Þingflokkur Vinstri grænna andsnúinn hjásetu Íslands

Þing­flokkur for­sæt­is­ráð­herra er ósam­mála þeirri ákvörðun Íslands að greiða ekki atkvæði með til­lögu um vopna­hlé á Gaza. Ákvörðun sem Bjarni Bene­dikts­son utan­rík­is­ráð­herra varði í morgun.

Þingflokkur Vinstri grænna andsnúinn hjásetu Íslands
Ósammála Þing­flokkur Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra er ósam­mála Bjarna Bene­dikts­syni utan­rík­is­ráð­herra um þá afstöðu sem Ísland hefði átt að taka í mál­inu. Mynd: Golli

Þing­flokkur Vinstri grænna telur að Ísland hefði átt að greiða atkvæði með til­lögu sem Jórdanar lögðu fram á alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna á neyð­ar­fundi í gær­kvöldi um taf­ar­laust og langvar­andi vopna­hlé á Gaza. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu sem þing­flokk­ur­inn, sem inni­heldur þrjá ráð­herra í sitj­andi rík­is­stjórn og þar með talin Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra, sendi frá sér í dag. 

Ísland var eitt 45 landa sem sat hjá við afgreiðslu til­lög­unnar, sem var þó sam­þykkt með 120 atkvæðum gegn 14. Vert er að taka fram að til­lagan er ekki bind­andi. Í yfir­lýs­ingu þing­flokks­ins segir að hann telji að „rétt hefði verið að styðja til­lög­una sjálfa vegna umfangs mann­úð­ar­krís­unnar á Gaza. Þing­flokk­ur­inn tekur undir efni til­lög­unnar sem er í sam­ræmi við mál­flutn­ing íslenskra stjórn­valda.“

Þing­flokkur Vinstri grænna seg­ist for­dæma árásir og morð á almennum borg­urum skil­yrð­is­laust, hvar sem er í heim­inum. „Hernaður veldur gríð­ar­legu tjóni á vel­ferð fólks, stöðu og rétt­indum kvenna og barna, sem og umhverf­inu. Rétt eins og alls­herj­ar­þingið sam­þykkti krefst þing­flokkur VG þess að farið sé skil­yrð­is­laust eftir alþjóð­legum mann­rétt­inda­lögum, að almennum borg­urum sem haldið er í gísl­ingu verði skil­yrð­is­laust sleppt og leið lífs­nauð­synja verði greidd inn á Gaza taf­ar­laust. Fyrir því eiga íslensk stjórn­völd áfram að tala.“

Varði ákvörðunina

Bjarni Bene­dikts­son, utan­rík­is­ráð­herra í rík­is­stjórn­inni sem leidd er af Vinstri grænum, nálg­að­ist málið með öðrum hætti í færslu á Facebook í morgun og varði þar ákvörðun fasta­nefndar Íslands hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum um að sitja hjá. „Ísland studdi álykt­un­ina að því gefnu að breyt­ing­ar­til­laga Kanada yrði sam­þykkt, þar sem hryðju­verk Hamas yrðu jafn­framt for­dæmd. Samstaða náð­ist ekki um það á þing­inu og sat Ísland því hjá ásamt á fimmta tug ríkja, þar á meðal Bret­landi, Þýska­landi, Hollandi, Danmörku, Svíþjóð, Finn­landi og Eystra­salts­ríkj­unum. Það er miður að ekki hafi náðst sam­staða á þing­inu um að for­dæma hryðju­verk.“

Þing­flokkur Vinstri grænna er ósam­mála þess­ari nálgun. Í yfir­lýs­ingu hans segir að hann telji að „Ísland hefði átt að greiða atkvæði með til­lög­unni þótt breyt­ing­ar­til­laga Kanada hafi ekki náð fram að ganga.“

Sú ákvörðun Íslands að sitja hjá hefur verið harð­lega gagn­rýnd víða á sam­fé­lags­miðlum. Á meðal þeirra sem það gerðu er fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra Íslands, Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir, sem gegndi því emb­ætti á árunum 2007 til 2009. Í færslu á Facebook sagði hún: „Ísland greiddi því miður ekki atkvæði í dag með til­lögu um taf­ar­laust vopna­hlé í Gaza af mann­úð­ar­á­stæðum. Það gerðu heldur ekki hin Norð­ur­löndin - nema Noregur. Hvernig geta frið­elsk­andi lýð­ræð­is­þjóðir fylgst álengdar og hlut­lausar með þessum hræði­lega Hild­ar­leik?“

Kristinn Hrafns­son, tals­maður Wikileaks, tjáði sig líka um málið og rifj­aði upp grein sem for­sæt­is­ráð­herra skrif­aði árið 2014 þegar Ísraelar sátu um Gaza og 2.251 Palest­ínu­maður, þar af 550 börn, höfðu látið lífið. Þá skrif­aði Katrín að „þegar börn eru strá­felld getur alþjóða­sam­fé­lagið ekki setið hjá“. 

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JA
    Jón Arnarson skrifaði
    Er þetta ekki samtrygging þriggja ólíkra flokka til þess að FOKKA samfélaginu, hver á sinn hátt, til framdráttar sér og sýnum?
    ALLT annað skiptir ekki máli – er það?
    Allavega er samfélagsleg vitræn tenging, vandfundið – innlend sem alþjóðleg.
    0
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    ,,Katrín Jakobsdóttir 25. júlí 2014 þegar búið var að slátra 2251 Palestínumanni á Gaza þar af a.m.k. 550 börnum:
    „Þegar börn eru stráfelld getur alþjóðasamfélagið ekki setið hjá“
    Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur 27. október 2023 þegar búið er að slátra 7500 Palestínumönnum á Gaza þar af a.m.k. 3000 börnum. "

    29. otóber 2023 þá notar Katrín Jakobsdóttir bla, bla, bla, bla, og meira bla, bla, bla ?

    Katrín Jakobsdóttir : ,,Það skiptir máli hver stjórnar" ?
    0
  • Kári Jónsson skrifaði
    X-V-fólkið er látlaust í orðasaladinu og innantómum frösum, það er ekkert að marka þessa yfirlýsingu, það verður engin eftirfylgni og Katrín heldur áfram að treysta/verja Bjarna Ben nú sem áður.
    0
  • BK
    Breki Karlsson skrifaði
    Afhverju ættum við yfirleitt að lesa þessa grein. Vinstri grænir hafa enga skoðun eða samvisku. Vilja bara vera í liði með skessunni.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár