Áreynslulaus fjölbreytileiki

Í þess­ari bók birt­ist fjöl­breyti­leik­inn einna helst í því að Úlfur á tvær mömmur og er það kynnt á áreynslu­lausan hátt í upp­hafi og enda bók­ar­innar. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem tvær mömmur rata inn í íslenskar barna­bók­menntir en góð vísa er aldrei of oft kveðin.

Áreynslulaus fjölbreytileiki
Höfundar Höfundar verks­ins, þær María Rut Krist­ins­dóttir og Ingileif Frið­riks­dóttir, hafa í mörg ár verið ötular við að benda á hversu órjúf­an­legur hluti hinseg­in­leik­inn er af sam­fé­lag­inu.
Bók

Úlfur og Ylfa: Ævin­týra­dag­ur­inn

Höfundur Ingileif Friðriksdóttir og María Rut Kristinsdóttir
Salka
44 blaðsíður
Gefðu umsögn

Úlfur vaknar spenntur á sól­ríkum morgni því hann ætlar í ævin­týra­ferð með vin­konu sinni, henni Ylfu, og hund­inum Bósa Ljóshári. Úlfur og Ylfa nýta síðan ímynd­un­ar­aflið til hins ítrasta og eiga saman skemmti­legan dag fullan af hættu­legum villi­dýrum og árás­ar­gjörnum nammi­pokum. 

Ævin­týra­dag­ur­inn er fyrst í flokki bóka fyrir yngstu les­end­urna um Úlf og Ylfu og ævin­týri þeirra. Markmið bóka­flokks­ins er að „fagna fjöl­breyti­leik­anum með því að sýna hann í allri sinni dýrð“, eins og segir í bóka­kápu. Í þess­ari bók birt­ist fjöl­breyti­leik­inn einna helst í því að Úlfur á tvær mömmur og er það kynnt á áreynslu­lausan hátt í upp­hafi og enda bók­ar­innar, enda er það senni­lega mark­miðið: að skrifa skemmti­legar og gríp­andi sögur fyrir börn þar sem fjöl­breytt fjöl­skyldu­form og ein­stakir ein­stak­lingar eru svo sjálf­sagt mál að ekki er nokkur þörf að ávarpa það neitt frekar.

Þetta tekst vel í þess­ari fyrstu bók enda hafa höf­undar text­ans í mörg ár verið ötular að benda á hversu órjúf­an­legur hluti hinseg­in­leik­inn er af sam­fé­lag­inu og hversu ástæðu­laust er að gera eitt­hvað sér­stakt veður út af þvi. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem tvær mömmur rata inn í íslenskar barna­bók­menntir en góð vísa er aldrei of oft kveðin og mik­il­vægt að fjöl­breyti­leiki sam­fé­lags­ins sjá­ist sem oft­ast í bókum og kannski sér­stak­lega þeim sem eru ætl­aðar börnum.

Myndir Auðar Ýrar Elísa­bet­ar­dóttur eru fal­legar og lit­ríkar, flæða kringum text­ann og styðja sög­una vel. Eitt aðals­merki góðra mynd­lýs­inga í barna­bókum er að þær bæti ein­hverju við sög­una, ein­hverjum smá­at­riðum sem hægt er að finna og tala um, til dæmis þegar sagan er lesin fyrir börn og slíkt má sann­ar­lega finna í þess­ari bók. Ævin­týra­dag­ur­inn er hug­ljúf og skemmti­leg saga sem auð­velt er fyrir börn að sam­sama sig við og  byrja strax að hlakka til fleiri ævin­týra Úlfs og Ylfu. 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár