Búnaður til að tryggja hitaveitu á Reykjanesskaga ekki til í landinu

Ekki er til­tækur nægi­legur bún­aður hér á landi sem þyrfti til að tryggja hita­veitu á Reykja­nesskaga raun­ger­ist dekkstu sviðs­myndir í tengslum við jarð­hrær­ingar á Reykja­nesskaga. Orku­mála­stjóri segir að ríkið þurfi að taka afstöðu til kaups og/eða leigu á bún­aði sem tengj­ast rekstri hita­veitu á svæð­inu eins skjótt og auðið er.

Búnaður til að tryggja hitaveitu á Reykjanesskaga ekki til í landinu
Svarts­engi Virkjun HS Orku í Svarts­engi gæti orðið fyrir skakka­föllum ef dekkstu sviðs­myndir vís­inda­manna raun­ger­ast. Í virkj­un­inni er aflað heits vatns fyrir íbúa á Reykja­nesi. Mynd: Golli

Orku­stofnun hefur, ásamt orku- og veitu­fyr­ir­tækj­unum á Reykja­nesi, unnið að því að meta búnað sem til er í land­inu sem þyrfti til að við­halda hita­veit­unni á Reykja­nesi komi til goss á Reykja­nesi. „Ríkir almanna­hags­munir eru í húfi og ljóst að ef dekkstu sviðs­myndir raun­ger­ast þyrfti við­bót­ar­bún­aður að vera til­tækur hér á landi,“ segir í til­kynn­ingu á vef Orku­stofn­unar. Núna er ekki til­tækur nægi­legur bún­aður í land­inu til að tryggja hita­veitu á Reykja­nesskaga ef Svarts­engi yrði fyrir skakka­föllum vegna jarð­hrær­inga.

Orku­stofnun segir nú unnið að grein­ingu og athugun á því hvernig nálg­ast megi slíkan búnað og meta kostnað af aðgerðum.

Upp­lýs­ingum frá Orku­stofnun, HS Orku og HS Veitum hefur þegar verið miðlað til full­trúa rík­is­stjórn­ar­innar „enda ríkir almanna­hags­munir í húfi,“ segir í til­kynn­ingu Orku­stofn­unar. Halla Hrund Loga­dóttir orku­mála­stjóri segir að ríkið þurfi að taka afstöðu til kaups og/eða leigu á bún­aði sem tengj­ast rekstri hita­veitu á svæð­inu eins skjótt og auðið er. Slík fjár­fest­ing myndi nýt­ast áfram til að tryggja orku­ör­yggi byggða lands­ins þegar upp koma bil­anir eða aðrar krefj­andi aðstæður og gæti mögu­lega stutt við orku­skiptin sé tækni sem gefur færi á því valin. Þó sé lík­legt að til að kynda þær í fyrstu þyrfti að not­ast við jarð­efna­elds­neyti og því þurfi einnig að tryggja birgð­ar­stöðu þess hér á landi.

Orku­stofnun hefur sett sig í sam­band við syst­ur­stofn­anir á Norð­ur­löndum og beðið um að farið sé yfir mögu­leika á því að bún­aður sé sendur til Íslands.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Er HS orka í erlendri eigu??
    0
  • JA
    Jón Arnarson skrifaði
    Hvaða rugl er þetta?!?!?
    Ef virkjunar eigandi hefur virkjað sér til framdráttar, þá ætti hann og að vita hver áhættan er!
    Það að gera kröfu til samfélagsins er hagnaður virðist í hættu, er til skammar.
    Er ekki þetta fyrirtæki í erlendri eigu?
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár