Starfslokasamningar Birnu og Ásmundar kostuðu Íslandsbanka yfir 100 milljónir

Tveir þeirra stjórn­enda Íslands­banka sem voru látnir hætta hjá Íslands­banka fengu greidd eins árs laun við starfs­lok. Þau yfir­gáfu bank­ann eftir að hann sætt­ist á að borga 1,2 millj­arða króna sekt vegna lög­brota sem framin voru í tengslum við sölu­ferli á hlut rík­is­ins í honum.

Starfslokasamningar Birnu og Ásmundar kostuðu Íslandsbanka yfir 100 milljónir
Fyrr­ver­andi banka­stjór­inn Birna Ein­ars­dóttir stýrði Íslands­banka frá því síðla árs 2008 og þar til í sumar, þegar hún var látin víkja eftir mik­inn þrýst­ing í kjöl­far þess að bank­inn við­ur­kenndi umfangs­mikil lög­brot. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Starfs­lok tveggja stjórn­enda Íslands­banka, Birnu Ein­ars­dóttir fyrr­ver­andi banka­stjóra og Ásmundar Tryggva­sonar, sem var fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækja- og fjár­festa hjá bank­anum, kost­uðu Íslands­banka að minnsta kosti tæp­lega 103 millj­ónir króna. Þetta kemur fram í nýbirtum árs­hluta­reikn­ingi Íslands­banka. 

Áður hefur verið greint frá því að starfs­loka­samn­ingur Birnu, sem var látin hætta störfum í sumar, fæli í sér að hún fengi greidd laun í eitt ár eftir að hún færi úr bank­anum. Alls nemur sú upp­hæð 56,6 millj­ónum króna, eða um 4,7 millj­ónum króna á mán­uði. Til við­bótar við­heldur Birna rétt­indum varð­andi orlof og líf­eyr­is­sjóðs­greiðslur á því tíma­bili, en í fyrra nam mót­fram­lagið sem Íslands­banki greiddi í líf­eyr­is­sjóð fyrir Birnu 11,5 millj­ónum króna. Kostn­aður vegna starfs­loka Birnu var bók­færður á öðrum árs­fjórð­ungi.

3,8 milljónir á mánuði

Ásmundur var lát­inn hætta í sínu starfi þann 1. júlí síð­ast­lið­inn og kostn­aður vegna starfs­loka hans bók­fær­ist því á þriðja árs­fjórð­ungi, sem hófst þann dag.

Fram­kvæmda­stjóriÁsmundur Tryggva­son hætti störfum 1. júlí.

Í nýbirtu upp­gjöri Íslands­banka kemur fram að hann hafi líka fengið laun í tólf mán­uði eftir að hann hætti og að kostn­aður bank­ans vegna þessa nemi 46,1 millj­ónum króna, eða um 3,8 millj­ónum króna á mán­uði. Líkt og Birna fær hann auk þess greitt allt orlof og líf­eyr­is­greiðslur til við­bótar þessu. Í fyrra borg­aði bank­inn 6,7 millj­ónir króna í mót­fram­lag í líf­eyr­is­sjóð fyrir Ásmund. 

Ásmundur var einn þeirra starfs­manna Íslands­banka sem keyptu hluti fyrir í bank­anum í lok­uðu útboði á 22,5 pró­senta hlut rík­is­ins á síð­asta ári.

Hæsta sekt Íslandssögunnar

Birna og Ásmundur tvö af þremur stjórn­endum Íslands­banka sem misstu starfið eftir að sátt bank­ans við Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands, vegna umfangs­mik­illa lög­brota í tengslum við útboð á hlut í honum í mars í fyrra, var birt í síð­asta mán­uði. Samkvæmt sátt­inni var Íslands­banka gert að greiða tæp­lega 1,2 millj­arða króna í sekt. Það er rúm­lega þrettán sinnum hærri sekt en sú næst hæsta sem eft­ir­litið hefur áður lagt á fjár­mála­fyr­ir­tæki. 

Auk þeirra Birnu og Ásmundar var Atli Rafn Björns­son, yfir­maður fyrir­tækja­ráð­gjafar Ís­lands­banka, lát­inn hætta störfum í kjöl­far sátt­ar­innar. Það gerði hann í byrjun júlí. Atli Rafn sat hins vegar ekki í fram­kvæmda­stjórn bank­ans og því eru ekki upp­lýs­ingar um starfs­loka­samn­ing hans í upp­gjör­inu.

Þá viku þrír stjórn­ar­menn úr stjórn Íslands­banka vegna máls­ins, Finnur Árnason stjórn­ar­for­maður, Guðrún Þor­geirs­dóttir sem var vara­for­maður og Ari Dan­í­els­son. Ari tók sjálfur þátt í útboð­inu og keypti hlut í bank­anum, eftir að hafa ráð­fært sig við reglu­vörð.

Kjósa
30
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • KMT
    Kristín María Thorarensen skrifaði
    Skýr birtingarmynd um spillingu innan bankastarfsemi á Íslandi... enginn lærdómur dreginn af hruninu 2008!
    2
  • Kristbjörn Árnason skrifaði
    Enginn efast um að bankinn hafi brotið lög og reglur. En bankinn sjálfur hefur enga sjálfstæða hugsun. Það eru auðvitað stjórnendur bankans sem ættu að vera gerðir ábyrgir fyrir þessum brotum.

    Því er það furðulegt að þessir tveir stjórnendur bankans skuli ekki hafa verið kærðir fyrir þessi brot sem þeir bera ábyrgð á. Þannig að mér finnst þetta allt vera einn allsherjar skrípaleikur. Það verða þá viðskiptavinir bankans sem bera sekt bankans þegar upp verður staðið.
    2
  • Jóhanna Halldóra Steindórsdóttir skrifaði
    Þetta er meira svínarið ekki faum við hin almennu borgarar starfslokasamninga enn fólk með titla fær rifleg laun fyrir að standa sig illa í starfi
    4
  • Stefán Ólafsson skrifaði
    Fá þau svo ekki bónus ofaná þessar starfslokagreiðslur á næsta ársfundi bankans eftir áramót? Bónusar verða þá greiddir stjórnendum vegna mikils hagnaðar bankans á árinu 2023 (sem þó komu til vegna ofsafenginna stýrivaxtahækkana seðlabankans, en ekki vegna góðs árangurs stjórnenda bankans). Margt er öfugsnúið í bönkunum - eins og fyrri daginn.
    5
  • MGÁ
    Marteinn Gísli Árnason skrifaði
    Hver dj... er i gangi i okkar blessaða þjoðfelagi brjota lög og fa greitt fyrir það þetta er
    ekki neitt nytt,við latum þetta yfir okkur ganga aratugum saman.
    Birna drullastu til að lata þig hverfa ur viðskiptalifinu þu ert til skammar
    svo ertu orðin einhver stjornarm. Hver i osköpunum ol þig up
    Skilaðu peningnum fra Glitni sem tyndust.
    Gæti verið að þinn "frami" væri að þu ert með vitneskju sem ekki ma opinberast
    BIRNA VERTU KJÖRK OG SEGÐU SANNLEIKANN.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár