Landsbankinn græddi 22,4 milljarða á níu mánuðum – Tvöföldun á hagnaði milli ára

Stór­auknar vaxta­tekjur, auk­inn vaxta­munur og hríð­lækk­andi rekstr­ar­kostn­aður sem hlut­fall af tekjum gera það að verkum að arð­semi eig­in­fjár Lands­bank­ans jókst umtals­vert milli ára.

Landsbankinn græddi 22,4 milljarða á níu mánuðum – Tvöföldun á hagnaði milli ára
Nýjar höf­uð­stöðvar Lands­bank­inn er fluttur inn í fram­tíð­ar­hús­næði sitt. Greint var frá því í sumar að kostn­að­ur­inn við húsið hafi verið 16,5 millj­arðar króna, sem er 8,5 millj­örðum krónum meira en lagt var upp með í upp­hafi. Mynd: Heiða Helgadóttir

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 7,9 millj­arða króna á þriðja árs­fjórð­ungi, og alls um 22,4 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2023. Hagnaður bank­ans á því tíma­bili í fyrra var 11,3 millj­arðar króna og því hefur hann næstum tvö­fald­ast milli ára. Aukn­ingin nemur rúm­lega ell­efu millj­örðum króna. 

Samhliða hefur arð­semi eig­in­fjár bank­ans, sem nam 293 millj­örðum króna í lok sept­em­ber, auk­ist. Það var 10,9 pró­sent á þriðja árs­fjórð­ungi yfir­stand­andi árs en 8,5 pró­sent á sama tíma í fyrra.

Þetta kemur fram í árs­hluta­reikn­ingi Lands­bank­ans vegna upp­gjörs þriðja árs­fjórð­ungs sem birt var í dag. 

Vaxtatekjurnar 27 prósent meiri en í fyrra

Hreinar vaxta­tekjur bank­ans hafa auk­ist gríð­ar­lega frá því í fyrra. Á fyrstu níu mán­uðum árs­ins voru þær tæp­lega 43 millj­arðar króna, sem er rúm­lega níu millj­örðum krónum meira en á sama tíma í fyrra. en um er að ræða 27 pró­sent aukn­ingu milli ára. Hreinar vaxta­tekjur Lands­bank­ans voru 82 pró­sent af öllum rekstr­ar­tekjum hans það sem af er ári. 

Í upp­gjör­skynn­ingu segir að þetta sé vegna betri ávöxt­unar á lausafé, stærra útlána­safns og hærra vaxta­stigs. Útlán juk­ust um 55,5 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2023. Útlán til ein­stak­linga juk­ust um 19,5 millj­arða króna og útlán til fyr­ir­tækja um 47 millj­arða króna en á móti kemur ell­efu millj­arða króna lækkun vegna geng­is­á­hrifa. Nettó­aukn­ing fyr­ir­tækja­lána er því 36 millj­arðar króna.

Vaxta­tekj­urnar byggja á mun­inum á þeim vöxtum sem bank­arnir borga fyrir að fá pen­inga að láni og þeim vöxtum sem þeir rukka fyrir að lána ein­stak­lingum og fyr­ir­tækjum fjár­muni. Sá munur kall­ast vaxta­munur. Hann var 3,1 pró­sent hjá Lands­bank­anum á þriðja árs­fjórð­ungi. Vaxta­munur íslenskra banka er tals­vert meiri en þekk­ist á meðal ann­arra nor­rænna banka, en hann hefur verið lægstur hjá Lands­bank­anum hér­lendis.

Hreinar þjón­ustu­tekjur Lands­bank­ans hækk­uðu ein­ungis um rúm­lega 200 millj­ónir króna frá á sama tíma­bili í fyrra, og voru 8,1 millj­arður króna. Athygli vekur að þjón­ustu­tekjur – þókn­­anir fyrir til dæmis eigna­­stýr­ingu og fyr­ir­tækja­ráð­­gjöf en líka þau gjöld sem ein­stak­lingar og heim­ili greiða fyrir ýmis konar þjón­ustu sem bank­arnir veita þeim – dróg­ust saman á þriðja árs­fjórð­ungi 2023 sam­an­borið við sama árs­fjórð­ung í fyrra. 

Hlutfall kostnaðar af tekjum hríðfellur

Rekstr­ar­gjöld bank­ans hafa auk­ist milli ára, alls um 1,7 millj­arða króna, en sú aukn­ing er mun minni en aukn­ingin á tekjum hans. Þess vegna eykst hagn­aður Lands­bank­ans fyrir skatta um 66 pró­sent milli ára og var 31,6 millj­arðar króna. Þegar bank­inn var búinn að greiða 9,2 millj­arða króna í skatta stóðu hins vegar eftir 22,4 millj­arðar króna í hagnað sem til­heyrir hlut­höfum hans, sem eru að uppi­stöðu rík­is­sjóður Íslands. 

Íslensku bank­arnir hafa allir verið að hag­ræða umtals­vert í rekstri á und­an­förnum árum. Rekstr­ar­kostn­aður þeirra sem hlut­fall af tekjum var 59 pró­sent árið 2018 en fór niður í 47 pró­sent í fyrra. Síðan þá hefur hann lækkað veru­lega hjá Lands­bank­anum og er nú 34,6 pró­sent. 

Í skýrslu starfs­hóps Lilju D. Alfreðs­dóttur, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra, um grein­ingu á gjald­töku og arð­semi við­skipta­bank­anna sem birt var í sumar kom fram að að aukin hag­kvæmni og lækkun banka­skatts hafi ekki skilað sér í minni vaxta­mun. Hann var að með­al­tali 2,7 pró­sent í fyrra, sem er nán­ast sami vaxta­munur og var árið 2018, þegar hann var 2,8 pró­sent. Þessi vaxta­munur er hár í nor­rænum sam­an­burði. Í skýrsl­unni sagði að hjá öðrum nor­rænum bönkum af svip­aðri stærð og þeir íslensku sé hann 1,6 pró­sent og hjá stórum nor­rænum bönkum sé hann enn minni, eða 0,9 pró­sent. 

Vaxta­munur íslensku bank­anna hefur haldið áfram að aukast á þessu ári og var, líkt og áður sagði, 3,1 pró­sent hjá Lands­bank­anum á síð­asta árs­fjórð­ungi. Hinir tveir kerf­is­lega mik­il­vægu bank­arnir: Arion banki og Íslands­banki, voru þegar komnir með mun­inn upp í 3,2 pró­sent um mitt þetta ár.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Já er ekki glæpa hyskið að tala um nauðsyn þess að "setja eigur ríkissins á markað" ?
    Nefnið mér bónda sem selur sína bestu mjólkur kú eða gefur frá sér gull gæsina ?
    Mér dettur í hug það sem ég sá að Davíð Þór Jónsson hafði skrifað einhverrstaðar.
    Og læt það fylgja hér án hanns leyfis.

    Davíð Þór Jónsson
    Vegna þess að ég heyrði ráðherra nýlega tala um nauðsyn þess að "setja eigur ríkissins á markað" finnst mér nauðsynlegt að afrugla aðeins hvernig sagt er frá þessu. Hér eru tvö orð sem vert er að gefa gaum að merkingunni í og því hvernig þau eru notuð. Hið fyrra er "markaður". Hverjir eru "markaðurinn"? Ég er ekki þessum markaði og fólkið sem kemur hingað til að biðja um hjálp er það ekki heldur. Öryrkjar eru ekki á þessum markaði. "Markaður" er nefnilega í raun fínt orð yfir það sem kallað er "fjármagnseigendur", sem aftur er aðeins skrúðyrði yfir þá sem eiga peningana, þ.e. auðmenn. Hitt orðið er "ríkið". Hverjir eiga "ríkið"? Það er í raun almenningur í þessu landi, þjóðin. Höfum þess vegna alveg á hreinu að þegar talað er um að setja eigur "ríkisins" á "markað" er í raun verið að tala um að koma eigum þjóðarinnar í hendur auðmanna.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár