Mynd: h4fdís

Gjaldþrota útgáfufélag Fréttablaðsins sótti um rekstrarstyrk úr ríkissjóði

Þrátt fyrir að hafa farið í þrot í vor sótti Torg, sem gaf meðal ann­ars út Frétta­blaðið og hélt úti sjón­varps­stöð­inni Hring­braut, um styrk sem veittur er úr rík­is­sjóði til starf­andi frétta­miðla á einka­mark­aði. Umsókn Torgs var hafnað, en litlar eignir virð­ast til í þrota­búi félags­ins upp í kröfur. Rekstr­ar­styrk­ur­inn, hefði hann verið veittur, hefði farið í að greiða kröfur en ekki að styrkja einka­rekna fjöl­miðlun á Íslandi.

Síðasta dag mars­mán­aðar 2023 var til­kynnt að Frétta­blaðið, dag­blað sem hafði verið frídreift inn á íslensk heim­ili síðan árið 2001, hefði komið út í síð­asta sinn. Dag­blaðið var þá komið í eigu fjöl­miðla­fyr­ir­tækis sem hét Torg og hélt einnig úti sjón­varps­stöð­inni Hring­braut, DV.is og öðrum vef­miðlum. Þangað hafði Frétta­blaðið ratað þegar athafna­mað­ur­inn Helgi Magn­ús­son og við­skipta­fé­lagar hans keyptu mið­il­inn sum­arið 2019. 

Torg var einn stærsti einka­rekni leik­and­inn á íslenskum fjöl­miðla­mark­aði. Tekjur sam­stæð­unnar voru um 2,4 millj­arðar króna á árinu 2021 en félagið var alla tíð rekið í miklu tapi. Torg fékk, ásamt útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins og Sýn sem rekur frétta­stofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgj­unnar, hæsta mögu­lega rekstr­ar­styrk úr rík­is­sjóði í fyrra, eða um 67 millj­ónir króna. Þessi þrjú fyr­ir­tæki tóku sam­an­lagt til sín 53 pró­sent af …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár