Eitt líkhús til sölu og annað „sprungið“

Smári Sig­urðs­son, fram­kvæmda­stjóri Kirkju­garða Akur­eyrar, hefur sett lík­hús kirkju­garð­anna á sölu eða leigu. „Þetta er ekki létt­væg ákvörðun, fjarri því,“ segir Smári. Hann segir kirkju­garð­ana hafa verið í nauð­vörn síðan 2006, þegar þeir hættu að rukka not­endur um lík­hús­gjald.

Eitt líkhús til sölu og annað „sprungið“
Úr sér gengið lík­hús Líkhúsið sem Kirkju­garðar Reykja­víkur rekur er sam­kvæmt fram­kvæmda­stjór­anum úr sér gengið vegna ald­urs og auk þess allt of lítið. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Líkhús og athafna­rými hjá kirkju­görðum Akur­eyrar til sölu eða leigu. Áhuga­samir setji sig í sam­band við okkur.“ 

Svona hljóðar aug­lýs­ing frá kirkju­görðum Akur­eyrar sem hefur tekið þá ákvörðun, eins og kemur fram í aug­lýs­ing­unni, að selja eða leigja lík­húsið sem kirkju­garð­arnir starf­rækja. „Það væri óábyrgt að halda áfram rekstr­inum og eiga ekki fyrir honum,“ segir Smári Sig­urðs­son, fram­kvæmda­stjóri kirkju­garð­anna á Akureyri, í sam­tali við Heim­ild­ina og bætir við að „við treystum okkur ekki lengur til að reka þetta. Ég er nú þegar búinn að skera niður inn að beini, segja upp starfs­fólki og fresta við­haldi.“ Hann segir að fjár­hagur kirkju­garð­anna hafi farið „mjög versn­andi“ und­an­farin ár. 

Hann segir ákvörð­un­ina ekki létt­væga, „fjarri því“, en rekst­ur­inn sé og hafi verið í nauð­vörn frá árinu 2006 þegar umboðs­maður Alþingis úrskurð­aði að ekki væri laga­heim­ild fyrir því að inn­heimta lík­hús­gjald og kirkju­garð­arnir ákváðu að hætta að inn­heimta það þangað til heim­ild …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Á að einkavæða dauðann núna líka? Stofnunin hefur ekki lagaheimild fyrir að rukka líkhússgjald en einkafyrirtæki má líklega setja upp gjaldskrá að vild.
    0
    • Guðný Bjarnadóttir skrifaði
      Útfararþjónustur eru einkareknar, en hver nákvæmlega borgar fyrir rekstur líkhusa, ekki veit ég .
      0
  • Herbert Guðmundsson skrifaði
    I nauðvörn síðan 2006. Það getur varla verið að umsýslufólk útfara hafi staðið vaktina sómasamlega? Í 17 ár! Þarna er pottur mölbrotinn ... Eða á þetta eingöngu við um líkhús sem Þjóðkirkjustofnanir standa að? Trúlega ...
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár