Þórdís Kolbrún þriðja konan sem tekur við prókúru fyrir ríkissjóð

Hingað til hafa konur ein­ungis stýrt fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu í minna en 17 mán­uði. Þriðja konan sem sest í það emb­ætti gæti rúm­lega tvö­faldað þann tíma ef hún situr þar út kjör­tíma­bilið.

Þórdís Kolbrún þriðja konan sem tekur við prókúru fyrir ríkissjóð
Færir sig til Þórdís Kolbrún mun hafa stóla­skipti við Bjarna Bene­dikts­son síðar í dag. Mynd: Golli

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, sem síðar í dag tekur við lyklunum að fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu, verður 27 ein­stak­ling­ur­inn sem gegnir þeirri stöðu frá því að lýð­veldið Ísland var stofn­að. 

Hún verður þriðja konan til að taka við þessu einu valda­mesta emb­ætti lands­ins. Oddný Harð­­ar­dóttir varð fyrsta konan til að gegna emb­ætti fjár­­­mála­ráð­herra þegar hún tók við því á gaml­ár­s­dag 2011.

Oddný sat í emb­ætti í níu mán­uði og þá tók flokks­­systir hennar Katrín Júl­í­us­dóttir við. Hún sat í emb­ætt­inu í tæpa átta mán­uði. Því hafa konur verið fjár­­­mála­ráð­herrar á Íslandi í minna en 17 mán­uði frá árinu 1944.  

Klári Þórdís Kolbrún kjör­tíma­bilið í þessu emb­ætti, eins og for­menn rík­is­stjórn­ar­flokk­anna klif­uðu á á blaða­manna­fundi í dag að myndi ger­ast, þá mun hún rúm­lega tvö­falda þann tíma sem kona hefur haldið á pró­kúru fyrir rík­is­sjóð á lýð­veld­is­tím­anum. 

Engin skýr æskilegur arftaki

Mikið var skrafað um þann ráð­herrakapal sem gæti farið af stað eftir afsögn Bjarna Bene­dikts­sonar sem fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra á þriðju­dag og spáð í spilin um hver myndi taka við því ráð­herra­emb­ætti sem hann hefur meira og minna gegnt í rúman ára­tug. Hvernig sá kap­all var lagður var kynntur á blaða­manna­fundi klukkan 11 í dag. Einu breyt­ing­arnar voru þær að Bjarni hefur stóla­skipti við Þórdísi Kolbrúnu og færir sig yfir í utan­rík­is­ráðu­neytið. 

Í könnum sem Maskína gerði í lok viku kom fram að eng­inn sitj­andi stjórn­ar­þing­maður stóð upp úr sem óska-kandídat lands­manna til að taka við fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu. Flestir, alls tólf pró­sent aðspurðra, sögðu að Þórdís Kolbrúns væri sá ein­stak­lingur sem þeim hugn­ast best til að taka við. Skammt á hæla hennar komu Lilja D. Alfreðs­dóttir, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra og vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, og Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra, sem voru bæði nefnd af níu pró­sent svar­enda. Einungis tvö pró­sent nefndu nafn Bjarna sem svar við þess­ari spurn­ingu.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    *************************************************************************
    Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra seldi föður sínum hlut
    í ríkisbanka.

    Í nágrannalöndunum væri stjórnmálaferli hans þess vegna lokið.

    Þar vilja stjórnmálaflokkarnir ekki hafa slíka menn í forsvari.

    "Ef þetta er fjármálaráðherrann þeirra, hvernig eru þá hinir ?"

    Bjarni Ben. hagar sér eins og óuppalinn dekurkrakki í nammibúð
    *************************************************************************
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár