Eldgos Ránar hlaut verðlaun Norðurlandaráðs

Rán Flygenring hlaut í kvöld barna- og ung­linga­bók­mennta­verð­laun Norð­ur­landa­ráðs árið 2023 fyrir bók­ina Eldgos. Danir fóru heim með kvik­mynda­verð­laun hátíð­ar­innar, Svíar með bók­mennta­verð­launin og umhverf­is­verð­launin og Finnar með tón­list­ar­verð­launin.

Eldgos Ránar hlaut verðlaun Norðurlandaráðs

„Þúsund þakkir. Milljón þakkir,“ sagði Rán Flygenring þegar hún tók við barna- og ung­linga­bóka­verð­launum Norð­ur­landa­ráðs við hátíð­lega athöfn í Óperu­hús­inu í Osló í kvöld. Rán þakk­aði einnig meðal ann­ars for­lag­inu Angústúru sem gaf bók­ina út og mömmu sinni og pabba.

Í kynn­ingu á bók­inni á vef Norð­ur­landa­ráðs segir að eld­gosið sem hófst snemma árs 2021 nærri helsta þétt­býl­is­stað Íslands hafi vakið ótta­blandna hrifn­ingu hjá börnum og full­orðnum. „Í bók­inni Eldgos er ugg­ur­inn sem þessi atburður vakti afbyggður með hjálp hvers­dag­sógna sem okkur klæjar undan. Við fylgj­umst með degi í lífi Kaktusar. Þennan dag tekur mamma hans, Brá, Kaktus með sér í vinn­una til að halda honum frá lúsafar­aldri í skól­anum. Brá starfar sem leið­sögu­maður og þau leggja af stað með fulla rútu af ferða­mönnum og skoða fjöll og nátt­úru­fyr­ir­brigði. Kaktus kemur skyndi­lega auga á nokkuð óvenju­legt út um glugg­ann: eld­gos! Brá tekur …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu