Líf móður og flókið samband mæðgna

Í Konu, sem kom fyrst út árið 1987, segir Annie Ernaux frá lífi móður sinnar og flóknu og djúp­stæðu sam­bandi þeirra mæðgna. Það er mik­ill fengur að þýð­ingu þess­arar raun­sönnu frá­sagnar um líf konu.

Líf móður og flókið samband mæðgna
Nóbelskáld Annie Ernaux hlaut í fyrra, fyrst franskra kvenna, bók­mennta­verð­laun Nóbels. Mynd: afp
Bók

Kona

Höfundur Annie Ernaux í þýð­ingu Þór­hild­ar Ólafs­dótt­ur
Ugla
112 blaðsíður
Gefðu umsögn

Bók franska rit­höf­und­ar­ins Annie Ernaux Kona er komin út í einkar vand­aðri íslenskri þýð­ingu Þór­hildar Ólafs­dóttur, rit­höf­undar og þýð­anda, en útgef­andi er Ugla. Í Konu, sem kom fyrst út árið 1987, segir Annie Ernaux frá lífi móður sinnar og flóknu og djúp­stæðu sam­bandi þeirra mæðgna. Hún bregður upp mynd af því hvernig þær fjar­lægj­ast í takt við aukna menntun dótt­ur­innar, en jafn­framt því sem stendur í stað hvað sem á dynur – þeirri stað­reynd að þær tengj­ast böndum sem verða aldrei slitin. Hún lýsir því einnig hvernig hinir látnu lifa áfram með ást­vinum sínum, „þar sem nær­vera móður [hennar] er magn­aðri en raun­veru­leg fjar­vera hennar“, eins og hún orðar það (bls. 101).  Annie Ernaux hélt áfram með þessa frá­sögn í bók­inni Je ne suis pas sortie de la nuit (1999) eða Ég kemst ekki undan nótt­inni, en þar rekur hún með ítar­legum hætti hvernig Alzheimer hreif móður hennar frá henni á sama tíma og sjúk­dóm­ur­inn gerði á mót­sagna­kenndan hátt sam­band þeirra inni­legra og nán­ara. Annie Ernaux hafði áður sagt fábrotna sögu for­eldra sinna, sögu alþýðu­fólks, en þá með áherslu á lífs­hlaup föð­ur­ins í bók­inni Staðnum, eða La place, (1984) sem kom út í þýð­ingu Rutar Ing­ólfs­dóttur árið 2022, en þau ráku litla mat­vöru­verslun og kaffi­hús í smá­bænum Yvetot í Normandí-hér­aði. 

Annie Ernaux hlaut í fyrra, fyrst franskra kvenna, bók­mennta­verð­laun Nóbels. Hún er sext­ándi Frakkinn sem hlýtur þau – átta árum eftir Jean Patrick Modiano árið 2014, og 14 árum eftir að Jean-Marie Gustave Le Clézio veitti þeim við­töku árið 2008. Í rök­stuðn­ingi Nóbels­nefndar Sænsku aka­dem­í­unnar segir að hún hafi hlotið verð­launin fyrir hug­rekki og skarp­skyggni í skrifum sínum, sem „afhjúpa rætur, frá­hvörf og sam­eig­in­lega fjötra per­sónu­legra minn­inga“. Við afhend­ingu verð­laun­anna sagð­ist Annie Ernaux skrifa til að „hefna fyrir kyn­þátt sinn og kyn“ – en þar á hún við að hún vildi hefna fyrir stétt sína og konur. Hún kvaðst hafa skrifað eft­ir­far­andi setn­ingu, en hún væri berg­mál af þekktri yfir­lýs­ingu franska ljóð­skálds­ins Rimbaud, í dag­bók sína þegar hún var 22 ára gömul: „Ég verð af lægri kyn­þætti um alla eilífð.“  „Ég hélt þá – af svo­lít­illi fífldirfsku,“ sagði hún svo, „að það að skrifa bækur, að verða rit­höf­undur – sem arf­taki fátækra bænda, verka­manna og smá­kaup­manna, fólks sem er fyr­ir­litið fyrir siði sína og hætti, fyrir talsmáta sinn og menn­ing­ar­leysi, nægði til að leið­rétta félags­legt órétt­læti upp­runans.“ Frá upp­hafi hafi mark­mið hennar verið að „rista rödd [sína], rödd konu og stéttsvik­ar­ans, í bók­mennt­irnar –  þennan stað sem frelsar“. 

Bækur Annie Ernaux, sem eru um 30, eru í senn per­sónu­legar og sam­fé­lags­legar „sjálf-sögur“ sem hún hefur sjálf skil­greint sem „sjálf-félags-sögur“. Þær eru bræð­ingur af bók­menntum, félags­fræði og sagn­fræði. Hún notar reynslu sína til að segja sögu fleiri kvenna. Hún skrifar um félags­legt órétt­læti, stéttir og stétta­mis­munun. Hún sér bók­mennt­irnar sem póli­tískt verk­efni og sjálfa sig sem „stéttsvik­ara“ eða „stétt­skipt­ing“.  Það er þó fremur hið strípaða tungu­mál Annie Ernaux sem ein­kennir verk hennar en til­vist­ar­legar spurn­ingar eða félags­fræði­legar lýs­ingar. Hún gaf þessum rit­hætti heiti í Staðnum og kenndi hann við „flatan stíl“. Sumir kynnu að segja fátæk­legan stíl – en það var kannski einmitt ætlun hennar að hann end­ur­spegl­aði reynslu af skorti og van­efnum líkt og hjá fransk-alsírska rit­höf­und­inum Albert Camus.

Það er mik­ill fengur að þýð­ingu þess­arar raun­sönnu frá­sagnar

Annie Ernaux hefur í höf­und­ar­verki látið sig sam­fé­lags­hóp varða sem hefur verið úti­lok­aður frá sýni­leika. Hún hefur farið inn á þetta ókann­aða svæði sem lýtur sínum eigin lög­málum með sína lítt þekktu siði og óþekkta tungu­mál og tján­ing­ar­form. Hvernig er hægt að gera grein fyrir þessum hópi án þess að hækka róm­inn – segja honum til synd­anna, tala niður til hans? Með hvaða hætti verður sárs­auk­anum, nið­ur­læg­ing­unni og skömminni sem fylgir því að vera á skjön eða jað­ar­settur best komið til skila? Hvernig verður upp­burð­ar­leysið best skráð, hóg­værðin og blygð­un­ar­semin – án þess að gripið sé til skáld­skap­ar­máls hinna valda­miklu? Það var strax í fyrstu bókum hennar – og einkum þegar hún tókst á við sögu föður síns í Staðnum – að hún átt­aði sig á því að til þess að „svíkja ekki“ upp­runa sinn þyrfti hún að beita vís­inda­legri nákvæmni við skrifin. Hún gæti ekki geng­ist við skil­yrðum útgef­enda, mennta­el­ít­unnar og borg­ara­stétt­ar­innar og ein­setti sér að skila stétt­ar­skömminni. Bækur Annie Ernaux afbyggja fyrir fram gefnar hug­myndir um það hvernig á að skrifa – þær fara gegn kerf­is­lægum hug­myndum um það hvernig eigi að sjá hlut­ina eða hugsa þá, hvað má segja og hvað ekki. Í stuttu máli ræðst hún gegn hlut­verka­skip­an­inni á hinu sam­fé­lags­lega tafl­borði. Hún gerir sýni­lega krafta í sam­fé­lag­inu sem hafa verið hljóðir – hjá henni tala hinir mál­lausu, þeir sem ekki höfðu sinn „tals­mann“ eða skáld. 

Með þýð­ingu Þór­hildar Ólafs­dóttur fylgir knappur en efn­is­ríkur eft­ir­máli þar sem sagt er frá höf­und­ar­ferli Annie Ernaux og helstu ein­kennum og umfjöll­un­ar­efnum skáld­verka hennar. Það er mik­ill fengur að þýð­ingu þess­arar raun­sönnu frá­sagnar um líf konu sem eins og dóttirin kemst að orði í bók­inni „varð að verða að sögu svo mér finn­ist ég ekki vera eins ein­mana og gervi­leg í heimi sem drottnar yfir öðrum með orðum og hug­myndum og þangað sem ég, að hennar ósk, er farin“ (bls. 103). 

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár