RÚV fékk meira úr ríkissjóði og seldi fleiri auglýsingar en tapaði samt

Áætlað er að RÚV fái 6,1 millj­arð króna úr rík­is­sjóði á árinu 2024, sem er 1,5 millj­örðum krónum meira en sam­stæðan fékk árið 2018. Tekjur RÚV af sölu aug­lýs­inga hafa farið hratt hækk­andi og námu næstum 1,3 millj­örðum króna á fyrri hluta árs.

RÚV fékk meira úr ríkissjóði og seldi fleiri auglýsingar en tapaði samt
Útvarps­stjóri Stefán Eiríks­son hefur stýrt RÚV frá því snemma árs 2020 þegar hann var ráð­inn til fimm ára.

RÚV sala ehf., dótt­ur­fé­lag RÚV, sem ber ábyrgð á allri sölu sem rík­is­fjöl­mið­ill­inn skil­greinir sem tekju­aflandi sam­keppn­is­rekst­ur, jók tekjur sínar og hagnað á fyrstu sex mán­uðum árs­ins í sam­an­burði við sama tíma­bil í fyrra. Alls velti félagið rúm­lega 1,5 millj­örðum króna, sem er 14 pró­sent meira en það velti á fyrri hluta árs í fyrra, og rekstr­ar­hagn­aður var um 111 millj­ónir króna, eða 37 pró­sent meiri en hann var á sama tíma í fyrra. 

Mestu munar um tekjur RÚV sölu af aug­lýs­ingum, sem voru 1.257 millj­ónir króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2023, eða tíu pró­sent hærri en á fyrri hluta árs 2022. Þetta kemur fram í fund­ar­gerð stjórnar RÚV frá því í lok síð­asta mán­aðar.

RÚV tapaði 121 milljón á fyrri hluta árs

Fyrir utan þær tekjur sem RÚV hefur af sam­keppn­is­rekstri, sem námu 2,4 millj­örðum króna í fyrra og hækk­uðu um 37 pró­sent frá árinu …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • VSE
    Virgil Scheving Einarsson skrifaði
    RUV er með Utvarpsrað sem ræður miklu Rikistjornin er með Puttana i malefnum RUV þvi þarf að ljuka og Stofnunin að lostna ur klonum a þvi. RUV þarf að kverfa af Auglysinga markaði. Ras 2 þarf að fækka folki og Tölfur Gervigrynd að koma inn meira
    Sameina ma Morgunutvarp þessara 2ja rasa 1 og 2 og Siðdegisutvarp. Sparnaður og draga saman Seglin, en samt að sinna Örygiskildum sinum. Ras 2 sendir ut mannlaus alla Nottina Frettir og veður koma inn Reglulega. Eins mætti vera að Degitil. Blaður og Bull Folks sem vill lata a ser Bera er of mikið þar. Þetta var ætlað sem Tonlistar stöð er hun hof utsendingar. Ekki mikið Bull. RUV hefur verið að þenjast ut kvað Manna hald varðar
    Nu er það orðið of mikið. Höllin sem var bygð við Haaleitið er of stor að margra sögn.
    Raðherra Mentamala ætti að beita ser fyrir Samdrætti RUV eins og hun LOFAÐI.
    0
  • Kristbjörn Árnason skrifaði
    Það er mikilvægur réttur almennings að búa við trausta fjölmiðla sem ekki matreiðir fréttir til að tjónka við ákveðna hagsmuni

    Styrkur útvarpsins skiptir almenning mjög miklu máli, í gegnum tíðina hefur ekki verið hægt að treysta fréttaflutningi annara miðla.

    Hins vegar hefur mátt merkja það undanfarna áratugi að RÚV er að færast æ meira undir járnhæl ráðandi aðila í landinu.

    Þar sem eru ráðandi gömlu valdaflokkarnir og bakland þeirra.
    1
  • Arnljótur Sigurjónsson skrifaði
    Afram til sigurs .
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár