­is­legar eignir sem metnar voru á 480 millj­ónir króna, en þar er vænt­an­lega um að ræða vöru­merki þeirra fjöl­miðla sem Helgi keypti út úr Torgi árið 2021 á nákvæm­lega þá upp­hæð.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár