Útgáfufélag Morgunblaðsins og Sýn fengu 107 milljónir hvort í styrk úr ríkissjóði

Búið er að úthluta styrkjum úr rík­is­sjóði til einka­rek­inna fjöl­miðla. Styrkir til þeirra tveggja fjöl­miðla­fyr­ir­tækja sem fengu hæstu styrk­ina juk­ust um 61 pró­sent milli ára. Þau fengu tæp­lega 41 milljón krónum meira hvort í ár en í fyrra.

Útgáfufélag Morgunblaðsins og Sýn fengu 107 milljónir hvort í styrk úr ríkissjóði
Fengu mest Útgáfu­fé­lag Morg­un­blaðs­ins og tengdra miðla fékk hæsta styrk­inn úr rík­is­sjóði ásamt Sýn. Rit­stjórar Morg­un­blaðs­ins eru Davíð Oddsson og Haraldur Johann­es­sen. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Árvakur, útgáfu­fé­lag Morg­un­blaðs­ins, og Sýn, sem rekur frétta­stofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgj­unnar, fengu hæstu rekstr­ar­styrk­ina sem rík­is­sjóður veitir einka­reknum fjöl­miðlum árlega. Alls fengu fyr­ir­tæk­inu tvö 107,2 millj­ónir króna hvort. Það er umtals­vert hærri upp­hæð en þau fengu í fyrra, þegar greiðslur til hvors þeirra námu 66,7 millj­ónum króna. Greiðslur til Árvakurs, sem er að uppi­stöðu í eigu aðila með sterk tengsl við íslenskan sjáv­ar­út­veg, og Sýnar, sem er skráð á hluta­bréfa­markað og er að stóru leyti í eigu íslenskra líf­eyr­is­sjóða, juk­ust því um 61 pró­sent milli ára.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem Fjöl­miðla­nefnd sendi frá sér í dag. 

Tvennt hefur breyst umtals­vert frá því í fyrra. Annars vegar fór Torg, útgáfu­fé­lag Frétta­blaðs­ins og tengdra miðla, í gjald­þrot í vor en það fékk hámarks­styrkt úr rík­is­sjóði á árinu 2022. Hins vegar bætt­ust 100 millj­ónir króna óvænt við pott­inn sem úthlutað var til einka­rek­inna fjöl­miðla eftir að hætt var við að veita sjón­varps­stöð­inni N4 slíkan við­bót­ar­styrk fram­hjá almennu styrkja­kerfi í des­em­ber í fyrra. Sú fjár­veit­ing var stöðvuð eftir að aðrir fjöl­miðlar fjöll­uðu um til­raun meiri­hluta fjár­laga­nefndar til koma henni í gegn skömmu fyrir þing­lok á síð­asta ári. Til að setja þá upp­hæð í sam­hengi má benda á að styrkur til Árvakurs og Sýnar jókst sam­tals um 81 milljón króna milli ára. Miðað við það fóru átta af þeim tíu krónum sem bætt var við pott­inn til þess­arra tveggja fyr­ir­tækja.

Sótt um næstum hálfan milljarð meira en var úthlutað

Í ár bár­ust 28 umsóknir um styrk en þremur þeirra var synjað þar sem þær upp­fylltu ekki öll skil­yrði fyrir rekstr­ar­stuðn­ingi. Því fengu 25 fyr­ir­tæki rekstr­ar­stuðn­ing sem eru jafn­mörg og í fyrra. Útgáfu­fé­lag Útvarps Sögu fær styrk í ár en fékk ekki í fyrra en Torg er, líkt og áður sagði, ekki lengur á meðal þeirra sem fá styrk, enda félagið farið á haus­inn. Alls var sótt um styrki fyrir 962 millj­ónir króna en til úthlut­unar voru 470 millj­ónir króna. 

Sam­ein­aða útgáfu­fé­lagið, sem gefur út Heim­ild­ina, fékk þriðja hæsta styrk­inn eða 54,7 millj­ónir króna. Þeir miðlar sem sam­ein­uð­ust inn í það félag í upp­hafi árs, Kjarninn og Stundin, fengu sam­tals 36,8 millj­ónir króna í fyrra. Því hækk­aði greiðslan um 48,6 pró­sent milli ára en bæði félög juku fjár­fest­ingu sína í rit­stjórnum á árinu 2022. 

Myllu­setur, útgáfu­fé­lag Við­skipta­blaðs­ins, fær 33 millj­ónir króna nú sem er um átta millj­ónum króna meira en í fyrra. Tvö önnur fjöl­miðla­fyr­ir­tæki fá yfir 20 millj­ónir króna í styrk. Annars vegar Birt­ingur, sem heldur úti tíma­ritum á borð við Gest­gjafann og Hús og Híbýli en rekur ekki frétta­stofu, sem fékk um 20 millj­ónir króna úr rík­is­sjóði og bætt við sig tæpum sjö millj­ónum króna á milli ára, og hins vegar Bænda­sam­tök Íslands, sem fengu 20,8 millj­ónir króna og bættu við sig 4,1 milljón króna í styrk á milli ára. Alls hefur styrkur til Bænda­sam­tak­anna, sem eru ekki atvinnu­greina­flokkuð sem útgáfu­starf­semi heldur sem hags­muna­sam­tök, vegna útgáfu Bænda­blaðs­ins auk­ist um 8,5 millj­ónir króna á tveimur árum. 

Rit­stjórn Bænda­blaðs­ins heyrir undir útgáfu- og kynn­ing­ar­svið Bænda­sam­taka Íslands. Á heima­síðu Bænda­sam­tak­anna segir að hlut­verk þeirra sé að vera „málsvari bænda og gæta hags­muna þeirra í hví­vetna“. Meg­in­mark­mið þeirra sé að „beita sér fyrir bættri afkomu bænda, betri rekstr­ar­skil­yrðum í land­bún­aði auk þess að miðla upp­lýs­ingum og sinna fræðslu til sinna félags­manna.“

Skerðist hlutfallslega

Rekstr­ar­stuðn­ing­ur­inn getur að hámarki verið 25 pró­sent af stuðn­ings­hæfum rekstr­ar­kostn­aði umsækj­enda sem upp­fylla ýmis skil­yrði sem sett eru fyrir því að fá greitt úr pott­in­um. Lög um hann voru end­ur­nýjuð fyrr á þessu ári, en ein­ungis til tveggja ára. Auk þess fá stað­bundnir fjöl­miðlar utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins 20 pró­sent álag á upp­hæð styrks. 

Sé sótt um hærri upp­hæð en búið er að gera ráð fyrir að ráð­stafa skerð­ist hlut­fallið af rekstr­ar­kostn­aði sem fæst greitt hjá hverjum og einum umsækj­anda. Í þau skipti sem greiðsl­unum hefur verið úthlutað þá hefur ætið verið sótt um mun hærri upp­hæð en er til skipt­anna. Sá kostn­aður sem er stuðn­ings­hæfur er kostn­aður við rekstur rit­stjórn­ar. 

Samkvæmt ákvörðun úthlutunarnefndar hljóta eftirfarandi 25 fjölmiðlaveitur rekstrarstuðning árið 2023:

Leiðir skoðaðar til að minnka umsvif

Það fjöl­miðla­fyr­ir­tæki sem fær hæstu upp­hæð­ina úr rík­is­sjóði er þó ekki einka­rekið, heldur rík­is­mið­ill­inn RÚV. Samkvæmt fyr­ir­liggj­andi fjár­laga­frum­varpi mun sú upp­hæð sem RÚV fær úr rík­is­sjóði fara í rúm­lega 6,1 millj­arð króna á næsta ári og hefur þá hækkað um 1,5 millj­arða króna frá árinu 2021. 

Ástæða þeirrar miklu hækk­unar er sú að tekj­urnar sem rík­is­sjóður skammtar RÚV hækka í sam­ræmi við verð­bólgu og aukast sam­hliða því sem lands­mönnum fjölgar, en sú mikla eft­ir­spurn sem er í hag­kerf­inu eftir vinnu­afli hefur fjölgað íbúum lands­ins um tæp­lega 15 þús­und frá byrjun síð­asta árs og út júní síð­ast­lið­inn.  

Ráðherra fjöl­miðla­málaLilja D. Alfreðs­dóttir hyggst kynna fjöl­miðla­stefnu fyrir ára­mót.

Til við­bótar hefur RÚV miklar tekjur af sam­keppn­is­rekstri, aðal­lega sölu aug­lýs­inga, en þær skil­uðu 2,4 millj­örðum króna í kass­ann fyrir RÚV í fyrra. Lilja D. Alfreðs­dóttir menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra skip­aði í sumar starfs­hóp sem ætlað er að skoða mögu­legar leiðir og til­lögur til að breyta eðli og umfangi aug­lýs­inga­deildar RÚV til að minnka umsvif þess á aug­lýs­inga­mark­aði og að skoða mögu­leika á að létta líf­eyr­is­skuld­bind­ingum RÚV. Hópurinn, sem leiddur er af Karli Garð­ars­syni, fyrr­ver­andi þing­manni Fram­sókn­ar­flokks­ins, á að skila af sér til­lögum um miðjan næsta mánuð. 

Þá er í mótun fjöl­miðla­stefna fyrir Ísland innan ráðu­neyt­is­ins sem stendur til að kynna á næstu mán­uðum. Í fyr­ir­liggj­andi fjár­laga­frum­varpi er alls gert ráð fyrir að ráð­stafa tæpum sjö millj­örðum króna úr rík­is­sjóði í fjöl­miðlun. Alls 88 pró­sent þeirrar upp­hæðar fer til RÚV, um 1,4 pró­sent fer í rekstur fjöl­miðla­nefndar og það sem eftir stendur, tæp­lega tíu pró­sent, í stuðn­ing við einka­rekna fjöl­miðla. Um helm­ingur þeirrar upp­hæðar fer í að end­ur­greiða hluta af rit­stjórn­ar­kostn­aði þeirra en ekki liggur end­an­lega fyrir hvernig hinum hluta fjár­magns­ins verður ráð­stafað. Samkvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar er meðal ann­ars horft til þess að miðla við­bót­ar­fjár­hæð­inni til fjöl­miðla í gegnum skattaí­vilnun og er aðgerð­inni þannig að hluta til ætlað að hvetja fjöl­miðla til að taka upp áskrift­ar­fyr­ir­komu­lag.


Sam­ein­aða útgáfu­fé­lagið, sem gefur út Heim­ild­ina, er eitt þeirra fjöl­miðla­­fyr­ir­tækja sem nýtur opin­bers rekstr­­ar­­stuðn­­ings.
Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Axel Axelsson skrifaði
    Með blöð og aðra útgáfustarfsemi munum vér fara svo sem hér skal lýst: Hvaða hlutverk hafa blöðin valið sér nú á dögum? Þau vinna að því að æsa ástríður þær, sem nauðsynlegar eru tilgangi vorum, eða þau vinna fyrir sérhagsmuni flokkanna. Þau eru oft efnisrýr, ranglát og lygin og meirihluti lesenda hefir enga hugmynd um, að hvaða marki þau stefna í raun og veru. Vér munum beizla þau og halda fast í tauminn, vér skulum fara eins að með allt prentað mál, því hvaða vit væri í því að losa sig við árásir blaðanna en halda áfram að vera skotspónn fyrir flugrit og bækur?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár