Samfylkingin mælist með jafn marga þingmenn og allir stjórnarflokkarnir

Sam­fylk­ingin mælist áfram sem áður langstærsti flokkur lands­ins og Vinstri græn mæl­ast með minnst fylgi allra flokka sem eiga sæti á Alþingi. Hin svo­kall­aða frjáls­lynda miðja gæti myndað þriggja flokka stjórn miðað við stöðu mála í könn­unum en rík­is­stjórnin myndi tapa 17 þing­mönnum og fá jafn marga og Sam­fylk­ingin.

Samfylkingin mælist með jafn marga þingmenn og allir stjórnarflokkarnir
Formaður Rúmt ár er síðan að Kristrún Frosta­dóttir tók við for­mennsku í Sam­fylk­ing­unni. Síðan þá hefur fylgi flokks­ins auk­ist mikið. Frá síð­ustu kosn­ingum hefur það næstum þre­fald­ast. Mynd: Sindri Swan

Miðað við nið­ur­stöðu nýjasta þjóð­ar­púls Gallup væri hægt að mynda þriggja flokka stjórn skip­aða stjórn­ar­and­stöðu­flokkum ef kosið yrði í dag

Sam­fylk­ingin, sem hefur mælst stærsti flokkur lands­ins allt þetta ár, mælist með 29,1 pró­sent fylgi sem myndi skila henni 21 þing­manni. Píratar myndu fá 10,2 pró­sent og vera þriðji stærsti flokkur lands­ins með sex þing­menn. Viðreisn, sem hefur starfað með Sam­fylk­ingu og Pírötum í borg­ar­stjórn Reykja­víkur síð­ustu tvö kjör­tíma­bil, mælist svo með 7,5 pró­sent fylgi sem myndi að óbreyttu skila þeim fimm þing­mönnum. Sam­an­lagt mæl­ast því þessir þrír flokkar, sem fengu sam­tals 26,8 pró­sent atkvæða og 17 þing­menn í kosn­ing­unum haustið 2021, nú með 46,8 pró­sent fylgi sem myndi skila þeim 32 þing­mönnum, og minnsta mögu­lega meiri­hluta sem hægt er að hafa á Alþingi. 

Þetta kemur fram í frétt RÚV um nið­ur­stöðu nýj­ustu könn­unar Gallup. 

21 á móti 21 þingmanni

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stendur nán­ast í stað milli mán­aða og mælist með 20,5 pró­sent fylgi. Það myndi þýða að þing­manna­fjöldi flokks­ins færi úr 17 í 14. Alls hefur flokk­ur­inn tapað tæpum fjórum pró­sentu­stigum af fylgi það sem af er kjör­tíma­bil­inu. Það er mun minna en sam­starfs­flokkar hans í rík­is­stjórn. Fylgi Vinstri grænna, flokks Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra, hefur rúm­lega helm­ing­ast á þeim rúm 25 mán­uðum sem liðnir eru frá síð­ustu kosn­ingum. Þá fengu Vinstri græn 12,6 pró­sent atkvæða en mælist nú með sex pró­sent fylgi sem gerir hann að fylg­is­minnsta flokknum af þeim átta sem eiga nú sæti á þingi. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, sem var sig­ur­veg­ari síð­ustu kosn­inga þegar 17,3 pró­sent kjós­enda töldu það besta að kjósa Framsókn, hefur tapað enn meira, næstum tíu pró­sentu­stigum, og mælist nú með 7,4 pró­sent fylgi. Sam­an­lagt fylgi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna, sem var 54,4 pró­sent eftir síð­ustu kosn­ingar, mælist nú 33,9 pró­sent. Það er nán­ast sama hlut­fall og styður rík­is­stjórn­ina. Að óbreyttu myndi þing­manna­fjöldi stjórn­ar­flokk­anna fara úr 38 í 21. Af þeim myndi Framsókn ein­ungis fá fjóra og Vinstri græn þrjá, eða jafn­marga þeim ráð­herrum sem flokk­ur­inn hefur í rík­is­stjórn sem stendur. Þing­manna­fjölddi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna sam­an­lagt mælist því sá sami og Sam­fylk­ingin mælist með.

Fyrir utan Sam­fylk­ing­una er Mið­flokk­ur­inn sá stjórn­ar­and­stöðu­flokkur sem hefur bætt við sig mestu fylgi, en það mælist nú 8,6 pró­sent. Flokkur fólks­ins er aðeins að hress­ast í könn­unum Gallup og mælist nú með 6,5 pró­sent, sem er þó minna en hann fékk í kosn­ing­unum í sept­em­ber 2021. Sós­í­alista­flokkur Íslands mælist með 4,1 pró­sent sem myndi ekki duga honum inn á þing.

Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ólafur Kristófersson skrifaði
    Þessar skoðanakannanir eru algert rugl, alltaf sama fólkið spurt aftur og aftur, og engir yfir sextugt.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár